Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 18
| 2 25. júní 2014 | miðvikudagur
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Atlantic Airways (DKK) 144,00 -5,9% 0,0%
Bank Nordic (DKK) 118,00 -9,2% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 230,00 -12,2% 0,8%
Fjarskipti (Vodafone) 30,65 12,5% -0,3%
Hagar 40,60 16,1% 0,3%
Icelandair Group 17,10 -6,0% -1,7%
Marel 105,00 -21,1% -2,8%
N1 16,45 -13,0% -0,9%
Nýherji 4,20 15,1% 0,0%
Reginn 15,70 1,0% -4,3%
Tryggingamiðstöðin* 25,10 -21,7% -3,0%
Vátryggingafélag Íslands** 8,65 -19,8% -1,9%
Össur 282,00 23,1% 0,7%
HB Grandi 28,05 1,3% 0,2%
Sjóvá 12,43 -8,0% 0,6%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1259,60 7,7% 9,2%
First North Iceland
Century Aluminum 1150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 12,15 29,3% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 13,0% 0,0%
*fyrsta verð 08. maí 2013 **fyrsta verð 24. apríl 2013
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR
23,1% frá áramótum
EIMSKIP
0,8% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TM
-21,7% frá áramótum
REGINN
-4,3% í síðustu viku
6
7
3
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
Miðvikudagur 25. júní
➜ Þjóðskrá - Fjöldi útgefinna
vegabréfa
➜ Nýherji - Uppgjör 2. ársfjórðungs
Fimmtudagur 26. júní
➜ Þjóðskrá - Viðskipti með atvinnu-
húsnæði í maí
➜ Hagstofan - Nýskráningar og gjald-
þrot í mái
Föstudagur 27. júní
➜ Hagstofan - Vísitala neysluverðs
í júní 2014
➜ Hagstofan - Þjóðhagsspá
➜ Hagar - Uppgjör 1. ársfjórðungs
Mánudagur 30. júní
➜ Hagstofan - Fjármál ríkissjóðs á
greiðslugrunni
➜ Hagstofan - Vöruskipti við
útlönd
Miðvikudagur 2. júlí
➜ Þjóðskrá - Fasteignamarkaður-
inn í mánuðinum eftir lands-
hlutum
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Lögmannsstofan Lex hefur gefið út 70 blaðsíðna
leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna þar sem er að finna
yfirlit yfir þau lögfræðilegu atriði sem ber að huga
að við stofnun og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja.
„Ég hef sjálfur mikinn ferðaþjónustuáhuga og fór í
leiðsöguskólann og kynntist þar innviðum ferðabrans-
ans. Mér fannst svo margt lögfræðilega áhugavert
sem þessi ört stækkandi atvinnugrein er að berjast
við að ég stakk upp á því við Lex að við myndum búa
til svona rit, ég ásamt sérfræðingum á hverju sviði,
sem við síðan gerðum,“ segir Helgi Jóhannesson,
hæstaréttarlögmaður og eigandi Lex.
Í leiðarvísinum er farið ítarlega yfir ýmis atriði
eins og stofnun einkahlutafélaga, samningagerð,
ábyrgð, skattamál, samskipti við yfirvöld, trygginga-
mál og fleira.
Helgi segir ritið nýtast bæði stærri ferðaþjónustu-
aðilum sem minni og síðan er í ritinu ekki síður að
finna atriði sem aðilar í almennum rekstri ættu að
huga að.
„Þetta eru atriði til umhugsunar en ekki einhverjar
heildarlausnir sem finna má í þessu riti og menn gætu
jafnvel þurft að leita sér aðstoðar með.“
Ritinu hefur verið dreift gjaldfrjálst til ferðaþjón-
ustufyrirtækja og Helgi segir viðtökurnar góðar. „Ég
er búinn að fá kveðjur með þakklæti fyrir þetta og
þessu er mjög vel tekið.“ - fbj
Lögmannsstofan Lex hefur gefið út ókeypis 70 síðna leiðarvísi fyrir ferðaþjónustufyrirtæki:
Gefa út leiðarvísi ferðaþjónustu
MIKILVÆGT INNLEGG Helgi hefur lokið leiðsöguprófi og er
mikill ferðaáhugamaður.
Taktu gæðin
með þér í nesti.
Allt í einumpoka
ÞÆGILEGT! Frábært fyrir ferðaskrif-
stofur eða fyrirtækjahópa.
Hægt er að hafa pokann
í ýmsum útfærslum og
stærðum. Gerum verð-
tilboð fyrir stærri hópa.
Nestispokinn
frá Sóma
565 6000 / somi.is
Fjármálaeftirlitið (FME) telur ríkið
þurfa að setja um tíu milljarða
króna á ári inn í B-deild Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins (LSR)
og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga
(LH) á næstu árum. Annars geti
sjóðirnir ekki staðið við skuldbind-
ingar sínar og geti tæmst á næstu
tíu til fi mmtán árum.
Þetta sögðu Unnur Gunnarsdóttir,
forstjóri FME, og Björn Z. Ásgríms-
son, sérfræðingur á greiningarsviði
stofnunarinnar, á kynningarfundi
um stöðu lífeyrissjóðanna í gær.
Þar kom fram að heildar trygg-
ingafræðileg staða íslenskra líf-
eyrisssjóða með ábyrgð ríkis og
sveitarfélaga var við árslok 2013
neikvæð um 595 milljarða króna.
Halli annarra lífeyrissjóða var á
sama tíma samtals um 68 milljarðar
eða nálægt jafnvægi.
„Þessar skuldbindingar eru til
langs tíma og verða greiddar upp á
næstu árum og áratugum. En ein-
hvern tímann kemur að því það þarf
að greiða þetta og því er nauðsyn-
legt að gera ráðstafanir með því að
auka iðgjöld eða framlag til sjóð-
anna, eins og með þessum tíu millj-
örðum,“ segir Björn í samtali við
Markaðinn.
„Sveitarfélögin hafa brugðist rétt
við með því að borga viðbótarfram-
lag inn í sjóðina sem bætir stöðu
þeirra smám saman á næstu árum
og ríkið mætti taka sér það til fyrir-
myndar.“
Mikið hefur verið fjallað um
vanda B-deildar LSR og LH. Fyrir
um tveimur vikum tilkynnti fjár-
mála- og efnahagsráðuneytið að það
hefði ásamt ellefu hjúkrunarheim-
ilum, LSR og LH undirritað samn-
inga sem fela í sér yfi rtöku ríkisins
á nær öllum lífeyrisskuldbindingum
hjúkrunarheimilanna vegna starfs-
manna þeirra í B-deild LSR og LH.
Á fundi FME kom einnig fram að
fi mm stærstu lífeyrissjóðir lands-
ins eiga rúm 55 prósent af 2.800
milljarða króna lífeyrissparnaði
landsmanna. LSR er þar stærstur
með 17,2 prósenta hlutdeild.
„Þetta sýnir mikilvægi þessara
sjóða,“ segir Björn og bætir því við
að lífeyrissjóðirnir hafi verið 37
talsins árið 2007 en séu nú 27.
„Við sjáum fram á að þeim
muni fækka á næstu árum. Sem
er jákvætt því sameining lækkar
rekstrarkostnað og bætir ávöxtun
lífeyrisþega,“ segir Björn.
Sjóðir LSR og LH þurfa
tíu milljarða frá ríkinu
Ríkið þyrfti að setja tíu milljarða króna árlega inn í B-deild Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Fjár-
málaeftirlitið segir sjóðina annars geta tæmst á næstu 10 til 15 árum.
LÍFEYRISSJÓÐIR
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
Nýsköpun í matvælaiðnaði, þar
sem vannýttar auðlindir koma við
sögu, er meginþema Arctic Bioeco-
nomy, verkefnis sem Matís leiðir.
Verkefnið er hluti af formennsku-
verkefni Íslands í norrænu ráð-
herranefndinni.
Matís ásamt þátttakendum verk-
efnisins hefur nú ýtt rúmlega 30
hugmyndum úr vör og verða þær
kynntar í dag á ráðstefnu á Sel-
fossi um lífhagkerfið. Vörurnar
eru þróaðar af smáframleiðendum
og einstaklingum á Íslandi, Græn-
landi og í Færeyjum.
„Við auglýstum eftir þátttak-
endum í þessum þremur löndum.
Aðilar voru oft með vöruhug myndir
og búnir að vinna sig eitthvað
áfram en vantaði herslumuninn til
að koma vörunum á markað,“ segir
Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri
hjá Matís.
Hún segir
þátttakend-
ur hafa feng-
ið ýmiss konar
hjálp frá Matís,
annaðhvort við
framleiðslu, sérfræði-
aðstoð eða annað. Alls bár-
ust 78 umsóknir, þar af stærsti
hlutinn frá Íslandi en þó nokkuð frá
Grænlandi og Færeyjum.
„Það er misjafnt hvort kynntar
verða fullunnar vörur til smökkun-
ar eða annað. Við bjóðum til dæmis
upp á íslenska bleikju sem hefur
fengið fóður unnið úr mjög pró-
teinríkum svepp sem vex á viðar-
massa sem fellur til í sögunar-
verksmiðjum,“ nefnir
Sigrún sem
dæmi um
verkefni
sem kynnt
verður í dag
en segir að
ýmissa grasa
muni kenna á
ráðstefnunni. - fbj
Matís heldur ráðstefnu um nýsköpun í matvælaiðnaði á grunni Arctic Bioeconomy-verkefnisins:
Nýsköpun í lífhagkerfinu kynnt
KYNNTU STÖÐUNA Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, og Björn Z. Ásgrímsson kynntu í gær
stöðu lífeyrissjóðanna árið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA