Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 12
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
UTANRÍKISMÁL Sumarfundur ráð-
herra EFTA-ríkjanna verður hald-
inn í Vestmannaeyjum 22.-24. júní
í boði Gunnars Braga Sveinssonar
utanríkisráðherra.
Auk hans sækja fundinn Aurelia
Frick, utanríkisráðherra Liechten-
stein, Johann Schneider-Ammann,
efnahagsmálaráðherra Sviss, og
Monika Mæland, viðskipta- og
iðnaðarráðherra Noregs. Ræða
á þróun fríverslunarnets EFTA-
ríkjanna. Samningar eru í gildi við
nærri 70 ríki. Einnig munu ráð-
herrarnir ræða yfirstandandi frí-
verslunarviðræður ESB og Banda-
ríkjanna. - fb
Sumarfundur í Eyjum:
Ráðherrar
EFTA hittast
SAMFÉLAGSMÁL Matvælastofn-
un hyggst fara yfir verklag við
flutninga dýra milli landa með
flutningsaðilum á Keflavíkurflug-
velli. Ákvörðunin kemur í kjölfar
þess að Border Collie-hundurinn
Hunter týndist.
Hunter var týndur í fimm daga
en er nú kominn til síns heima í
Svíþjóð. Áður en hann hélt af landi
brott voru tekin sýni úr honum og
þau rannsökuð.
Hunter reyndist ormalaus og við
góða heilsu miðað við aðstæður. - ih
Kom ormalaus úr sýnatöku:
Hunter veldur
breyttu verklagi
JAFNRÉTTI Sorpa hefur hlotið Jafn-
launavottun VR sem staðfestir að
tryggt verði með
jafnlaunakerfi að
starfsfólki sem
vinnur sömu eða
jafn verðmæt
störf sé ekki mis-
munað í launum.
Jafnlaunavott-
un VR tekur nú
til 22 fyrirtækja
og stofnana en
fyrstu fyrirtækin fengu vottunina
um mitt ár 2013.
„Það bætast við nokkur stór
fyrir tæki í haust. Það tekur nefni-
lega ákveðinn tíma fyrir stór fyri-
rtæki að undirbúa jafnlaunavott-
unina,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir,
formaður VR. - ebg
22 vinnustaðir eru vottaðir:
Sorpa fékk jafn-
launavottunina
KJARAMÁL Félagsmenn Skóla-
stjóra félags Íslands samþykktu
nýjan kjarasamning í vikunni. 201
af 332 sem greiddu atkvæði sam-
þykkti samninginn eða 61 prósent.
Samningurinn gildir til 31. maí
2015. Skólastjórar fá milli 5,7
og 14,8 prósenta launahækkun
á samningstímanum auk annar-
uppbótar. - ih
Samþykkja kjarasamning:
Skólastjórar
semja til eins árs
ÓLAFÍA B.
RAFNSDÓTTIR
ásamt Jazz at
Lincoln Center Orchestra
Tryggðu þér miða í síma 528 5050, á midi.is og harpa.is
Harpa í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur
www.harpa.is/marsalis
Eldborg
4. júlí kl. 20:00
ÍRAK, AP Ali al Sistani, andlegur
leiðtogi sjía-múslima í Írak, beindi
í gær spjótum sínum að Núrí al
Maliki forsætisráðherra og krefst
þess að ný stjórn verði mynduð,
sem tekur tillit til hagsmuna allra
þjóðernishópa landsins.
Maliki, sem er sjía-múslimi,
hefur sætt gagnrýni fyrir að draga
taum sjía-múslima en hunsa hags-
muni bæði súnnía og kúrda. Hann
vann sigur í kosningum fyrir
nokkrum vikum, enda eru sjía-
múslimar í yfirgnæfandi meiri-
hluta á meðal landsmanna.
„Nú er nauðsynlegt að sigurveg-
arar kosninganna hefji viðræður
og út úr þeim komi ríkisstjórn
sem nær árangri og hefur breið-
an stuðning á meðal landsmanna,
forðist þau mistök sem gerð hafa
verið í fortíðinni og opni nýja
sýn til betri framtíðar fyrir alla
Íraka,“ sagði al Sistani í yfirlýs-
ingu sem Ahmed al Safi, fulltrúi
hans, las upp í hinni helgu borg
Karbala í gær.
Barack Obama Bandaríkja-
forseti hafði daginn áður ýjað að
sömu gagnrýni á al Maliki og skor-
að á hann að taka tillit til hags-
muna fleiri þjóðarbrota en sjía-
múslima einna.
Sistani hefur mikil áhrif á meðal
sjía-múslima og hefur ítrekað
verið rödd hófsemdar í allri þeirri
ólgu og átökum sem hrjáð hafa
landsmenn árum saman.
Rödd hans hefur mikið að segja
og gæti ráðið úrslitum varðandi
þróun mála á næstunni. Í staðinn
fyrir að kynda undir ólgunni og
hvetja sjía-múslima í suðaustur-
hluta landsins til að grípa til
vopna og hefnda, þá hvetur hann
alla Íraka til að standa saman gegn
öfgamönnum.
Öfgasamtökin Íslamskt ríki í
Írak og Sýrlandi hafa á skömmum
tíma náð vestan- og norðvestan-
verðum hluta Íraks á sitt vald.
Óljóst er hvort samtökin hafa
teljandi stuðning á meðal súnní-
múslima, sem eru í meirihluta á
þessum svæðum landsins.
Stjórnarhættir al Malikis virð-
ast hafa átt einhvern þátt í því hve
hratt hinir herskáu súnní- múslimar
náðu svæðum súnnía á sitt vald.
Stjórnmálabandalag al Malikis,
Lagablokkin, hlaut flest þingsæti
í kosningunum 30. apríl. Hann
verður þó ekki forsætisráðherra
þriðja kjörtímabilið í röð nema
hann tryggi sér nægan stuðning
á þinginu. Óvíst er að það takist,
nú þegar hann er farinn að sæta
gagnrýni innan frá úr röðum sjía-
múslima. gudsteinn@frettabladid.is
Þrýst á al Maliki
forsætisráðherra
Andlegur leiðtogi sjía-múslima í Írak gagnrýnir forsætisráðherra landsins og vill
að mynduð verði betri stjórn sem tekur hagsmuni annarra en sjía með í reikning-
inn. Daginn áður hafði Obama Bandaríkjaforseti haft uppi svipaða gagnrýni.
ALI AL SISTANI Tvær konur í Bagdad við veggmynd af Ali al Sistani, æðsta ajatolla
sjía-múslima í Írak. NORDICPHOTOS/AFP
Nú er nauðsynlegt að
sigurvegarar kosninganna
hefji viðræður og út úr
þeim komi ríkisstjórn sem
nær árangri og hefur
breiðan stuðning.
Ali al Sistani,
andlegur leiðtogi sjía-múslima í Írak.
VELFERÐARMÁL „Reynslan hefur
verið sú að umsóknum um aðstoð
hefur fækkað á sumrin. Sá dagur
er ekki enn kominn á þessu sumri,“
segir Vilborg Oddsdóttir, félagsráð-
gjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Skýringuna telur hún meðal annars
vera þá að nú sé að koma nýtt lyfja-
ár, eins og hún orðar það.
„Margir leystu út lyfin sín fyrir
4. maí í fyrra þegar nýtt greiðslu-
þátttökukerfi vegna kaupa á
lyfjum tók gildi. Þeir eru kannski
að byrja upp á nýtt núna í júní. Það
sem af er þessum mánuði hafa jafn
margir sótt um og allan apríl.“
Hægt er að sækja um styrk hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar vegna
kaupa á lyfjum vegna sýkingar,
óvæntra veikinda og breytinga á
lyfjagjöf. „Jafnframt aðstoðum við
fólk við að borga fyrstu greiðsluna
vegna kaupa á öðrum lyfjum á nýju
lyfjaári,“ greinir Vilborg frá.
Sem fyrr hafa margir fengið
aðstoð við að greiða fyrir sumar-
búða dvöl barna eða aðrar tóm-
stundir að sumarlagi. „Við gerðum
auk þess svolítið öðruvísi í ár. Þar
sem við leggjum áherslu á að gefa
allri fjölskyldunni tækifæri til að
upplifa eitthvað skemmtilegt saman
var ákveðið að bjóða fjölskyldum
dvöl í sumarbúðum í samstarfi við
Hjálpræðisherinn. Nýlega dvaldi 21
fjölskylda sér að kostnaðarlausu í
viku á Úlfljótsvatni. Þetta var ótrú-
lega vel heppnað. Við höfum einnig
veitt styrki til að öll fjölskyldan geti
farið saman í til dæmis Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn, á leiksýningu
eða í bíó svo eitthvað sé nefnt.“ - ibs
Ekkert lát á umsóknum til Hjálparstarfs kirkjunnar vegna lyfjakaupa og tómstunda í sumar:
Veita styrk fyrir ferð í bíó og húsdýragarð
VILBORG ODDSDÓTTIR „Við höfum
einnig veitt styrki til að öll fjölskyldan
geti farið saman í til dæmis Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HÚSNÆÐISMÁL Greiningardeild Íslandsbanka spáir
áframhaldandi hækkun húsnæðis- og leiguverðs
næsta árið.
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur
hækkað um 9,6 prósent síðastliðið ár. Þó lækkaði
húsnæðisverð um 0,1 prósent í maí.
Hækkunin stafar af launahækkunum, góðu
atvinnuástandi, fólksfjölgun, lágu raunvaxtastigi og
aukinni eftirspurn ferðamanna eftir leigu íbúðum ef
marka má greiningardeildina.
Velta á húsnæðismarkaði hefur aukist um 21,6
prósent á fyrstu mánuðum ársins miðað við sama
tímabil í fyrra. Þó er veltan talsvert minni en hún
var á árunum fyrir hrun.
Greiningardeild Íslandsbanka bendir á að hækk-
un fasteignaverðs undanfarið umfram verðbólgu
og verðtryggð íbúðalán sé umtalsverð búbót fyrir
eigendur fasteigna.
Fjárfestingar í húsnæði jukust um 31 prósent á
fyrsta ársfjórðungi. Fulltrúar Íslandsbanka telja þó
ekki að bóla sé á fasteignamarkaði heldur séu fjár-
festingarnar fremur afleiðing þess að lítið hefur
verið byggt frá bankahruni. - ih
Fasteignaverð hefur hækkað um 9,8 prósent síðastliðið ár og velta aukist:
Spá hækkun á húsnæðisverði
HÆKKUN Í KORTUNUM Húsnæðisverð mun fara hækkandi
ef marka má greiningardeild Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Embætti ríkissak-
sóknara bárust í gær rannsóknar-
gögn frá lögreglu er varða leka á
minnisblaði um hælisleitandann
Tony Omos til fjölmiðla.
Í framhaldinu tekur ríkissak-
sóknari ákvörðun um hvort frek-
ari rannsóknar sé þörf eða hvort
ákæra verði lögð fram. Lögregla
hefur sagt grun um að starfs-
maður ráðuneytisins hafi lekið
opinberum gögnum. Vegna anna
segir ríkissaksóknari niðurstöðu
ekki að vænta á næstunni. - ih
Óákveðið hvort verður ákært:
Lekamálið sent
til saksóknara