Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 4
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
6,7% Íslendinga bjuggu við skort á efnis-
legum lífsgæðum árið 2013.
Hlutfallið lækkaði umtalsvert í að-
draganda hrunsins, fór úr 7,4% árið
2007 í 2,5% árið 2008, en jókst eftir
það. Heimild: Hagstofan
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
LEIÐRÉTT
Í frétt blaðsins í gær um skýrslu
Þóris Guðmundssonar um Þróunar-
samvinnustofnun kom fram að ein
af tillögum hans væri að auka fé til
frjálsra félagasamtaka. Hið rétta er
að hann fjallaði um þá hugmynd í
skýrslunni, en hún var ekki ein af
formlegum tillögum hans.
Ranglega var hermt eftir Karli
Kristjánssyni, oddvita sveitarstjórnar
Reykhólahrepps, í frétt í Frétta-
blaðinu í gær. Hann sat ekki í síðustu
sveitarstjórn hreppsins en hann gerði
það hins vegar á árum áður.
➜ Heyrnarlausir
og heyrnarskertir
grunnskólanem-
endur á Íslandi
1964-1965 29
55
57
68
46
32
23
1969-1970
1975-1976
1980-1981
1985-1986
1990-1991
2007
Heyrnleysingjaskólinn
Táknmálsdeild Hlíðaskóla
VELFERÐARMÁL Samfélag heyrn-
arlausra hefur ekki minnkað en
meðal aldurinn fer hækkandi.
Ástæðan er sú að tíðni hefur stað-
ið í stað. Á fimmta til sjöunda ára-
tug síðustu aldar fæddust stórir
árgangar heyrnarlausra barna sem
þýðir að flestir heyrnarlausra eru á
milli fimmtugs og sjötugs. Ástæð-
an er faraldur sjúkdóma sem mæð-
urnar fengu, meðal annars rauðir
hundar.
„Aðalástæða þess að færri fæðast
heyrnarlausir í dag er bætt mæðra-
og ungbarnavernd. Bólusett hefur
verið fyrir ýmsum sjúkdómum,
fylgst er betur með mæðrum á með-
göngu og fyrirburar fá betri með-
höndlun,“ segir Ingibjörg Hinriks-
dóttir, yfirlæknir á Heyrnar- og
talmeinastöð Íslands.
Það eru fyrst og fremst veiru-
sýkingar og ættgengi sem veld-
ur heyrnarleysi frá fæðingu í dag.
Talið er að um 0,01 prósent barna
fæðist heyrnarlaus eða um eitt barn
á ári á Íslandi. Af þeim börnum fara
langflest í kuðungsígræðslu sem
gerir þeim kleift að heyra, beita
tungumálinu og taka virkari þátt
í samfélagi heyrandi manna. Með
hækkandi meðalaldri og fleiri kuð-
ungsígræðslum er þó ekki þar með
sagt að heyrnarlausum muni fækka,
því þótt einstaklingur sé með kuð-
ungsígræðslu hættir hann ekki að
vera heyrnarlaus.
„Það eru vissulega færri í dag
sem eru hreint og beint heyrnar-
lausir,“ segir Daði Hreinsson,
framkvæmdastjóri Félags heyrnar-
lausra. „En kuðungsígræðslur virka
í raun eins og heyrnartæki. Fötlunin
er enn til staðar og einstaklingurinn
er heyrnarlaus. Þar að auki verður
heyrnin ekki fullkomin og líkaminn
getur hafnað tækninni. Því er svo
mikilvægt að heyrnarlaus börn læri
líka táknmál.“
Heiðdís Dögg Eiríksdóttir segir
flest börn sem fá kuðungsígræðslu
tileinka sér íslensku en eingöngu
sum tvítyngi, það er íslensku og
táknmál. Það þýðir að þeim sem nota
íslenskt táknmál fer vissulega fækk-
andi og líkur á að samfélag heyrn-
arlausra breytist mikið í kjölfarið.
„Hlutverk Félags heyrnar lausra
breytist með breytingum í samfé-
laginu og breyttum þörfum. Þann-
ig er fólk með kuðungs ígræðslu nýr
hópur með nýja hagsmuni sem við
berjumst fyrir. Einnig er alltaf mik-
ilvægt að aðgengi að táknmáli sé til
staðar.“ erlabjorg@frettabladid.is
Færri fæðast heyrnarlausir
og fleiri fá kuðungsígræðslu
Meðalaldur heyrnarlausra hækkar hratt enda hefur tíðni heyrnarleysis staðið í stað. Vegna kuðungsígræðslna
munu æ færri vera eingöngu háðir táknmáli. Þjónusta Félags heyrnarlausra breytist í takt við breyttar þarfir.
Hlutverk
Félags heyrn-
arlausra
breytist með
breytingum í
samfélaginu
og breyttum
þörfum.
Heiðdís Dögg Eiríksdóttir,
formaður Félags heyrnarlausra.
TÁKNMÁLI
FAGNAÐ Árið
2011 voru lög
samþykkt þar sem
táknmál var viður-
kennt sem fyrsta
tungumál heyrnar-
lausra og fögnuðu
margir á þingpöll-
unum. Með fleiri
kuðungsígræðslum
er hvatt til þess
að heyrnarlausir
séu tvítyngdir og
geti bæði tjáð sig
á íslensku og tákn-
máli.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
■ Á síðustu fjórtán árum hafa 69
farið í kuðungsígræðsluaðgerð á
Íslandi.
■ Fjöldi barna sem fær ígræðslu
eykst hraðar en fjöldi fullorðinna.
■ Í júní 2014 höfðu 17 íslensk börn
fengið kuðungsígræðslu.
■ Í heiminum hafa um það bil 400
þúsund fengið kuðungsígræðslu.
➜ Kuðungsígræðslur
á Íslandi
LÖGREGLUMÁL Lík konu fannst
við leit í Bleiksárgljúfri að
kvöldi þriðjudags. Talið er að
um lík Ástu Stefánsdóttur sé að
ræða.
Guðbrandur Örn Arnarson
sem stýrt hefur leit í gljúfrinu
segir að líklega hafi áin sem
rennur um gljúfrið loks skilað
líkinu vegna þeirra vatnavaxta
sem verið hafa á Suðurlandi í
júlímánuði.
Ásta Stefánsdóttir hvarf
ásamt sambýliskonu sinni, Pino
Becerra, í Bleiksárgljúfri um
hvítasunnuhelgina. Ein víðtæk-
asta leit síðustu ára fór fram í
kjölfarið án þess að Ásta fynd-
ist. Líkið fannst nú við fyrstu
eftirleit eftir að formlegri leit
lauk. - ssb
Þrotlaus leit bar loks árangur:
Lík konu fannst
í Bleiksárgljúfri
LEITIN Mikill fjöldi björgunarsveitar-
manna tók þátt í leitinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐBRANDUR ÖRN ARNARSON
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
LÍTIÐ UM BREYTINGAR Það jákvæða við veðrið þessa dagana er hægur vindur og
fínn hiti en það má gera ráð fyrir vætu í langflestum landshlutum en þó aðallega á
vestanverðu landinu. Besta veðrið verður á Austurlandi fram að helgi.
10°
2
m/s
12°
3
m/s
12°
6
m/s
12°
7
m/s
Yfi rleitt
mjög hæg
SV-átt.
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
29°
30°
22°
25°
22°
22°
24°
20°
20°
25°
23°
29°
29°
30°
28°
23°
20°
24°
13°
5
m/s
13°
6
m/s
17°
7
m/s
14°
3
m/s
15°
2
m/s
12°
2
m/s
8°
5
m/s
12°
12°
12°
11°
14°
14°
15°
15°
14°
13°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
PORTÚGAL Mansalshringur með
rætur í Portúgal og Vestur-Afríku
hefur verið upprættur af portú-
gölsku lögreglunni og Europol.
Mansalshringurinn er grunað-
ur um að hafa flutt fjölda ungra
kvenna til Evrópu með það að
markmiði að gera þær út til vænd-
isstarfsemi. Konurnar eru flestar
frá Nígeríu.
Aðgerðin sem var umfangsmikil
er hluti af stærri aðgerð portú-
galskra yfirvalda til að uppræta
vændisstarfsemi í landinu. Menn-
irnir sjö sem voru handteknir í
tengslum við mansalshringinn
í Portúgal sáu um samskipti við
konurnar sem þangað komu. Þeir
útveguðu þeim skilríki en í ein-
hverjum tilfellum var konunum
ráðlagt að sækja um hæli í land-
inu. Konurnar hurfu svo frá þeim
úrræðum sem portúgölsk yfirvöld
útveguðu þeim.
Samkvæmt Europol var konun-
um hótað og þeim steypt í skuldir
til að koma í veg fyrir að þær flýðu
frá brotamönnunum. - ssb
Þaulskipulögð aðgerð portúgölsku lögreglunnar og Europol skilaði árangri:
Lögregla upprætti mansalshring
LOKS FRJÁLSAR Mikill fjöldi kvenna
var látinn laus þegar leitað var í sjö
húsum. Myndin tengist fréttinni ekki
beint. NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Sífellt fleiri
skemmtiferðaskip venja komur
sínar vestur á Ísafjörð og mátti sjá
skýra birtingarmynd þess í gær
en þá lágu þrjú slík við bryggju.
Að sögn Guðmundar M. Kristjáns-
sonar, hafnarstjóra Ísafjarðar-
hafna, er þetta í fyrsta sinn sem
þrjú skemmtiferðaskip liggja við
bryggjuna. Þó hefur það gerst að
eitt hafi legið við bryggju en tvö
við akkeri í höfninni svo Ísfirðing-
ar eru svo sem ekki óvanir umferð
af þessu tagi. - jse
Skipaumferð á Ísafirði:
Þrjú risaskip
við höfnina