Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 74

Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 74
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 38 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA RUNÓLFSDÓTTIR Lönguhlíð 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 18. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 30. júní kl. 15.00. Einar Örn Stefánsson Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Orri Guðjohnsen Halldóra Eyrún Bjarnadóttir Kristinn Þór Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, dóttur og systur, HRUNDAR GUNNARSDÓTTUR Suðurgötu 56, Hafnarfirði. Einar Magnús Magnússon Bjarney Gunnarsdóttir Wedholm Gunnar Vilhelmsson og Arnar Gunnarsson „Húsið var byggt árið 1939 þegar Gunnar sneri heim frá Danmörku með þann draum að byggja evrópskan herragarð í íslenskri sveit,“ segir Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, en Gunnarshús á Skriðuklaustri fagnar 75 ára afmæli á sunnudaginn. „Hann hafði búið í Dan- mörku í 30 ár og hugmynd hans var að flytja í Fljótsdalinn, þar sem hann er fæddur, til að stunda stórbúskap,“ segir Skúli en húsið sem Gunnar lét byggja er 350 fermetrar að stærð. Það var vinur hans, Fritz Höger, sem teiknaði herragarðinn og um vorið 1939 var hafist handa við að byggja húsið. „Frá júní og fram í október unnu að jafnaði tuttugu til þrjátíu manns á dag að húsbyggingunni og var hún þá nán- ast fullkláruð,“ segir Skúli en sam- kvæmt vinnudagbók frá þessum tíma unnu 64 einstakl- ingar í um 33.000 vinnustundir að húsinu á þessum fáu mánuðum. Gunnar og kona hans, Franzisca, fluttu inn fyrir jól um veturinn. „Á þessum tíma hófst síðan heimsstyrjöld og það breytti svolítið aðstæðunum og fór illa með þenn- an draum Gunn- ars um stórbúskap,“ segir Skúli. „Þjóðfélagið fór í gegnum miklar breytingar og fólk flutti úr sveitunum.“ Á þessum tíma hafði vélvæð ingin ekki náð fótfestu á Íslandi og því þurfti mikið af vinnufólki til þess sjá um stórbúskap af því tagi sem Gunnar hafði hugsað sér. „Eftir stendur að skáldið gaf íslensku þjóðinni eignina skuldlaust og þar af leiðandi stendur það sem minnisvarði um stórhug skáldsins,“ segir Skúli en hjónin bjuggu aðeins í níu ár á Skriðuklaustri og gáfu íslensku þjóðinni jörðina og allan húsa- kost árið 1948. Áratugina eftir það var rekin tilraunastöð í landbúnaði á staðn- um en frá árinu 2000 hefur Gunnars- stofnun stýrt þar menningar- og fræða- setri í minningu Gunnars skálds. Eins og áður hefur komið fram þá verður Gunnarshús 75 ára á sunnudaginn og ætlar Gunnarsstofnun að halda upp á það í húsinu. Afhjúpað verður skilti um bygginguna og opnuð sölubúð í einu herbergi hússins þar sem meðal ann- ars verða til sölu minjagripir um húsið. Dagskráin hefst klukkan 14.00 og eru allir velkomnir. baldvin@frettabladid.is Stórhuga skáldið Þegar skáldið Gunnar Gunnarsson sneri aft ur frá Danmörku árið 1939 langaði hann til þess að byggja evrópskan herragarð í íslenskri sveit og valdi Fljótsdal. MERKISATBURÐIR 1377 Ríkharður 2. tók við sem Englandskonungur. 1621 27 tékkneskir aðalsmenn voru teknir af lífi á torgi í Prag vegna þátttöku sinnar í orrustunni við Hvítafjall. 1926 Jón Helgason biskup fékk að gjöf gullkross með keðju frá prestum landsins, en hann varð sextugur þennan dag. Krossinn skyldi vera embættistákn og ganga til eftirmanna hans á bisk- upsstóli. 1964 Keflavíkurganga á vegum hernámsandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur. 1966 Um 140 lögregluþjónar skemmtu Reykvíkingum með söng af tröppum Menntaskólans í Reykjavík, en haldið var mót norrænna lögreglukóra. 1973 Stofnaður var þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum frá Dettifossi og niður fyrir Ásbyrgi. Þjóðgarðurinn er um 150 ferkílómetrar að stærð. 1980 Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Óðal feðranna, var frumsýnd. 1991 Perlan í Öskjuhlíð var vígð. 2000 Síðari Suðurlandsskjálftinn reið yfir. Hann mældist 6,6 á Richter. 2009 Grænland fékk aukna sjálfsstjórn. Grænlenska varð opin- bert tungumál. Seinni heimsstyrjöldin var útbreidd styrjöld, sem hófst í Evrópu en breiddist síðan út til annarra heimsálfa og stóð í tæp sex ár. Meirihluti þjóða heims kom að henni með einhverjum hætti og var barist á vígvöllum víða um heim. Stríðið var háð á milli tveggja ríkjahópa. Annars vegar var um að ræða bandalag Bandaríkjanna, Breska samveldisins, Kína og Sovétríkjanna auk útlægrar ríkisstjórnar Frakklands og fjölda annarra ríkja sem gekk undir nafn- inu bandamenn. Hins vegar var bandalag Ítalíu, Japans og Þýskalands auk fleiri ríkja sem gekk undir nafninu öxulveldin. Sumir vilja meina að stríðið hafi hafist af alvöru þegar Þýskaland réðst inn í Pólland í september árið 1939. Í kjölfar þess lýstu Frakkland og Bretland yfir stríði á hendur Þjóðverjum. Þrátt fyrir að hafa lýst yfir stríði réðust hvorki Frakkland né Bretland í hernaðarlegar aðgerðir gegn Þýskalandi. Átta mánuðum síðar, eða 10. maí 1940, réðust Þjóðverjar inn í Frakkland með stórtækum hernaðaraðgerðum sem ýttu Bretum úr landinu og neyddu Frakka til að gefast upp þennan dag fyrir 74 árum. ÞETTA GERÐIST: 21. JÚNÍ 1940 Frakkland gafst upp fyrir Þýskalandi RISASTÓRT Ef húsið færi í fasteignamat í dag væri það um það bil 700 fermetrar. Eftir stendur að skáldið gaf íslensku þjóðinni eignina skuldlaust og þar af leiðandi stendur það sem minnisvarði um stórhug skáldsins. GLÆSILEGT HÚS Gunnar lét byggja húsið þegar hann sneri heim frá Danmörku árið 1939. TÍMAMÓT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.