Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 33

Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 33
ÞJÓÐHÁTÍÐ 140 ára Hljómsveit in goðsagna-kennda Quarashi spilar á Þjóðhátíð í ár en sveit- in hefur aldrei áður haldið tón- leika í Vestmannaeyjum. Quar- ashi verður aðalatriðið á laugar- dagskvöldinu þar sem hún mun spila öll sín þekktustu lög á stóra sviðinu í Herjólfsdal. Sveitin starf- aði á tímabilinu 1996-2005 og náði miklum vinsældum hérlendis auk þess sem hún vakti nokkra athygli erlendis, þá helst í Japan og Banda- ríkjunum. Sölvi Blöndal, forsprakki hljómsveitarinnar, lofar frábær- um tónleikum og mikilli upplifun fyrir þjóðhátíðargesti enda sé tón- list Quarashi stór og mikil og þurfi marga áhorfendur til að njóta sín. „Þetta verða einu tónleikar okkar í sumar og kannski þeir síðustu á ferlinum, hver veit. Ég hef aldrei komið til Vestmannaeyja og hlakka mikið til að spila í dalnum. Í sjálfu sér veit ég ekkert hvað ég er að fara út í en hef bara heyrt góða hluti um Þjóðhátíð og heimamenn.“ Allir fyrrverandi meginliðsmenn sveit- arinnar verða með í Eyjum en auk Sölva eru það Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted, Ómar „Swarez“ Hauksson og Egill „Tiny“ Thor- arensen. Flestir þjóðhátíðargestir eru ungt fólk sem var á leikskóla- aldri þegar fyrsta plata sveitar- innar kom út. Sölvi segir það vera skemmtilega upplifun að spila fyrir nýja aldurshópa sem þó þekki tónlist þeirra vel. „Ég upp- götvaði það fyrst fyrir alvöru á Bestu hátíðinni árið 2011 hvað við vorum að spila fyrir ungt fólk. Ég labbaði aðeins út fyrir og leit yfir áhorfendurna. Þetta voru allt um 16-20 ára krakkar sem voru varla fædd þegar fyrsta plata okkar kom út. Það var alveg frábær sjón.“ NÝTT LAG Í HAUST Quarashi gaf út nýtt lag í vor, Rock On, sem hefur fengið mikla spil- un en tíu ár eru síðan sveitin sendi síðast frá sér nýtt lag. Sölvi segir hljómsveitina stefna á að senda annað lag frá sér í lok ágúst eða snemma í september. „Þótt Quar- ashi muni kannski aldrei spila framar er þessi frumþörf alltaf til staðar, að semja tónlist. Hún er jú rótin að þessu öllu saman. Quar- ashi hefur alla tíð verið mér hug- stæð. Ef ég er í stuði til að búa til tónlist geri ég það. Það þýðir þó ekki að ég geri það alla tíð. Ég er í miklu stuði þessa dagana en við verðum bara að sjá til hvernig málin þróast næstu árin.“ Ferill sveitarinnar var við- burðaríkur og margt stendur upp úr í minningunni að sögn Sölva. „Við fórum á einu ári úr því að spila fyrir tvo unglinga í félags- miðstöð hér heima í að hita upp fyrir Eminem í Bandaríkjunum. Það sem stendur upp úr er að hafa fengið tækifæri til að taka þetta nánast alla leið. Við trúðum á okkur allan tíman og það er ótrú- lega gaman að horfa til baka og rifja upp þetta tímabil. Við vorum til dæmis fyrsta íslenska hljóm- sveitin sem fyllti Laugardalshöll og einnig sú fyrsta sem gaf út lag á MP3-formi sem var mikil nýjung á þeim tíma. Auk þess hituðum við upp fyrir Prodigy hér heima þann- ig að þetta var ferðalag sem ég get hiklaust mælt með.“ Quarashi mætir í Herjólfsdalinn Hljómsveitin Quarashi verður aðalnúmerið á Þjóðhátíð í ár en þetta verða einu tónleikar sveitarinnar á þessu ári. Nýtt lag frá sveitinni kom út í vor og annað er væntanlegt í lok sumars. Hljómsveitin starfaði á árunum 1996–2005 og naut mikilla vinsælda. Þrír félaga Quarashi sem spila á Þjóðhátíð: Steinar Fjeldsted, Sölvi Blöndal og og Egill „Tiny“ Thorarensen. MYND/DANÍEL FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2014

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.