Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 82
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 46 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2014 Tónleikar 12.00 Hannfried Lucke leikur á hádegis tónleikum á Klais-orgel Hall- grímskirkju. Aðgangseyrir 1.700 kr. 14.00 Pikknikk tónleikaröð Norræna hússins skartar frábæru tónlistarfólki á hverjum laugardegi í sumar við gróðurhús Norræna hússins. Veitinga- sala verður úti á vegum Aalto Bistro. Í dag spilar Þórunn Antonía. 14.00 Balkanbandið frá Býsans flytur þjóðlög frá Balkanskaganum í Sól- heimakirkju. Sú tónlist er annáluð fyrir mikinn tilfinningahita, stuð og ósamhverfar takttegundir og er gríðarlega krefjandi fyrir þá sem hana flytja. 15.00 Skuggatríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar kemur fram á tónleikum veitingahússins Jómfrúin við Lækjargötu. Sérstakur gestur í nokkrum lögum verður söngkonan Ragnheiður Gröndal. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er ókeypis. 17.00 Perlur íslenskra sönglaga í Hörpu. Á tónleikum fá áheyrendur að kynnast sígildri íslenskri tónlist. Fluttar verða perlur íslenskra söng- laga, þjóðlög, sálma og ættjarðar- söngva. Listrænn stjórnandi tón- leikanna er óperusöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson. 19.30 Þýska djasssveitin Jugend- JazzOrchester Nordrhein-Westfa- len kemur fram í Fríkirkjunni ásamt Sigurði Flosasyni saxófón- leikara. 20.00 Sixties og Audio Nation koma fram á Útlaganum á Flúðum. 20.00 Tónleikar Eivarar á Græna Hattinum eru einstök upplifun. Tónlist hennar og útgeislun skila sér fullkomlega á þessum litla stað sem Græni Hatturinn er. Miða- verð er 3.800 krónur og miða má nálg- ast á heimasíðu midi.is. 21.00 Skúli Sverris- son og Óskar Guð- jónsson koma fram í Mengi, Óðins- götu. Þeir hafa unnið saman í tónlist í meira en áratug, plöturnar þeirra The Box Tree og Eftir Þögn hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda auk þess sem báðar plöturnar fengu Íslensku tónlistar- verðlaunin þegar þær komu út. 23.00 Pálmi Hjaltason leikur og syngur á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka- stíg 8. Aðgangur er ókeypis. Fræðsla 12.00 Sýnatökudagur hafsins er heimsviðburður sem gengur út á það að vísindamenn safna á sama tíma sýnum úr hafinu á sumarsólstöðum. Þessar sýnatökur munu aðstoða vísindamenn sem og almenning allan að skilja betur hvernig hafsvæði heimsins virka og þau flóknu lífríki sem þar er að finna. Nánari upp- lýsingar á matis.is. 18.15 Sumarsólstöðuganga í Viðey. Áhugaverðir ræðumenn munu fjalla um siðina í kringum sólstöður, hefðir, söguna, heimspekina og tengslin milli náttúru og manns. Auk þess verður í eyjunni staddur temeistarinn Adam Wojcinski sem verður með sólarhringslanga teviðhöfn við Friðarsúlu Yoko Ono. Siglt verður frá Skarfabakka kl. 18.15 fyrir þá sem vilja fá sér kvöldverð í Viðeyjarstofu fyrir göngu og svo aftur kl. 19.30. Gangan hefst þegar allir eru komnir í land í Viðey eða um kl. 20.00 og siglt er til baka um kl. 23.30. Sýningar 12.00 Opnun sýningar á völdum verkum úr safneign Hafnarborgar. Verkin eru unnin á árunum frá 1952 til 2014. Yfirskrift sýningarinnar er Ummerki sköpunar og beinir sjónum að safninu. 14.00 Myndlistarkonan Ishbel Macdo- nald sýnir málverk frá Reykjavík í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5. Sýningin nefnist Sveitin í Borginni. Hátíðir 11.00 Sólstöðuhátíð á Kópaskeri. Tíðir í Bragganum, bátar, leiktæki og fleira við Klifatjörn, söguganga um Kópasker, fatasala Rauða Krossins í Þingeyjarsýslum, dansleikur með Hvanndalsbræðrum í Pakkhúsinu klukkan 22.00, aðgangseyrir 3.000 krónur. Uppákomur 10.00 Opinn útsýnispallur við Skjálftavatn í Kelduhverfi. Fulltrúar frá Norðurhjara– ferðaþjónustusam- tökum segja frá tilurð pallsins og frekari hugmyndum. Málþing 10.00 Bókmennta- og listfræða- stofnun Háskóla Íslands efnir til minningarmálþings um Matthías Viðar Sæmundsson, sem starfaði sem dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Matthías Viðar lést fyrir aldur fram. Málþingið er í fyrir- lestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Markaðir 12.00 Comic/VHS/DVD/vínylmarkaður á BAST við Hverfisgötu. Teiknimynda- sögur og gamlar spólur á góðu verði. 12.00 Bíó Paradís mun hýsa reglulega flóamarkaði í sumar, líkt og síðasta sumar. Markaðirnir slógu í gegn í fyrra, voru vel sóttir og mikil og góð stemmning myndaðist. Fyrsti flóamarkaður sumarsins verður í dag. Veitingasalan verður að sjálfsögðu opin og hægt verður að gæða sér á brakandi bíópoppi eða fá sér rjúkandi kaffibolla, ískalda kók eða bjór á meðan maður gramsar í öllu dótinu. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2014 Tónleikar 16.00 Jón Ólafsson tónlistarmaður leikur á píanó og syngur á fjórðu stofutónleikum Gljúfrasteins. Jón flytur lög sín við íslensk ljóð m.a. eftir Halldór Laxness, Jónas Guð- laugsson, Stefán Mána og Hallgrím Helga- son. Jón Ólafsson hefur verið í framlínu íslenskrar tónlistar um langa hríð og verið mikilvirkur bæði sem höfundur, flytjandi og upptökustjóri ýmissa listamanna. Sem lagahöfundur hefur hann verið farsæll og flestir ættu að kannast við lög hans eins og Alelda, Horfðu til himins, Líf og Sunnudagsmorg- unn. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. 17.00 Hannfried Lucke leikur á stórtónleikum á Klais-orgel Hall- grímskirkju á Alþjóðlegu orgelsumri 2014. Aðgangseyrir: 2.500 krónur. 17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og kynnir lög af hljómplötum á Ob-La-Dí- Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. Sýningar 10.00 Hreindýrasýn- ing í Flóanum í Hörpu. Miðaverð er 1.900 krónur og miða má nálgast á heimasíðu midi.is. 14.00 Opnuð verður í Populus tremula á Akureyri sýning sjö listakvenna sem dvalið hafa í mánuð í vinnustofu Textílseturs Íslands á Blönduósi. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Lightly Acquainted, getur að líta afrakstur vinnu þeirra þennan tíma þar sem þræðir þeirra hafa legið saman í samtölum og samveru á framandi slóðum. 19.00 How to become Icelandic in 60 min- utes í Kaldalóni í Hörpu. Sýning á ensku flutt af Bjarna Hauki Þórssyni. Sýningin er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt verður að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Sigurður Sigurjónsson leikstýrir. Miðaverð er 4.200 krónur og miða má nálgast á heimasíðu midi.is. 20.00 Blam! í Borgarleikhúsinu. Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir vökulu auga siðblinds yfirmanns. Í hvert sinn sem hann lítur undan, nýta þeir tækifærið til að blamma: Að endurgera uppáhalds senurnar sínar úr hasarmyndum. Þegar yfirmaðurinn fer að blamma með þeim færist fjör í leikinn og við tekur stór- hættuleg saga sem leikin er á ógnarhraða og krefst ofurmannlegra átaka. Miðaverð er 4.750 krónur og miða má nálgast á heimasíðu midi.is. Söfn 12.00 Í tilefni af tilnefningu Þjóðminja- safns Íslands til Íslensku safnaverð- launanna 2014 er aðgangur að safninu ókeypis. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og er Þjóðminjasafnið tilnefnt fyrir dagskrá í tilefni 150 ára afmælis safnsins á síðasta ári en hátíðarhöldin hófust snemma á árinu 2013 með útgáfu á kynn- ingarblaði sem dreift var á hvert heimili í landinu. Hátíðardagskrá, sjónvarps- þáttur um starfsemina, vandaðar sýningar, bókaútgáfa og málþing var meðal þess sem boðið upp á í tilefni afmælisins. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. „Við erum að prófa þetta í fyrsta skipti í Myndlistaskólanum að kenna unglingum að nálgast heimildarmyndaformið á skapandi hátt,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir, myndlistar- og kvikmyndagerðarkona, en hún mun kenna ungu fólki á aldrinum 13-16 ára skapandi heimildar- myndagerð á nýju námskeiði í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Ragn- heiður hlakkar mikið til að vinna með unga fólkinu. „Krakkar á þess- um aldri eru mjög klárir og uppfinningasamir. Þetta verður eflaust mjög skemmtilegt.“ Námskeiðið hefst á mánudag og stendur út vikuna en kennslutími verður frá kl. 13-16. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans, myndlistaskolinn.is. - ka Unglingar eru uppfi nningasamir Ragnheiður Gestsdóttir, myndlistar- og kvikmynda- gerðarkona, kennir skapandi heimildamyndagerð fyrir ungt fólk í Myndlistaskólanum í Reykjavík. NÝTT NÁMSKEIÐ Myndlistaskólinn í Reykjavík býður í fyrsta skipti upp á námskeið af þessu tagi fyrir ungt fólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.