Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 80
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 44
MENNING
Fólk lét ekki rigningu á sig fá
heldur fjölmennti í Hljómskála-
garðinn á kvenréttinda daginn
til að vera við opnun fyrsta
höggmyndagarðs kvenna á
Íslandi. Hugmyndina að honum
átti reyndar karlmaður, Hafþór
Ingvarsson, safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur, og skilaði
verkinu í höfn.
Í garðinum eru verk eftir sex
konur sem voru frumkvöðlar í
höggmyndalist á Íslandi, þær
Gunnfríði Jónsdóttur, Nínu
Sæmundsson, Tove Ólafsson,
Þorbjörgu Pálsdóttur, Ólöfu
Pálsdóttur og Gerði Helga-
dóttur. Ólöf er sú eina þeirra
sem er á lífi og mætti hún til
athafnarinnar.
Að göngunni lokinni fór Auður
Styrkársdóttir fyrir kvöldgöngu
um kvennaslóðir í Kvosinni og
Sóley Tómasdóttir lagði blóm-
sveig að leiði Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur. - gun
Perlufestin í
Hljómskálagarðinum
Nýr höggmyndagarður var vígður í Hljómskálagarðinum 19. júní og honum
gefi ð nafnið Perlufestin. Þar eru verk eft ir sex upphafskonur höggmyndalist-
arinnar á Íslandi. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri vígði garðinn og opinberaði
nafn hans. Fjöldi fólks var viðstaddur.
VIÐ VÍGSLUNA Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari er eina konan sem enn er á lífi af þeim sem
eiga verk í garðinum. Hér er hún með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MAÐUR OG KONA Verk eftir Tove Ólafsson (1909-1992).DÆTURNAR Verk eftir Þorbjörgu Pálsdóttur (1919-2009), systur
Ólafar.
AFTUR Í TJÖRNINA
Hafmeyjan eftir
Nínu Sæmundson
(1892-1962) var
sprengd í Tjörninni
á sínum tíma.
Smáralindin gaf
Reykja víkurborg
þessa.
Nj
óttu
með v
eitingum frá Aal
to Bi
str
o
Sýningin Ummerki sköpunar sem
opnuð er í Hafnarborg í dag kynnir
aðföng safnsins síðustu tíu ára en
verkin eru unnin á árunum frá
1952 til 2014.
Ólíkar stefnur koma við sögu en
sýningin er eins konar ferðalag um
list samtímans, allt frá formfestu
módernismans í verkum Harðar
Ágústssonar og Eiríks Smith frá
árinu 1952 til nýrra, leikrænna
myndbandsverka þeirra Ilmar
Stefánsdóttur og Sigurðar Guð-
jónssonar.
Tæplega þrjátíu listamenn
eiga verk á sýningunni, þeirra á
meðal eru Davíð Örn Halldórsson,
Georg Guðni, Hildur Bjarnadóttir,
Hreinn Friðfinnsson, Ólafur Elías-
son, Sirra Sigrún Sigurðardóttir og
Sigrún Guðjónsdóttir. - gun
Aðföng síðustu ára
Valin verk úr safneigninni eru á sumarsýningu
Hafnarborgar í Hafnarfi rði sem opnuð er í dag.
Á SÝNING-
UNNI Þetta
er eftir Eirík
Smith og
verkið fyrir
neðan eftir
Hörð Ágústs-
son.
SKJÖLDUR Gestir
skoða leiðbeiningar-
nar um verkin.