Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 4

Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 4
25. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá MILDIR DAGAR eru fram undan en væta sunnan- og vestanlands. Norðaustan til verður bjart með köflum á morgun og föstudag en búast má við síðdegisskúrum. 13° 4 m/s 12° 3 m/s 13° 6 m/s 11° 11 m/s Fremur hægur vindur víðast hvar. Hæg breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 27° 33° 20° 23° 19° 15° 23° 19° 19° 24° 19° 27° 28° 36° 25° 19° 20° 20° 11° 5 m/s 11° 5 m/s 15° 6 m/s 14° 3 m/s 14° 2 m/s 12° 3 m/s 8° 7 m/s 13° 13° 13° 12° 11° 14° 18° 18° 17° 16° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN Talið er eðlilegt að stjórnarskráin geymi meginreglur um auðlindir Íslands. Til grundvallar liggur sú megin- hugsun að nýting náttúruauðlinda sé í þágu þjóðarinnar allrar. Nefndin er einhuga um að erfitt yrði að setja fram ítarlegar reglur um nýtingu einstakra auðlinda í stjórnarskrá enda er það háð pólitísku mati að verulegu leyti hvernig þær verði best nýttar. Eining var innan nefndarinnar í umræðum um framsal ríkis valds. Nefndar- menn voru sammála um að framsal ríkisvalds hlyti allt- af að vera afturkræft, þetta væri stór ákvörðun og að baki hennar þyrftu að vera ríkir hagsmunir, heimildina ætti að einskorða við afmarkað svið og að ákvörðun um framsal ætti að styðjast við aukinn meirihluta alþingismanna, 2/3 þeirra eða jafnvel 3/4. Nefndin telur að greina þurfi þau gildi sem tengjast vernd umhverfisins. Helstu gildi sem nefndin tíndi til og koma ættu til skoðunar eru sjálfbærni, líffræði- leg fjölbreytni og varúðarregla sem felur í sér að ákvarðanir séu teknar á grundvelli fullnægjandi upplýsinga og náttúran njóti þar vafans. Nefndin segir sam- stöðu ríkja á meðal flokka á Alþingi um að mótuð verði heim- ild til þjóðaratkvæðagreiðslna um mikilvæg málefni. Sú skoðun kom fram í nefnd- inni að undanskilja ætti lög um ákveðin málefni, svo sem fjárlög, skatta og þjóðréttarlegar skuldbindingar. Skiptar skoðanir voru um fjölda undirskrifta og nánari framkvæmd. Nefndin ræddi um lágmarksþátttöku og aðild þingsins. BREYTA STJÓRNARSKRÁ Fram kom í máli nefndarmanna í gær að ekki hefði enn reynt á pólitískan ágreining innan nefndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Læknastöðin ehf. Álfheimar 74 • 104 Reykjavík • sími: 5356800 • fax: 5356805 Hér með tilkynnist að Sigurður Björnsson meltingarlæknir hættir starfsemi þann 1. júlí 2014 STJÓRNMÁL Stjórnarskrárnefnd kynnti fyrstu áfangaskýrslu sína í gær. Í skýrslunni er farið yfir það starf sem nefndin hefur unnið frá því hún var stofnuð og til dagsins í dag. Nefndin var skipuð fulltrúum allra flokka er sæti eiga á Alþingi í nóvember síðast- liðnum en síðan þá hefur einkum verið fjallað um fjóra málaflokka, það er þjóðaratkvæða- greiðslur á grundvelli undirskrifta, framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu, auð- lindir og umhverfisvernd. Í skýrslunni er gerð grein fyrir gildandi rétti og þróun erlendis, ásamt því að gefið er yfirlit yfir vinnu undanfarinna ára við breytingar á stjórnarskrá. Þá er reifuð afstaða og umræða starfandi stjórnarskrár- nefndar þar sem lögð er áhersla á meginat- riði umræðunnar en ekki útfærslu einstakra atriða. Tilgangur skýrslunnar er að efna til opin- berrar umræðu og því setur nefndin fram spurningar og álitaefni sem vakin er sérstök athygli á. Á kynningarfundinum í gær sagði Skúli Magnússon, héraðsdómari og fulltrúi Fram- sóknarflokksins í nefndinni, að skýrslan bæri ekki með sér mikil átök þótt menn væru ekki endilega sammála um allt. Mismunandi áherslur nefndarmanna eru síðan birtar í bókunum þeirra í skýrslunni. „Það er vilji þessarar nefndar að komast að samkomulagi um hvað eigi að ganga fyrir,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður og fulltrúi Samfylkingarinnar. Í bókun Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, kemur fram að fái Alþingi fullmótað frumvarp í hendur að hausti 2015 gefist færi á að afgreiða ákvæðin frá þinginu þá um veturinn og þjóðin geti þannig greitt atkvæði um tillögurnar samhliða forseta- kosningunum 2016. Fram kom í máli annarra nefndarmeð- lima að þessi tillaga hefði ekki verið sér- staklega rædd innan nefndarinnar en Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði að gott væri að eiga þann möguleika. fanney@frettabladid.is Haldið opnu að breyta stjórnar- skrá samhliða forsetakosningum Ný áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar var kynnt í gær. Þar voru kynnt sjónarmið um þjóðaratkvæðagreiðslur, framsal valdheimilda, auðlindir og umhverfisvernd. Nefndarmeðlimir eru opnir fyrir því að kjósa um tillögurnar samhliða forsetakosningum sumarið 2016. AUÐLINDIR ÞJÓÐARINNAR Nýting í þágu þjóðarinnar FRAMSAL VALDHEIMILDA Verður að vera afturkræft UMHVERFISVERND Tryggja ber sjálfbærni ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUR Samstaða í öllum flokkum BRETLAND, AP Andy Coulson, fyrr- verandi ritstjóri News of the World, var í gær sakfelldur af kviðdómi fyrir símhleranir sem stundaðar voru á blaðinu. Rebekah Brooks, sem einnig var ritstjóri blaðsins, slapp hins vegar með skrekkinn og var sýknuð. Réttarhöldin hófust eftir að upp komst að blaðið hafði látið hlera far- síma frægra einstaklinga, stjórn- málamanna og jafnvel fórnarlamba glæpa í þeim tilgangi að afla sér frétta. Málið varð til þess að fjöl- miðlakóngurinn Robert Murdoch, útgefandi blaðsins, neyddist til að hætta útgáfu þess. Tugir blaða- manna og embættismanna hafa verið handteknir í tengslum við málið. Stuart Kittner, fyrrverandi fréttastjóri blaðsins, og þrír aðrir sakborningar voru einnig sýknaðir, þar á meðal Charles Brooks, eigin- maður Rebekuh. Coulson, sem um skeið starfaði sem fjölmiðlafulltrúi Davids Cameron forsætisráðherra, á yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi. - gb Kviðdómur sýknaði Brooks og fjóra aðra yfirmenn News of the World: Coulson sakfelldur fyrir njósnir ANDY COULSON Átta mánaða réttar- höldum lokið með sakfellingu fyrrver- andi fjölmiðlafulltrúa Davids Cameron. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALBANÍA, AP Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í gær að veita Albaníu stöðu umsóknarríkis. Albanía hefur þar með þokast nær mögulegri aðild að Evrópusambandinu. Þetta er í fjórða sinn frá árinu 2009 sem Albanía óskar eftir því að verða umsóknarríki. Stefan Füle, stækkunarstjóri framkvæmdastjórnar ESB, segir að ákvörðunin sýni að umbótavið- leitni Albaníu hafi borið einhvern árangur. - gb Tókst í fjórðu tilraun: Albanía orðin umsóknarríki 6.000 tonn rúmlega af sælgæti eru árs- skammtur landsmanna, segir í landskönnun á mataræði. Það er svipað magn í tonnum talið og íslenskir grænmetisbændur í Sölufélagi garðyrkjumanna senda á markað árlega af sinni framleiðslu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.