Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.07.2014, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 17.07.2014, Qupperneq 16
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 16 Í stað þess að vinna eins og brjál- æðingur fram á síðasta vinnudag til að klára öll verkefni svo hægt sé að fara í sumarfríið með góðri samvisku á að hefja afslöppun vik- una fyrir frí. Þetta ráð gefur Einar Baldvin Baldursson, lektor í félags- sálfræði við Álaborgarháskóla. „Þegar menn komast loks í fríið fellur virknistigið skyndilega. Við það koma fram ýmis einkenni eins og flensueinkenni, höfuðverkur, hiti, kuldahrollur og óþægindi í maga og baki. Þegar fyrsta vikan fer öll í það að hafa það skítt hefur verið lagt í vitlausa blöndu,“ segir Einar sem hefur sérhæft sig í streitu og hefur langa reynslu af því að veita starfsfólki og stjórn- endum ráðleggingar um bættan hag í vinnu. Hann segir hlutverk frísins hafa breyst frá því sem var fyrir nokkr- um áratugum. Í iðnaðarsamfélag- inu hafi verið litið á fríið sem af- slöppunartíma. „Sumarfrísferðir voru seldar sem afslöppunarferðir og sérstök rök fyrir því að sumar ferðir væru betri en aðrar voru þau að brennivínið væri billegra.“ Samfélagið hefur hins vegar breyst, að því er Einar bendir á. „Nú er ekki bara litið á vinnuna sem tæki til að afla tekna heldur á það sem maður vill samsama sig við. Þungamiðjan er í kring- um vinnuna og það er erfitt að leggja starfið til hliðar. Á sama tíma hefur hlutur fjölskyldunnar minnkað gríðarlega.“ Hann segir mörg störf krefjast sveigjanleika hjá starfsmönnum og að þeir séu skapandi. „En fólki dettur aldrei í hug hvað þarf til. Heilinn þarf á sérstökum tegund- um á minningum að halda, það er að segja ríkum minningum. Við búum ekki til svoleiðis minningar í hversdagslífinu. Í því er allt sett í kassa, kúlur og þríhyrninga. Heil- inn er í því að einfalda hlutina. Í fríinu getur heilinn hins vegar upp- lifað ríku minningarnar sem hann þarfnast.“ Einar segir menn fara í frí, sem skiptir meira máli en áður fyrr, á kolröngum forsendum. „Mín til- laga er sú að líta eigi á fríið sem mikilvægasta tímann til þess að endurnýja fjölskyldutengslin en í það þarf orku. Mitt ráð er að byrja að byggja upp afslöppun viku fyrir frí. Það gerir maður fyrst og fremst með því að vinna hægt. Svo á maður að skilja eftir eitt gott verkefni á skrifborðinu svo að maður viti hvað bíður manns þegar maður kemur úr fríinu.“ ibs@frettabladid.is Best að byrja að slaka á viku fyrir frí Hætta er á veikindaeinkennum í sjálfu fríinu ef álagið er of mikið rétt fyrir það, segir Einar Baldvin Baldursson, lektor í félagssálfræði. Eðli frísins hefur breyst. Að drekka kaffi og kóladrykki er góð aðferð til að koma í veg fyrir þreytu við akstur. Sé maður þegar orðinn syfjaður hefur koffín lítil áhrif því að þreytan gerir þá fljótt aftur vart við sig. Þetta hefur norska ríkisútvarpið eftir sérfræð- ingi hjá norsku umferðarstofunni. Sérfræðingurinn, Guro Ranes, segir betra að stöðva bílinn og fá sér 15 mínútna hænublund. Það sé það eina sem virki þegar maður er orð- inn þreyttur og beri mikinn árang- ur. Ranes segir ekki nauðsynlegt að leggjast til hvílu í bílnum. Nóg sé að halla sætinu svolítið til að geta slak- að vel á. Á fréttavef norska ríkisútvarps- ins er jafnframt bent á að ekki sé sama hvað borðað er áður en haldið er í langa ökuferð. Best sé að borða ávexti og grænmeti og drekka ósykrað vatn áður en sest er undir stýri. Kjöt og þungar máltíðir séu hins vegar slævandi. - ibs Sérfræðingur hjá norsku umferðarstofunni gefur ráð við þreytu í akstri: Hænublundur er áhrifaríkur Bókvit, bokvit.tumbir.com, er blogg- síða Borgarbókasafnsins fyrir ungt fólk en þar er hægt að fá ábending- ar um skemmtilegt lesefni og annað gagnlegt (og líka gagnslaust) sem tengist bókum og bókasöfnum, að því er segir á vef safnsins. Á leitir.is er hægt að leita að öllu því efni sem til er á bókasöfnunum, hvort sem það eru bækur, tímarit, tónlist, kvikmyndir eða hljóðbækur. Öll söfnin bjóða upp á heita reiti, aðgang að tölvum og netinu gegn vægri greiðslu og aðstöðu til að lesa. Ábendingar á bloggsíðu Borgarbókasafnsins: Skemmtilegt lesefni og annað gagnlegt fyrir ungt fólk Um það bil 600 börn halda tombólur fyrir Rauða krossinn á hverju ári. Þau eru yngstu sjálfboðaliðar Rauða krossins og hafa í gegnum árin sýnt ótrúlega hugmyndaauðgi þegar kemur að fjáröflun fyrir gott málefni, að því er segir á vef Rauða krossins. Þar segir jafnframt að stuðningur tombólubarna á hverju ári sé Rauða krossinum ákaflega mikils virði og er félagið þakklátt fyrir eljuna og dugnaðinn sem liggur að baki hverri tombólu og fjáröflun yngstu sjálfboðaliðanna. Tombólubörnin söfnuðu rúmlega einni milljón króna á síðasta ári og allt það fé fór til styrktar börnum í Gambíu. - ibs Yngstu sjálfboðaliðarnir söfnuðu rúmlega einni milljón í fyrra: 600 börn halda tombólur á hverju ári fyrir Rauða krossinn TOMBÓLA Þessar hnátur höfðu tínt ýmislegt til sem þær seldu til að afla fjár fyrir Rauða krossinn. Á FERÐ Að drekka kaffi gagnast lítið þegar maður er þegar orðinn syfjaður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STREITA Ekki er gott að vinna eins og brjálæðingur fram á síðasta vinnudag fyrir frí. NORDICPHOTS/GETTY Þegar fyrsta vikan fer öll í það að hafa það skítt hefur verið lagt í vitlausa blöndu. Einar Baldvin Baldursson, lektor í félagssálfræði Á BÓKASAFNI Öll söfnin bjóða upp á heita reiti og aðstöðu til að lesa eða spjalla saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þegar kokkurinn Jamie Oliver var á ferð í Svíþjóð greindi hann frá því hvernig hann færi að því að venja börnin sín á að borða grænmeti. Samkvæmt frásögnum sænskra fjölmiðla lætur hann þau sjálf ákveða hvað þau láta upp í sig. Það hefur þau áhrif að þau bragða á flestum tegundum. Hér á eftir fara nokkur ráð kokksins: Setjið grænmeti í skálar og látið börnin blanda saman þeim tegundum sem þeim líkar best. Berið fram sömu tegundir mörgum sinnum en ekki þvinga börnin til þess að smakka. Forvitnin sigrar að lokum. Leyfið börnunum að taka þátt í innkaupunum og velja ávexti og grænmeti sem þau vilja smakka. Verið jákvæð. Það er mikilvægast af öllu. - ibs Nokkur góð ráð frá kokkinum Jamie Oliver um matarvenjur barna: Börnin fái að ákveða hvað þau borða SALAT Best er að láta börnin blanda saman þeim tegundum sem þeim líkar best. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Quality power tools since 1919 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Hrærður en ekki hristur Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Drive-HM-120C 1200W - 12cm Hræripinni - 2 hraðar 17.990 Drive-HM-140 1600W - 14cm hræripinni - 2 hraðar 22.990 5 ára reynsla á Íslandi Varahlutaþjónusta Drive-HM-160 Tvöföld 1600W 2 hraðar 27.990 Eibenstock EHR 20/2,5 1300W 49.900 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.