Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 23

Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 23
FIMMTUDAGUR 17. júlí 2014 | SKOÐUN | 23 Á undanförnum áratugum hafa mörkin milli þéttbýlis og dreifbýlis orðið sífellt flóknari og óskýrari í flest- um vestrænum löndum. Bættar samgöngur, fram- farir í samskiptatækni og sveigjanlegri atvinnuhætt- ir hafa skapað margvísleg ný tækifæri til atvinnu og búsetu um leið og sérhæf- ing á vinnumarkaði hefur aukist og störfum í hefð- bundinni frumframleiðslu á borð við sjávarútveg og landbúnað fækkað til muna. Þá hafa auknar kröfur um aðgengi að heilbrigðisþjónustu, menntun, menningu, verslun og þjónustu víða leitt til dreifðari starf- semi og vaxtar smærri þjónustu- kjarna. Utan stórborganna bland- ast hefðbundið borgarsamfélag og hefðbundið dreifbýli nú í vaxandi mæli á atvinnu- og þjónustusvæðum stórra og smárra borga, úthverfa, bæja, þorpa og sveita. Veruleg fólks- fækkun er nú víðast hvar einkum bundin við afskekktari byggðarlög sem búa við einhæfni í atvinnulífi og takmarkaðan aðgang að þeim lífsgæðum sem einkenna fjölbreytt nútímasamfélög. Þótt Reykjavík sé smáborg á alþjóðlegan mælikvarða býður hún upp á fjölbreytt tækifæri til atvinnu, afþreyingar, menntunar, menningar og þjónustu. Um tveir af hverjum þremur landsmönn- um búa á höfuðborgarsvæðinu og enn fleiri hafa búið þar um lengri eða skemmri tíma. Jafnframt er Reykjavík nokkurs konar miðstöð hins alþjóðlega nútímasamfélags á Íslandi sem veitir alþjóðlegum straumum og stefnum í menningu, stjórnmálum og efnahagslífi um allt land. Þótt borginni og landsbyggð- unum sé stundum stillt upp sem andstæðum og jafnvel andstæðing- um í neikvæðri opinberri umræðu um byggðamál hefur samspil ólíkra byggðarlaga verið meðal helstu drifkrafta vaxtar og framfara um allt land um tveggja alda skeið. Íbúum landsbyggðanna hefur fjölgað jafnt og þétt á síðustu öld og eru þeir nú fleiri en nokkru sinni fyrr í Íslandssögunni. Jafn- framt hefur fjölbreytni atvinnulífs og búsetukosta aukist til mikilla muna. Á Vesturlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum njóta um 50 þús- und landsmenn lífsgæða smærri samfélaga, nálægðar við náttúruna og lægra húsnæðisverðs í seilingar- fjarlægð frá fjölbreyttu borgarsam- félagi Reykjavíkur. Á ysta jaðri þess svæðis hafa sjávarbyggðir á Snæ- fellsnesi og í Vestmannaeyjum hald- ið sínum hlut að mestu. Í samspili við helstu byggðakjarna í Skaga- firði, Eyjafirði og Suður-Þingeyjar- sýslu styður borgarsamfélag Akur- eyrar fjölbreytta verslun, þjónustu, menntun og menningu meðal um 30 þúsund íbúa Mið-Norðurlands. Á Austurlandi hefur orðið mikil upp- bygging í stóriðju, sjávarútvegi og ferðaþjónustu og mynda Fljótsdals- hérað og Fjarðabyggð saman til- tölulega fjölbreytt en nokkuð brota- kennt atvinnu- og þjónustusvæði með um tíu þúsund íbúa. Auðvelt að bregðast við Verulegur samdráttur og fólks- fækkun eru að mestu bundin við svæði þar sem um 5% þjóðarinnar er búsett. Tækniframfarir, sérhæf- ing og samþjöppun framleiðslunnar hafa víða leitt til fækkunar starfa í sjávarútvegi, landbúnaði og mat- vælaframleiðslu. Fólki hefur fækk- að umtalsvert í sveitum og byggða- kjörnum sem byggja einkum á þjónustu við landbúnað. Sömuleið- is hafa smærri sjávarþorp víða átt erfitt uppdráttar vegna breytinga í veiðum og vinnslu og óvissu um aflaheimildir. Á sama tíma hafa strjálbýli og erfiðar samgöngur á ákveðnum svæðum staðið annarri atvinnuuppbyggingu fyrir þrifum og takmarkað aðgengi að gæðum fjölbreytts nútímasamfélags. Alvarlegur byggðavandi á Íslandi er landfræðilega afmarkaður og nær til lítils hluta þjóðarinnar. Því er tiltölulega auðvelt að bregðast við honum með markviss- um hætti ef um það næst samstaða meðal þjóðar- innar og pólitískur vilji er fyrir hendi. Mikilvægt er að höfuðborgarsvæðið og önnur vaxtarsvæði lands- ins fái áfram að dafna. Það er jafnframt mikilvægt að stjórnvöld tryggi öfl- ugt stoðkerfi atvinnulífs- ins, sanngjarna dreifingu opinberra starfa og opin- bera þjónustu í heimabyggð eftir því sem mannfjöldi leyfir. Með samgöngu- bótum má styrkja og þétta vaxtarsvæði landsins, stækka þau og tengja með hagkvæmum hætti. Mikilvægi netsamskipta og öflugra gagnaflutninga fer jafnframt sífellt vaxandi og nauðsynlegt að hraðar tækniframfarir á því sviði nái sem fyrst til allra landsmanna. Þá er afhendingaröryggi og sambæri- legur orkukostnaður einstaklinga og fyrirtækja mikilvæg forsenda við- unandi búsetuskilyrða um allt land. Draga þarf úr óvissu í brot- hættum byggðum með því að skil- greina með skýrum hætti þá opin- beru þjónustu sem íbúarnir eiga rétt á í heimabyggð, hvernig hún verði tryggð til lengri tíma og hvernig íbúarnir geti með auðveld- um og ódýrum hætti sótt aðra þjón- ustu til svæðisbundinna þjónustu- kjarna eða höfuðborgarsvæðisins. Tryggja þarf stöðugleika sjávar- útvegs í þeim sjávarbyggðum sem liggja utan stærri vinnusóknar- svæða ef þær eiga að halda velli til langframa. Huga þarf að grunn- gerð sveitasamfélaga og nýta opin- beran stuðning við landbúnað með markvissari hætti til að styrkja samfélagsgerðina, auðvelda kyn- slóðaskipti í landbúnaði og treysta svæðisbundna þjónustukjarna í sessi. Umfram allt er þó nauðsynlegt að stuðla að faglegri og sanngjarnari umræðu um byggðamál og skapa breiðari sátt um helstu markmið íslenskrar byggðastefnu. Það er sameiginlegt hagsmunamál þjóðar- innar allrar að stuðla að fjölbreytt- um búsetukostum og sjálfbærum samfélögum um land allt, fremur en að setja öll sín egg í sömu körfuna. Er byggðastefna blótsyrði? BYGGÐASTEFNA Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri og formaður stjórnar Byggðastofnunar ➜ Samspil ólíkra byggðar- laga hefur verið meðal helstu drifkrafta vaxtar og framfara um allt land um tveggja alda skeið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.