Fréttablaðið - 21.06.2014, Page 94

Fréttablaðið - 21.06.2014, Page 94
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 58 „Þetta er saga um ást sem er sprott- in af hugarórum og það að taka og forðast ákvarðanir. Ég leik stúlku sem býr á heimili fyrir vanfærar táningsstúlkur og er í basli með að stofna til sambands við föður ófædda barnsins á meðan hún venst návist nýrrar manneskju á heim- ilinu,“ segir leikkonan Indía Salvör Menuez sem búsett er í New York. Indía leikur eitt af aðalhlutverk- unum í kvikmyndinni Uncertain Terms úr smiðju kvikmyndagerð- armannsins Nathans Silver sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni í Los Angeles. Indía hefur fengið góða dóma fyrir frammistöðu sína í hlutverki Ninu og segir Bob Strauss, gagnrýnandi Los Angeles Daily News, að Indía negli flókn- asta hlutverkið í myndinni. Segir hann jafnframt að hún sé eitt efni- legasta nýstirnið á hátíðinni. Katie Walsh hjá Indiewire segir Indíu gullfallega og dularfulla í hlut- verki sínu. Leikkonan unga er í skýjunum yfir viðtökunum. „Ég er þakklát fyrir tækifærið sem Nathan gaf mér og treysti mér til að leika Ninu. Það erfiðasta fyrir mig þegar ég leik í mynd er að horfa á hana. Það er erfið og ólýsanleg tilfinning að sjá sjálfa mig í öðru fólki og í öðru lífi. Ég efast alltaf um frammistöðu mína því ég get aldrei horft á sjálfa mig. En þegar öllu er á botninn hvolft verð ég að treysta því að við endum þar sem við eigum að enda. Fókus- inn minn er á að vera til staðar og gera mitt besta og það er góð til- finning að finna fyrir að heimur- inn tekur vel á móti verkinu þegar myndin er sýnd,“ segir hún. Indía er nú við tökur á sjálf- stæðri kvikmynd með leikstjór- anum Luigi Campi þar sem hún leikur aðalhlutverkið. Þá vinnur hún einnig mikið í listahópnum Luck You sem hún stofnaði ásamt öðrum þegar hún var fimmtán ára. Hún samdi einnig handrit með leik- stjóranum Maiko Endo en sú mynd er í eftirvinnslu núna og tók upp plötu með vini sínum Brian Close sem kemur út á næstunni. Það er því nóg að gera hjá þessari upp- rennandi listakonu. En hvernig lítur framtíðin annars út hjá Indíu? „Framtíðin er full af óvæntum uppákomum, hreyfingu og upp- lifunum. Í átt að hlutverkum sem ýta mér á nýjan stað þar sem ég fæ tækifæri til að vinna með hæfi- leikaríku fólki sem er traustsins vert. Mér finnst ég vera takmarka- laus þegar ég horfi fram á veginn.“ liljakatrin@frettabladid.is Lofuð af bandarískum gagnrýnendum Indía Salvör Menuez leikur í kvikmyndinni Uncertain Terms sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni í Los Angeles. Bandarískir fj ölmiðlar kalla hana efnilegasta nýstirnið á hátíðinni. Indía segist ekki geta horft á sjálfa sig á hvíta tjaldinu en er þakklát fyrir tækifærið. Indía er ein þriggja kvenna sem prýða nýjasta plötuumslag tónlistarmannsins Pharrells Williams fyrir plötuna Girl ásamt Pharrell sjálfum. Indía segir reynsluna hafa verið sérstaka. „Þetta var súrrealískt og kom til á óvæntan og náttúrulegan hátt þar sem það var vinur minn sem tók myndina og mælti með mér. Þetta var tækifæri til að upplifa eitthvað sem ég gæti ekki upplifað á annan hátt og að hitta einhvern sem er að móta menninguna í gegnum list sína í dag. Ég get ímyndað mér að barnabörnin mín hlæi að þessu í framtíðinni,“ segir Indía glöð í bragði. Hún segist taka að sér fyrirsætuverkefni við og við þótt það sé ekki ástríða hjá henni. „Ég byrjaði í fyrirsætubransanum til að afla mér tekna þannig að það er vinna sem hefur aldrei verið mér kær. En, þótt það sé auðvelt að gera grín að því í samanburði við annað sem ég vinn við, elska ég samt að vinna með og læra af ótrúlegum ljós- myndurum og vinna með listamönnum í tískuheiminum. Ég hef þurft að afþakka verkefni oftar en ég vildi en mér finnst þetta starf alltaf þess virði þegar ég helga mig verkefni.“ Súrrealískt að lenda á plötuumslagi Pharrells DULARFULL Indía leikur Ninu í kvikmyndinni Uncertain Terms. Ég efast alltaf um frammistöðu mína því ég get aldrei horft á sjálfa mig. En þegar öllu er á botninn hvolft verð ég að treysta því að við endum þar sem við eigum að enda. Indía Salvör Menuez JÓNSI Í UPPÁHALDI Plötusnúðurinn Tiësto er í viðtali um ferilinn á vefsíðunni Papermag en Tiësto er einn farsælasti plötusnúð- urinn í heiminum í dag. Í viðtalinu segir hann að Jónsi, söngvari hljómsveit- arinnar Sigur Rósar, sé einn af sínum uppáhaldssöngv- urum. Aðrir listamenn sem plötusnúðurinn heldur upp á eru til dæmis Tegan and Sara, Nelly Furtado og Bloc Party. - lkg BOLTABARN KOMIÐ Í HEIMINN Knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir og handboltakappinn Einar Örn Guðmundsson eignuðust sitt fyrsta barn, snáða, í gærmorgun. Drengur- inn var fimmtán merkur og 53 sentí- metrar og skrifar Einar á Facebook að hann sé efni í góðan handbolta- eða fótbolta- mann, enda á hann ekki langt að sækja boltafimi. - lkg „Hann kúkaði alls staðar, í stríðum straumum, það var eins og flóð … gleði- legan mæðradag.“ NÝBAKAÐA MÓÐIRIN OLIVIA WILDE UM MÆÐRADAGINN Í CENTRAL PARK Í NEW YORK Í VIÐTALI VIÐ SPJALL- ÞÁTTAKÓNGINN DAVID LETTERMAN. ATHAFNASAMIR BRÆÐUR Tónlistarmaðurinn Einar Töns- berg semur tónlistina í nýrri írskri teiknimyndaþáttaröð sem kallast Puffin Rock. Sögumaður verður írski leikarinn Chris O’Dowd en serían fjallar um lundafjölskyldu sem býr á lítilli eyju skammt undan Írlandi. Einar er ekki sá eini í sinni fjölskyldu sem stendur í ströngu en bróðir hans, listamaðurinn Örn Töns- berg, sá um að skreyta fyrir tónlistarhátíðina Secret Solstice. Hann og félagi hans máluðu á annað hundrað skilta fyrir hátíðina sem er nú í fullum gangi. - fbj

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.