Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 48
| ATVINNA | REYKJAVIK LIGHTS HOTEL YFIRÞERNA ÓSKAST Yfirþerna hefur yfirumsjón með þrifum hótelsins. Einstaklingur þarf að geta unnið sjálfstætt, hafa ríka þjónustulund og stjórnunarhæfileika. Eingöngu reyklausir aðilar koma til greina. Umsóknarfrestur er til 30/06 Umsóknir sendist á netfangið: manager@reykjaviklights.is kopavogur.is Kópavogsbær Leiðbeinandi í handavinnu Félagsmiðstöðvar eldri borgara óska eftir leiðbeinanda í handavinnu Félagsmiðstöðvarnar Gjábakki, Gullsmári og Boðinn eru félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara í Kópavogi. Fjölbreytt tómstunda- og félagsstarf fer fram í félagsmiðstöðvunum. Helstu verkefni leiðbeinenda er að skipuleggja og veita leiðsögn á handavinnu, annast innkaup, uppsetning vorsýninga og stuðla að nýbreytni í tómstundastarfinu í samstarfi við forstöðumann. Ráðningartími og starfshlutafall Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst. Um er að ræða hlutastörf og/eða fullt starf. Hæfniskröfur Reynsla og kunnátta á sviði handavinnu Hugmyndaríki og jákvæðni. Hæfni í mannlegum samskiptum. Frekari upplýsingar Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs. Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí 2014. Nánari upplýsingar veita forstöðumenn félagsmiðstöðvanna: Gjábakki 665-2922, Gullsmári 665-2923 og Boðinn 665-292. Einnig er hægt að leita upplýsinga á frístundadeild Kópavogsbæjar 570-1500. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is Vélaverkstæði og Innflutningsfyrirtæki óskar eftir ungum og hressum starfsmanni í lager störf. Bílpróf er skilyrði. Þarf að geta hafið störf strax. Velaverkstaedi@gmail.com Stöður yfirlæknis og heimilislæknis við heilsugæsluna í Fjarðabyggð LAUSAR LÆKNASTÖÐUR HJÁ HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS: Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða tvo lækna til starfa á heilsugæslusviði, með búsetu í Fjarða- byggð. Æskilegt er sérnám í heimilislækningum. Annars vegar er um að ræða yfirlæknisstöðu og hins vegar stöðu heimilislæknis, báðar við heilsugæslu Fjarðabyggðar. Læknar með aðrar skyldar sérgreinar og almennir læknar eru einnig hlutgengir. Um er að ræða fjölbreytt störf í hópi lækna sem skipta milli sín verkefnum, starfssvæðum og vöktum á Mið-Austurlandi. Æskilegt starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur einnig til álita. Laun eru greidd skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og Læknafélags Íslands hins vegar. Umsóknarfrestur er til 26. júlí nk. en stöðurnar eru lausar frá 1. september 2014, eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknum skal skilað til HSA á eyðublöðum er fást á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is. Nánari upplýsingar veita: Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga HSA, s. 470-3052 & 860-6830, netf. petur@hsa.is. Emil Sigurjónsson, forstöðumaður mannauðssviðs HSA, s. 470-3053 & 895-2488, netf. emils@hsa.is. Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Umdæmissjúkrahús fyrir Austurland er í Neskaupstað. Stofnunin þjónar alls um 11.000 íbúum frá Bakkafirði til Djúpavogs, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Við leikskólann Óskaland Finnmörk 1, Hveragerði er laus staða deildarstjóra og leikskólakennara Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í faglegu starfi leikskólans. Staða deildarstjóra: Um er að ræða 100 % stöðu á deild fyrir 3ja til 6 ára Stöður leikskólakennara: Um er að ræða 100 % stöður á mismunandi deildum. Meginverkefni: • Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna undir stjórn deildarstjóra Menntun og hæfniskröfur: • Leikskólakennararéttindi eða sambærileg réttindi • Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja • Áhugi og hæfni í starfi með börnum Áhugasamir sendi umsóknir á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar Sunnumörk 2, 810 Hveragerði. Til greina kemur að ráða fólk með aðra reynslu/réttindi. Frekari upplýsingar veitir Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri í síma: 8656297 eða í tölvupósti á netfangið: oskaland@hveragerdi.is Umsóknarfestur er til 10. júlí n.k. Umsóknareyðublöð má finna á vef Hveragerðisbæjrar: www.hveragerdi.is Starfið hentar jafn körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttar- félags. Hefur þú áhuga á heilsueflandi skólastarfi? Allir leikskólar Skóla ehf. starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdóms- samfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Við leitum að samstarfsfólki sem: • Er tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir og hugmyndafræði leikskólans • Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn. Skólarnir fylgja sameiginlegum matseðli í takti við Næringar- stefnu Skóla ehf. en hlaut það verkefni tilnefningu til Orðsporsins 2014. Kjör kennara eru samkvæmt sérsamningi Skóla við Félag leikskólakennara. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um! Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ Auglýsir eftir: • Deildarstjóra í 100% starf Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með um 60 börn. Nánari upplýsingar veitir Þóra Sigrún Hjaltadóttir skólastjóri, sími 426-5276. Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://skolar.is/Starf/ Heilsuleikskólinn Kór, Kópavogi Auglýsir eftir: • Deildarstjóra í 100% starf • Leikskólakennara í 100% starf eða hlutastarf • Aðstoðarmatráði í 75% starf Heilsuleikskólinn Kór er sex deilda leikskóli með um 120 börn. Nánari upplýsingar veitir Bjarney K. Hlöðversdóttir skólastjóri, sími 570-4940. Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://skolar.is/Starf/ Heilsuleikskólar Skóla ehf. eru: Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík. 21. júní 2014 LAUGARDAGUR10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.