Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGÞjóðhátíð FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 20148
BRENNAN Á FJÓSAKLETTI
Einn af hápunktum Þjóðhátíðar
í Vestamannaeyjum er brennan á
Fjósakletti á föstudagskvöldinu.
Þjóðhátíð er nú haldin í 140.
skiptið en elstu heimildir um
brennuna eru frá árinu 1929.
Á hverju ári er hefðbundnum
trébrettum staflað hverju ofan á
annað, samtals 55 brettahæðir,
sem mynda um átta metra háan
turn á Fjósaklettinum í Herjólfs-
dal. Fyrr í vikunni eru brettin
vírbundin svo þau hrynji ekki og
á föstudeginum sjálfum eru þau
olíuborin svo þau séu tilbúin
fyrir brunann. Um kvöldið eru
neðstu brettin bleytt aftur og
á miðnætti er eldur borinn að
brettastaflanum. Það er sérstakur
brennukóngur sem hleypur
upp brekkuna með kyndil og
tendrar brennuna við mikinn
fögnuð þjóðhátíðargesta. Til að
halda lífi sem lengst í eldinum
sjá svokallaðir „skvettarar“ um
að skvetta olíu á brennuna
þannig að eldurinn nái að lýsa
upp dalinn sem lengst. Yfirleitt
logar enn í brennunni snemma
morguns þegar formlegri dagskrá
lýkur. Brettunum, sem notuð
eru, er safnað saman allt árið og
koma þau meðal annars frá fyrir-
tækjum bæjarins. Í fallegu veðri
þykir brennan ein sú fegursta, ef
ekki sú fegursta, sem tendruð er
hérlendis.
LAUGARDAGSPASSINN
Af hverju ekki að fara í dagsferð til Eyja á Þjóðhá-
tíð og upplifa magnaðan laugardag sem endar
með ofurtónleikum Quarashi? Engin gisting og
ekkert vesen!
Í ár mun Þjóðhátíðarnefnd bjóða upp á laugar-
dagsferð og laugardagspassa á Þjóðhátíð.
Pakkinn mun kosta einungis 14.420 kr. á mann og
verður einungis takmarkað magn miða í boði.
Í pakkanum er innifalinn laugardagspassi í
Herjólfsdal, 11.900 kr. og tvær ferðir með Herjólfi
á 1.260 kr. hvor ferð. Einnig verður hægt að kaupa
laugardagspassann eingöngu.
Dagskráin á laugardagskvöldinu er ekki af verri
endanum: Kvöldvaka, Skonrokk, Skítamórall,
Mammút, Jónas Sigurðsson, John Grant, flug-
eldasýning og Quarashi
Hægt er að leggja af stað frá Landeyjahöfn með
Herjólfi á laugardeginum kl. 13, 16 og 19. Brottför
frá Eyjum er aðfararnótt sunnudags kl. 4, 6 og
8.30. Takmarkað sætaframboð er í Herjólf þessar
ferðir – því skiptir máli að vera snemma á ferðinni
til að tryggja sér miða! Kauptu miða á dalurinn.is
Verð:
14.420 kr. aðgangsmiði með Herjólfi
11.900 kr. aðgangsmiði
1.260 kr. Ferðin með Herjólfi
Brekkusöngurinn er einn af hápunktum Þjóð-
hátíðar. Þeir sem ekki treysta sér til þess að vera
alla hátíðina en vilja samt taka þátt í brekkusöng-
num geta keypt svokallaðan sunnudagspassa.
Dagskráin um kvöldið er svo ekki af verri end-
anum. Klukkan 21 stíga á svið Fjallabræður ásamt
Lúðrasveit Vestmannaeyja og gestum, Jónasi
Sigurðssyni, Sverri Bergmann og Helga Björns.
Klukkan 23.15 er brekkusöngur og á miðnætti er
kveikt á blysum í brekkunni ofan við dalinn. Fyrir
dansi eftir miðnætti spila Retro Stefson og Sálin.
Nánari upplýsingar um passana er að finna á
síðunni www.dalurinn.is
SUNNUDAGSPASSINN
*Dagskrá Þjóðhátíðar 2014 er birt með fyrirvara um breytingar
15:00
FÖSTUDAGUR
Setning Þjóðhátíðar
Þjóðhátíð sett: Sigursveinn Þórðarson
Hátíðarræða: Martin Eyjólfsson
Hugvekja: Séra Guðmundur Örn Jónsson
Kór Landakirkju
Lúðrasveit Vestmannaeyja
Bjargsig: Bjartur Týr Ólafsson
14:30
Barnadagskrá á Tjarnarsviði
Frjálsar íþróttir, Ungmennafélagið Óðinn
Fimleikafélagið Rán
Brúðubíllinn
Barnaball með Páli Óskari, Páll Óskar
gefur eiginhandaáritanir eftir ball
15:00
SUNNUDAGUR
Létt lög í dalnum10:00
Barnadagskrá á Brekku- og Tjarnarsviði
Latibær
The Mighty Gareth
Söngvakeppni barna, Dans á rósum
15:30 Hoppukastalar
15:30 Alltaf Gaman – Leikjaland með ýmsum leikjum
fyrir alla fjölskylduna
15:00
LAUGARDAGUR
Létt lög í dalnum10:00
Barnadagskrá á Brekku- og Tjarnarsviði
Brúðubíllinn
Latibær
The Mighty Gareth
15:30 Hoppukastalar
15:30 Alltaf Gaman – Leikjaland með ýmsum leikjum
fyrir alla fjölskylduna
16:30 Söngvakeppni barna, Dans á rósum
Kassabílarall – hefst e tir að söngvakeppni f
barna líkur
Dansleikir á báðum pöllum
Brekkusvið: Friðrik Dór – MC Gauti
– Páll Óskar
Tjarnarsvið: Dans á rósum og
The Backstabbing Beatles
KVÖLDVAKA
Frumflutningur þjóðhátíðarlags, Jón Jónsson
100 ára afmæli Ása í Bæ
Kaleo
Baggalútur
Páll Óskar
Brenna á Fjósakletti
Skálmöld
20:30
21:15
21:45
22:30
23:15
00:00
00:15
KVÖLDVAKA
Dans á Rósum
Sigurvegarar úr sönvakeppni barna
Fjallabræður ásamt Lúðrasveit Vestmannaeyja
og gestum
Jónas Sigurðsson
Sverrir Bergmann
Helgi Björns
Brekkusöngur
Blys
Dansleikir á báðum pöllum
Brekkusvið: Retro Stefson Sálin–
Tjarnarsvið: Dans á rósum, Brimnes
20:30
21:00
21:00
23:15
00:00
KVÖLDVAKA
Skonrokk
Skí amórallt
Mammút
Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar
The Mighty Gareth
John Grant
Flugeldasýning
Quarashi
Dansleikir á báðum pöllum
Brekkusvið: Skonrokk - Skítamórall
Tjarnarsvið: Brimnes
20:30
21:05
21:40
22:20
23:00
23:15
00:00
00:15