Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 22
17. júlí 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út
í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun -
um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Aftur eftir tíu ár
Reykjavíkurbréf Davíðs Oddssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins, um Tryggva
Gunnarsson, sem síðar reyndist vera
alnafni umboðsmanns Alþingis, vakti
athygli um helgina. Minnugir menn
rifjuðu fljótlega upp að þetta er ekki í
fyrsta sinn sem fréttir berast af sam-
skiptum Davíðs og Tryggva. DV sagði frá
því fyrir tíu árum að Davíð hefði haft
í hótunum við umboðsmann Alþingis
eftir að sá síðarnefndi gaf út álit á
skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar
í embætti hæstaréttardómara.
Umboðsmaður Alþingis setti þá
reglur um samskipti stjórnvalda
og umboðsmanns. Tíu ár eru
liðin og ætli það þurfi ekki
að bíða í önnur tíu eftir
nýjum fréttum af sam-
skiptum þeirra félaga.
Varla á kosningaári
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að
ekki verið unnt að afnema fjár-
magnshöft fyrr en 2017, eins og Stöð
2 greindi frá. En látum sem svo að
greining Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé
rétt og við verðum að bíða í þrjú ár
í viðbót, þá er rétt að staldra við þá
hugmynd. Næstu áætluðu þing-
kosningar eru einmitt 2017. Vegna
áhættunnar sem fylgir afnámi
fjármagnshafta, með
mögulegri gengis-
lækkun og tilheyrandi
verðbólguskoti, er
varla hægt að
búast við því að
nokkur
stjórnmálamaður þori að fara í slíkar
aðgerðir á kosningaári. Ætli biðin geti
því ekki orðið eitthvað lengri?
Takk, Oddný!
Það er komið babb í bátinn við gerð
Vaðlaheiðarganga. Þar flæðir mikið af
heitu vatni sem hægir á framkvæmdum.
Vaðlaheiðargöng eru gerð í einkafram-
kvæmd og aldrei stóð til að þau yrðu
fjármögnuð með framlagi úr ríkissjóði.
Til að allt gengi snurðulaust fyrir sig
ákvað Oddný G. Harðardóttir, þáverandi
fjármálaráðherra, og þingheimur að
veita tíu milljarða ríkisábyrgð á lán
sem verkefnið var fjármagnað
með. Takk, Oddný, takk kærlega
fyrir það! Það er nú hagur allra
skattgreiðenda að farsællega
leysist úr því vandamálinu.
jonhakon@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Það var ekki fyrr en árið 1976 að mjólkur-
búðir voru lagðar niður, en fram að þeim
tíma var aðeins hægt að kaupa mjólk, rjóma
og skyr í sérverslunum Mjólkursamsölunn-
ar. Fram til ársins 1982 mátti enginn selja
símtæki í landinu nema ríkisfyrirtækið
Póstur og sími. Gleraugu fengust aðeins í
sérverslunum og sömu sögu var að segja
um bækur.
Það var hinn merki athafnamaður Pálmi í
Hagkaup sem braut þá einokun á bak aftur
með því að hefja sölu hvors tveggja í Hag-
kaupsverslunum sínum á lægra verði. Ég
man líka eftir finnsku kartöflunum í Hag-
kaup sem urðu m.a. til þess að reglum um
sölu á þessum matvælum var breytt til
hagsbóta fyrir neytendur.
Einkennilegir verslunarhættir
Þegar maður hugsar til baka þá finnst
manni þetta afar einkennilegir verslunar-
hættir, svo að ekki sé meira sagt og erfitt
að skilja hvað mönnum gekk til. Ekki síst í
í ljósi þess að eitt af grundvallarmálum í
sjálfstæðisbaráttu Íslendinga var einmitt
að losna úr viðjum verslunareinokunar og
leyfa frjálsa verslun.
Svo virðist sem við séum enn við sama
heygarðshornið á mörgum sviðum versl-
unar árið 2014; föst í gamaldags viðhorf-
um. Hvers vegna eru til dæmis lyf sem eru
ekki lyfseðilsskyld ekki seld í stórmörkuð-
um? Er einokun ríkisins á áfengissölu ef til
vill tímaskekkja? Hvernig stendur á því að
flutt er inn erlent beikon og það selt sem
íslenskt án þess að neytendur hafi hugmynd
um það? Er ekki kominn tími til að íslensk
stjórnvöld staldri við og líti yfir sviðið með
hagsmuni neytenda að leiðarljósi? Eins og
hin sögulegu dæmi sanna er ávallt hætta á
að við verðum samdauna ríkjandi ástandi.
Mikilvægur málaflokkur
Það sem fær mig til að setja þessar hugleið-
ingar á blað eru fregnir um að bandaríska
verslunarkeðjan Costco vilji inn á íslensk-
an markað og umræðan sem skapast hefur
í kjölfarið. Alþingismenn eiga starf fyrir
höndum á næsta þingi að skoða regluverk
þessara mála ofan í kjölinn. Neytenda-
mál eru afar mikilvægur málaflokkur og
örugglega vanmetinn af ýmsum. Íslenskur
almenningur á rétt á því að framfarir verði
á þessum sviðum sem og öðrum.
Frjáls verslun
VIÐSKIPTI
Elín Hirst
alþingismaður
➜ Neytendamál eru afar mikil-
vægur málafl okkur og örugglega
vanmetinn af ýmsum. Íslenskur
almenningur á rétt á því fram -
farir verði á þessum sviðum sem
og öðrum.
E
nn einu sinni hefur ófriður blossað upp á milli Ísraela
og Palestínumanna. Enn eina ferðina ofbýður fólki um
allan heim framganga Ísraela, sem hafa yfirhöndina í
krafti yfirgnæfandi hernaðarmáttar og hafa fellt tugi
óbreyttra borgara í árásum sínum á Hamas-hreyf-
inguna, þar á meðal fjölda kvenna og barna.
Það er sjálfsögð krafa að Ísraelsher hætti þegar í stað árásum
á Gaza-svæðið, fari að alþjóðalögum og hætti mannréttinda-
brotum gagnvart Palestínumönnum. Það er jafnsjálfsögð krafa
að Hamas-liðar hætti árásum
sínum á Ísrael. Það er ekki þeim
að þakka að aðeins einn Ísraels-
maður hefur fallið, á móti
meira en tvö hundruð Palestínu-
mönnum. Eldflaugar þeirra eru
lélegar og varnir Ísraelsmanna
góðar. Almennir borgarar í
Ísrael eiga hins vegar að sjálfsögðu ekki að þurfa að búa við ógn
af loftárásum frekar en íbúar nokkurs annars lands.
Ísraelar voru reiðubúnir að fallast á tillögu Egypta um vopna-
hlé, en Hamas-liðar ekki. Þeir síðarnefndu hafa meðal annars
gert að skilyrði að Ísraelar leyfi frjálsa flutninga fólks og
varnings um landamæri Gaza-svæðisins og aflétti hafnbanni.
Það er líka sanngjörn krafa, því að herkví Ísraela um Gaza
hefur aukið mjög á fátækt og neyð palestínsks almennings. Hins
vegar er þetta ekki einfalt mál frekar en neitt annað í deilum
Ísraela og Palestínumanna. Flutningabanninu var komið á til
að reyna að hindra vopnasmygl Hamas og annarra samtaka
Palestínumanna inn á svæðið. Nú segja harðlínumenn í Ísrael
ýmist að greinilega hafi bannið ekki skilað sínu og það þurfi
enn að herða það, eða að það hafi að minnsta kosti borið þann
árangur að Hamas-liðar skjóti aðallega lélegum heimasmíð-
uðum eldflaugum á Ísrael og því sé sjálfsagt að viðhalda því.
Jafnvel hófsamari öfl í Ísrael trúa því ekki að Hamas noti ekki
tækifærið til að efla getu sína til árása á ísraelska borgara.
Leiðtogar Hamas ættu að vita að sjálfstætt Palestínuríki
verður aldrei til með vopnavaldi, til þess eru hernaðarlegir
yfirburðir Ísraels of miklir. Það eru hins vegar enn of margir
í þeim herbúðum sem líta á eyðingu Ísraelsríkis sem markmið
sitt.
Ísraelsmegin er líka nóg af öfgamönnum, sem taka árásum
Hamas-liða í raun fagnandi og líta á þær sem afsökun til að ráð-
ast á þá, veikja andspyrnumátt Palestínumanna og sundra þeim
enn frekar. Benjamin Netanyahu forsætisráðherra tekur fegins
hendi tækifærinu til að nota ófriðinn á Gaza sem afsökun fyrir
að halda áfram landtöku á Vesturbakkanum og grafa enn frekar
undan möguleikunum á að mynda heildstætt palestínskt ríki.
Lausn á átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs næst ekki nema
báðir slái af kröfum sínum og sýni raunverulegan vilja til að tvö
ríki verði til, sem hvort um sig getur notið friðar og öryggis. Því
miður vantar enn verulega upp á þann vilja, bæði hjá Ísraelum
og Palestínumönnum.
Enn berjast Palestínumenn og Ísraelar:
Öfgarnar
næra ófriðinn
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
VEGAHANDBÓKIN ehf. • www.vegahandbokin.is
Sundaborg 9 • 104 Reykjavík • Sími 562 2600
TÍMAMÓTAVERK
Vegahandbókin í snjalltækin
• Yfir 3.000 staðir
• Þúsundir þjónustuaðila
• Kort sem sýnir staðsetningu
• Sía, notandi ræður hvaða
þjónustumerki birtast
• Leit, hægt að leita eftir
stöðum og þjónustu
• Bókamerki, hægt að geyma
og safna stöðum
• Tungumál, íslenska, enska og
þýska
1. SÆTIÁ LISTAEYMUNDSSON
VERÐ KR. 5.490,-
Hægt að skipta gamalli bók upp í nýja
og fá 1.000,- kr. afslátt af þeirri nýju (aðeins í bókabúðum)
Snjallsímaútgáfan
fylgir bókinni