Fréttablaðið - 17.07.2014, Page 54

Fréttablaðið - 17.07.2014, Page 54
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 „Ég hef trú á að þeir séu á ákveðnum þröskuldi og gætu orðið mjög vinsælir um heim allan,“ segir rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð en hann stendur fyrir heimsókn spænsku hljómsveit- arinnar I am Dive sem kemur fram á tónleikum hér á landi í kvöld. Um er að ræða dúett sem spilar blöndu af elektróník og rólegri popptónlist og er af mörgum talin ein áhugaverð- asta hljómsveit Spánar um þessar mundir. „Ég bý að miklu leyti á Spáni og fylgist mikið með tónlistinni þar. Ég kynntist þeim fyrir um fjórum árum og finnst þeir gera mjög spenn- andi hluti. Ég kynntist svo meðlimum sveitarinnar fyrir algjöra tilviljun og eftir umræður um Íslandsför eru þeir komnir hingað,“ útskýrir Óttar. I am Dive hefur komið víða við og hefur farið í tónleikaferðalög um bæði Evrópu og Bandaríkin síðustu ár en er nú á Íslandi í fyrsta sinn. „Ég hef verið að sýna þeim helstu ferða- mannastaðina en þeir nenntu ekki ofan í Bláa lónið en fannst lónið þó ákaflega fagurt og áhugavert.“ Tón- leikarnir hefjast klukkan 20.30 og fara fram á skemmtistaðnum Húrra en hljómsveitin Stafrænn Hákon kemur einnig fram. - glp Nenntu ekki ofan í Bláa lónið Spænska hljómsveitin I am Dive er komin hingað til lands og heldur tónleika hér á landi. Hún þykir ein áhugaverðasta hljómsveit Spánar um þessar mundir. Ég hef verið að sýna þeim helstu ferðamannastaðina en þeir nenntu ekki ofan í Bláa lónið en fannst lónið þó ákaflega fagurt og áhugavert. fiykkvabæjar forso›nar grillkartöflur e›a kartöflusalat me› hrásalati. Einfalt og gott! FUNHEITAR E‹A SVALAR ar gu s – 05 -0 30 2 SPILA Á ÍSLANDI Spænski dúettinn I am Dive kemur fram á Húrra í kvöld ásamt Stafrænum Hákoni. MYND/ ELO VÁZQUEZ HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2014 Tónleikar 12.00 Sigrún Magna Þórsteinsdóttir leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Aðgangseyrir er 1.700 krónur. 17.00 Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævars- son úr My Sweet Baklava flytja tónlist tengda hafinu á Aggapalli við Langasand á Akranesi. Aðgangur er ókeypis. 20.00 Voces Thules hefur þriðju viku Sumar- tónleika í Skálholti með tónleikum. Á tón- leikunum verður sungið á 12. og 13. aldar íslensku og latínu. Í tilefni af upphafi Skál- holtshátíðar verður m.a. prósan Innocentem te servavit sungin til heiðurs Þorláki Þórhalls- syni biskupi í Skálholti á 12. öld. 21.00 Sveinn Guðmundsson og Unnur Sara Eldjárn flytja hvort sitt prógrammið af frum- sömdu efni á Lofti Hosteli. Sveinn spilar á gítar og syngur um magaólgur, grímuböll, frændur, klukkur, ketti, feluleiki og sjálfan sig. Unnur Sara semur draumkennda popptónlist og flytur með eigin söng og gítarundirleik. 21.00 Grísalappalísa og Dj Flugvél og Geim- skip blása til tónlistarskrúðgöngu um landið en í kvöld koma þau fram í Gamla Kaup- félaginu á Akranesi. 22.00 Magnús R. Einarsson heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. Fræðsla 20.00 Fræðsluferð í tengslum við Miðalda- daga á Gásum. Sagt verður frá viðamiklum uppgreftri sem fór fram að Gásum á árunum 2001-2006 og farið í rútuferð fram Hörgárdal- inn. Dagskráin hefst á bílastæðinu að Gásum. Þátttaka og rútuferð er ókeypis og öllum heimil. Sýningar 09.00 Á sýningunni Villt hreindýr á Íslandi er hægt að sjá og fræðast um hreindýr og líf þeirra en hún fer fram í Flóanum í Hörpu. Hreindýrasýningin er fullkomin blanda menn- ingar, náttúru og tækninýjunga og er mikil upplifun fyrir alla aldurshópa. Miðaverð er 1.900 krónur. 12.00 Kristín Dagmar Jóhannesdóttir leiðir gesti um sýninguna Í ljósaskiptum í Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7. Sýningin tekur mið af þeim magnaða hluta sólarhringsins, sem hvorki er dagur né nótt heldur bil beggja. 14.00 Sirkus Íslands er staddur á Ísafirði. Sýninguna S.I.R.K.U.S. hefur Sirkus Íslands sett saman með yngri börnin í huga en þó ekki á kostnað eldri áhorfenda. Sýningin fer fram í tjaldinu Jökla og er miðaverð 2.500 krónur. 17.00 Sirkus Íslands á Ísafirði. Heima er best er stóra fjölskyldusýning Sirkus Íslands. Hún er alíslensk sirkusskemmtun þar sem öll fjöl-

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.