Fréttablaðið - 15.09.2014, Page 4
15. september 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
ATVINNUMÁL Heildarlaun félaga
í Starfsmannafélagi Ríkisins í
fullu starfi hafa hækkað um rúm-
lega 26 þúsund krónur frá því í
janúar í fyrra, samkvæmt nýrri
launakönnun sem Capacent Gallup
gerði fyrir félagið. Þetta er rúm-
lega 7 prósenta hækkun. Meðal-
tal heildar launa í könnuninni nú
voru 398 þúsund en voru 372 þús-
und fyrir ári og 352 þúsund fyrir
tveimur árum fyrir fullt starf.
Árni Stefán
Jónsson, for-
maður SF R,
hefur áhyggjur
af hinum launa-
lægstu. „Þetta
eru lág laun
sem við erum
að horfa upp á.
Fimm lægstu
prósentin eru
með ansi lág
laun, um 245-250 þúsund. Það er
vandamál hvað lægsti hópurinn
hefur það alltaf skítt. Þótt menn
reyni að hífa hann upp þá tekst það
í ákveðinn tíma og svo eru aðrir
farnir fram úr honum og hann
situr einhvern veginn alltaf eftir.
Ég á ekki skýringar eða ráð um
það hvernig í ósköpunum á að tak-
ast á við þetta,“ segir Árni Stefán
en bætir því við að hann vonist til
að þeir sem eru í lægsta hópnum
séu menn sem ekki hafi verið með
mjög mikla fjölskylduábyrgð.
Laun starfsmanna innan SFR
hafa að meðaltali hækkað um um
það bil 7 prósent síðastliðin þrjú
ár, eða alls um 20 prósent. „Síðustu
þrjú ár hefur okkur tekist betur
upp prósentulega en oft áður. Þrátt
fyrir allt hafa kjarasamn ingar
síðustu ár lagt áherslu á lægstu
launin sem skilar okkur eitthvað
hærri prósentu.“ Árni Stefán
segir þó að opinberir starfsmenn
eigi langt í land með að ná starfs-
mönnum á almenna markaðnum.
„Þarna er allt upp undir 17 pró-
senta munur sem almenni mark-
aðurinn er hærri um og við höfum
reynt að halda aðeins betur í við þá
síðustu árin,“ segir hann.
Heildarlaun félaga hjá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar
hafa hækkað um 5 prósent frá því
í könnuninni fyrir ári. Á þremur
árum hafa þau hækkað um átján
prósent.
„Áhyggjuefnið er að það kemur
fram mikil óánægja með laun-
in og það er meiri starfsmanna-
velta,“ segir Garðar. „Það er
þetta sem sló mig mest,“ segir
hann. Í könnuninni kemur fram
að rúmlega sjö af hverjum tíu
séu óánægðir með launakjör sín.
Þetta hlutfall er heldur hærra en í
síðustu könnunum. Meiri óánægja
mælist á meðal kvenna en karla.
Um 60 prósent félagsmanna í
SFR eru óánægðir með launin,
en ánægja með laun hefur verið
svipuð síðustu fjögur ár. Karlar
eru örlítið ánægðari með sín laun
en konur.
jonhakon@frettabladid.is
Tuttugu prósenta hækkun
launa á þriggja ára tímabili
Heildarlaun félaga í Starfsmannafélagi ríkisins hafa hækkað að meðaltali um tuttugu prósent á þriggja ára
tímabili. Formaður félagsins hefur áhyggjur af þeim launalægstu, þótt mikil áhersla hafi verið lögð á að hækka
laun þeirra. Á þremur árum hafa laun starfsmanna í Starfsmannafélagi ríkisins hækkað um átján prósent.
FÓLK Heildar-
laun félaga í
Starfsmanna-
félagi ríkisins í
fullu starfi hafa
hækkað um rúm-
lega 26 þúsund.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÁRNI STEFÁN
JÓNSSON
Könnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var gerð þannig að úrtak
var 3.500 manns, en 1.700 félagar sendu inn lista og voru notuð rúmlega
1.300 svör við úrvinnsluna. Svarhlutfall var 47 prósent. Af þeim sem
svöruðu voru konur 67 prósent og karlar 33 prósent. Langflestir svöruðu á
netinu. Könnunin var unnin af Capacent Gallup í febrúar og mars 2014 og
var spurt um laun 1. febrúar 2014.
Könnun Starfsmannafélags ríkisins var gerð á sama tíma og könnun
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Svarhlutfall var 59 prósent og af
þeim sem svöruðu voru 74 prósent konur og 26 prósent karlar. Hlutfall
kvenna í félaginu er um 70 prósent.
Aðferðafræði könnunarinnar
5.826 manns störfuðu í 5.099 stöðugildum
á leikskólum í desember 2013.
Starfsfólk í leikskólum á Íslandi hefur
aldrei verið fleira en í desember
2013. Á sama tíma sóttu 19.713 börn
leikskóla á Íslandi og hafa aldrei verið
fleiri. Heimild: Hagstofa Íslands.
STJÓRNMÁL Hanna Birna Kristjáns-
dóttir sagði að hún hefði aldrei séð
stjórnmálin sem einhverja end-
astöð og gæti alveg eins séð sjálfa
sig á öðrum starfsvettvangi í sjón-
varpsþættinum Eyjunni á Stöð 2
í gær.
Hanna Birna er einnig ósátt við
tölvupósta sem blaðamaður DV
sendi aðstoðarmanni hennar, Þór-
eyju Vilhjálmsdóttur. „Það kemur
fram í umræddum skeytum að
það sé eins gott fyrir hana að játa
glæpinn, annars verði fjallað um
málið á forsíðu blaðsins,“ sagði
Hanna Birna. -ih
Hanna Birna ósátt við DV:
Segir stjórnmál
ekki endastöð
HANNA BIRNA Innanríkisráðherra seg-
ist sjá sig á öðrum vettvangi en í stjórn-
málum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson
hefur lagt fram lagafrumvarp um
að virðisaukaskattur verði endur-
greiddur af vinnu manna við við-
hald kirkna og annarra samkomu-
húsa trú- eða lífskoðunarfélaga.
Í greinargerð með frumvarp-
inu segir að hægt hafi verið að fá
virðisaukaskatt endurgreiddan
vegna vinnu við íbúðarhúsnæði og
sumarbústaði í nokkur ár. Því væri
ekki úr vegi að sambærileg ákvæði
giltu um trú- og lífskoðunarfélög
enda hafi viðhald kirkna víða setið
á hakanum í efnahagsþrengingum
síðustu ára. -ih
Endurgreiðslur til trúfélaga:
Vilja að kirkjur
fái skattaafslátt
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
BRETLAND, AP „Þeir eru engir mús-
limar, þeir eru skrímsli,“ sagði
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, um liðsmenn Íslamska
ríkisins sem í gær birtu myndband
sem sagt var sýna afhöfðun bresks
hjálparstarfsmanns, David Haines
að nafni.
Haines er þriðji Vesturlanda-
búinn sem samtökin taka af lífi í
Sýrlandi með þessari aðferð, og
birta myndband því til staðfest-
ingar. Cameron hefur ekki kynnt
neinar hernaðaraðgerðir gegn Ísl-
amska ríkinu, en Bandaríkin hafa
undanfarið verið að safna liði á
meðal vestrænna og arabískra
stjórnvalda. Bandaríkin hafa sjálf
gert fjölmargar loftárásir á víga-
sveitirnar síðustu vikurnar. Araba-
bandalagið hefur einnig samþykkt
að hefja hernað gegn Íslamska rík-
inu.
Tyrkland hyggst hins vegar
standa hjá, enda sjá tyrknesk
stjórnvöld sér engan hag í að styðja
við Kúrda í norðurhluta Íraks.
Kúrdar í Írak og Tyrklandi hafa
lengi viljað stofna sjálfstætt ríki,
en Tyrkir mega ekki til slíks hugsa.
Vígasveitir Íslamska ríkisins,
sem hafa á sínu valdi stór svæði
bæði í Sýrlandi og Írak, hafa eflst
mjög á síðustu vikum og mánuðum.
Bandarískir leyniþjónustumenn
fullyrða að samtökin þurfi ekki
lengur að treysta á fjárframlög frá
auðkýfingum við Persaflóann held-
ur séu þau farin að þéna meira en
þrjár milljónir Bandaríkjadala á
dag með olíusmygli, mansali, þjófn-
aði og fjárkúgunum. - gb
Öfgasamtökin Íslamskt ríki afla sér fjár með smygli á olíu, ránum, mansali og fjárkúgunum:
Þriðji Vesturlandabúinn tekinn af lífi
TEKINN AF LÍFI Úr myndbandinu sem
sagt er sýna aftöku Davids Haines í Sýr-
landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
LÆGIR og sést víða til sólar á morgun en búast má við rigningu víðast hvar á landinu
á miðvikudag. Kólnar heldur í vikunni, hiti að 20 stigum í dag en verður á bilinu 8-13
stig næstu daga.
9°
10
m/s
10°
10
m/s
9°
7
m/s
11°
5
m/s
víða 3-8
m/s
Víða
hægviðri.
Gildistími korta er um hádegi
22°
32°
20°
24°
21°
17°
21°
19°
19°
29°
21°
34°
30°
28°
24°
23°
20°
21°
11°
5
m/s
11°
8
m/s
16°
8
m/s
15°
6
m/s
15°
8
m/s
11°
8
m/s
6°
9
m/s
10°
11°
9°
8°
11°
9°
11°
9°
11°
11°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN