Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.07.2014, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 17.07.2014, Qupperneq 12
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 FJARÐABYGGÐ Ásta Kristín Sigur- jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Fjarða- byggð á síðasta kjörtímabili, hefur verið ráðin verkefnastjóri atvinnu- mála í Fjarðabyggð. Laun hennar sem verkefnastjóra nema, með yfir- vinnu innifalinni, 746.097 krónum á mánuði. Auk þess er henni lagður til farsími og internettenging. Staðan var ekki auglýst laus til umsóknar heldur gengið til samninga við Ástu. Páll Björgvin Guðmundsson, bæj- arstjóri Fjarðabyggðar, segir það almenna reglu að störf séu auglýst en þó séu undan- tekningar á því. „Almenna reglan er sú að við auglýsum öll störf, en stund- um getur það verið þannig að við erum að vinna í afmörk- uðum verkefn- um sem þarfn- ast ákveðinnar sérfræðiþekkingar og reynslu. Í þessu máli erum við fyrst og fremst að hugsa um þekk- ingu og reynslu Ástu á málaflokkn- um,“ segir hann. Um hvort óeðlilegt væri að fyrr- verandi bæjarfulltrúi og sam- starfsfélagi meirihlutans hafi fengið starfið án auglýsingar segir Páll Björgvin: „Við eigum fyrst og fremst að horfa til þess sem fólk hefur fram að færa til að sinna þeim verkefnum sem þarf að vinna, en ekki að fólk gjaldi þess með ein- hverju móti í umræðunni að vera fyrrverandi bæjarfulltrúar“. - sa Fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð ráðinn verkefnastjóri atvinnumála í bænum: 746.000 krónur í laun frá félögum sínum PÁLL BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON FRÁ ESKIFIRÐI Þar sem nú er Fjarða- byggð voru níu sveitarfélög árið 1987. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráð- herra hefur gefið út reglugerð um frekari sameiningu heilbrigðis- stofnana. Samkvæmt henni verða stofnanir sameinaðar í þremur heilbrigðisumdæmum, á Vest- fjörðum, öllu Norðurlandi og á öllu Suðurlandi. Með þessum breytingum verða ellefu stofnanir að þremur, Heil- brigðisstofnun Vestfjarða, Heil- brigðisstofnun Norðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Sameiningarnar taka gildi 1. októ- ber og taka þá nýir forstjórar við hinum sameinuðu stofnunum. Markmið með sameiningunni er að styrkja rekstrareiningarnar, auka öryggi íbúa með góðri þjón- ustu og er vonast til að með þessu færist ákvarðanataka í auknum mæli til heimamanna. Á Norður- landi sameinast allar heilbrigðis- stofnanir frá Blönduósi í vestri til Raufarhafnar og Þórshafnar í austri og verður einn forstjóri yfir öllum þessum vinnu- stöðum. Kristján Þór Júlíusson segir þetta áframhald á samræmingu starfs heil- brigðisumdæmanna. „Það sem verið er að gera er einfaldlega að samræma störf heilbrigðisumdæm- anna á landinu. Þessi þrjú umdæmi stóðu eftir. Fyrst og fremst er verið að efla starfið í umdæmunum og gera það bæði skilvirkara og öflugra,“ segir Kristján Þór. Spurður hvort þetta feli í sér fækkun starfsstöðva eða minni þjónustu svarar hann því neitandi. „Það er algjörlega ljóst af minni hálfu að það er ekki verið að fækka eða loka starfs- stöðvum, síður en svo. Aðgerðirnar draga úr stjórnunarkostnaði svo meira fjármagn verður eftir fyrir starfsstöðvar. Einnig fela aðgerðirnar í sér stór- aukin tækifæri til samvinnu milli starfsstöðva þannig að sérfræði- þekking verður auðsóttari á minni stöðunum.“ Vegalengdin milli Þórshafnar og Blönduóss er 394 kílómetrar. Þessar stofnanir verða hvor á sínum enda Heilbrigðisstofnunar Norðurlands með sameiningunni. Hjálmar Bogi Hafliðason, vara- þingmaður Framsóknarflokks- ins í NA-kjördæmi, gagnrýnir vinnubrögð ráðherra harðlega. „Ég er búinn að tala við alla þing- menn Framsóknarflokksins. Það er slæmt að við séum ekki með heilbrigðismál á okkar könnu. Ég styð ekki þessa ákvörðun ráð- herrans.“ sveinn@frettabladid.is Á AKUREYRI Sjúkrahúsið á Akureyri er í miðju Heilbrigðisumdæmi Norðurlands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON Auka á öryggi íbúa með sameiningunni Sameining ellefu heilbirgðisstofnana í þrjár hefur verið ákveðin með reglugerð heilbrigðisráðherra. Nærri 400 kílómetrar eru á milli starfsstöðva nýrrar Heil- brigðisstofnunar Norðurlands. Markmiðið að ákvarðanir séu nálægt íbúum. SJÁVARÚTVEGUR Í mestu stór- streymisflóðum fer bryggjan á Flateyri undir sjó, nú síðast á mánudaginn. Að sögn Guðmund- ar M. Kristjánssonar, hafnar- stjóra Ísafjarðarhafna, fór bryggjan að síga skömmu eftir að hún var byggð rétt eftir síðustu aldamót. „Þetta er náttúrlega bagalegt en hún er samt alveg nothæf,“ segir hann. Hann segir hafnarsjóð ekki nógu digran til að koma höfninni í samt lag en samkvæmt gildandi lögum er það einvörðungu á könnu Ísafjarðar- hafna. „Það liggur reyndar fyrir nýtt frumvarp sem gefur okkur von um að hægt verði að fá fé til verkefna sem þessa en þetta frumvarp er bara alltaf kjaftað í kaf,“ segir hann. María Hrönn Valberg, íbúi á Flateyri, segir að vinsælt sé hjá krökkunum að dorga niðri á bryggju og eins slást sjóstanga- veiðimenn í hóp með þeim þar þegar of illa viðrar til sjóferða. Vestfirðingarnir eru ekki einir um vandamál sem þetta en í Keflavíkurhöfn fara nokkrar bryggjur á kaf í mesta stór- streymi. Að sögn hafnarvarðar gerist það venjulega einu sinni í mánuði að ein þeirra fari á kaf en einnig getur farið svo að það flæði yfir fjórar bryggjur. - jse Ægir getur læst greipum sínum um hafnir og bryggjur á stórstreymi: Flýtur yfir bryggjuna á Flateyri ALLT Í GRÆNUM SJÓ Sjórinn flæðir yfir bryggjuna á Flateyri þegar stórstreymt er og færir hana í kaf. MYND/MARÍA HRÖNN VALBERG FRAMKVÆMDIR Hafnar eru framkvæmdir við hús listamannsins Samúels Jónssonar í Selárdal á sunnanverðum Vestfjörðum. Áætlað er að endurbyggja hús hans í nærri upprunalegri mynd en húsið var að stórum hluta tekið niður árið 2009. Húsið og verk Samúels þykja merkileg fyrir margar sakir en meðal bygginga á svæðinu er kirkja sem Samúel byggði sjálfur utan um altaristöflu sem hann hafði málað. Framkvæmdasjóður ferðamanna leggur verkefninu lið en húsið er hugsað sem íbúð fyrir lista- og fræðimenn. - ssb Endurbyggja hús í Selárdal á sunnanverðum Vestfjörðum: Samúelshúsi bjargað frá hruni STEYPT UPP Mikla vinnu þarf að leggja í hús listamannsins Samúels Jónssonar svo það verði íbúðarhæft. MYND/SÖGUMIÐLUN GRÆNLAND Grænlendingar vilja gera upp fortíð sína sem dönsk nýlenda og hafa grænlensk stjórn- völd skipað sérstaka sáttanefnd í þeim tilgangi. Meðal nefndarmanna eru Grænlendingar hámenntaðir í mannfræði, sálfræði og menn- ingarsögu, að því er segir á vef danska ríkisútvarpsins. Skoða á þær aðstæður frá nýlendutíman- um sem enn valda spennu í græn- lensku samfélagi. Nefndin á að hafa lokið störfum árið 2017. - ibs Kafa ofan í fortíðina: Sáttanefnd á Grænlandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.