Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 62
15. september 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26
➜ Lagið Hallelujah
hefur verið endurgert
yfi r 300 sinnum.
D-vítamínbætta léttmjólkin er komin í spariföt til stuðnings beinheilsu
þjóðarinnar. Í hvert skipti sem þú velur D-vítamínbætta léttmjólk renna
15 krónur til kaupa á beinþéttnimæli handa Landspítalanum, en með
honum er hægt að meta ástand beina á augabragði. Um leið hleðurðu inn
kalki og D-vítamíni í beinin þín sem verða sterkari með hverju glasi.
D-vítamínbætt léttmjólk
breytir tímabundið um útlit
Stöndum saman – styrkjum beinin
„Þetta er búið að vera alveg brjál-
að, myndin fór fyrst á Sundance-
kvikmyndahátíðina og svo var
hún keypt af Sony Classic Pict-
ures eftir frumsýninguna. Þetta
er engin smá viðurkenning,“ segir
Alice Olivia Clarke, leik- og lista-
kona sem leikur í hinni bandarísk-
íslensku kvikmynd Land Ho!.
Myndin verður opnunarmynd
RIFF-kvikmyndahátíðarinnar
sem sett verður í Háskólabíói 25.
september. Land Ho! er vegamynd
í léttum dúr um tvo roskna vini og
ferðalag þeirra um Ísland. Mynd-
in hefur slegið í gegn þar vestra
og er nú verið að sýna hana víðs
vegar um Bandaríkin og Kanada.
„Myndin var skotin á um það
bil tuttugu dögum seinasta haust.
Tökuliðið stoppaði frekar stutt og
síðan komst hún inn á Sundance.
Athyglin sem hún hefur verið að
fá er alveg ótrúleg, þetta er ein-
staklega falleg mynd.“
Alice er frá Ottawa í Kanada en
hún hefur búið hér á landi sein-
ustu tuttugu árin með eiginmanni
sínum, Kára Eiríkssyni arkitekt.
Þau hittust í Kanada þegar hann
lærði þar arkitektúr. Í Land Ho!
leikur hún ljósmyndara sem rekst
á gömlu vinina tvo í heitri laug.
Ásamt því að hafa leikið í
öðrum kvikmyndum, eins og The
Good Heart eftir Dag Kára og
Reykjavík eftir Ásgrím Sverris-
son, rekur Alice vinsæla fylgi-
hlutalínu að nafni Týra – ljómandi
fylgihlutir.
Alice segist vera afar spennt
fyrir opnunarhátíð RIFF þar sem
Land Ho! verður loksins frum-
sýnd hér á Íslandi.
„Það verður gaman að geta sýnt
öllum vinum og vandamönnum
mínum myndina. Hún var sýnd
vestur í Ottawa fyrir nokkrum
vikum og það mættu svakalega
margir. Íslendingar geta reynt að
gera betur,“ segir Alice að lokum.
- þij
Land Ho! keypt af Sony
Alice Olivia Clarke leikur í hinni bandarísk-íslensku Land Ho sem er opnunar-
mynd RIFF í ár. Hún hefur búið á Íslandi í tuttugu ár ásamt manni sínum.
ENGIN SMÁ VIÐURKENNING Alice Olivia hlakkar til að sýna vinum og vandamönnum myndina. MYND/SKJÁSKOT
Myndin var skotin á
um það bil tuttugu
dögum seinasta haust.
Alice Olivia Clarke,
leik- og listakona.
Það mun vera lagið Let It Go með
Shlohmo og Jeremih.
Logi Pedro tónlistarmaður.
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Hún hefur ekki komið til landsins
en hana langar mikið að koma og er
virkilega uppnumin að það sé verið
að halda svona tónleika á Íslandi,“
segir Franz Gunnarsson en hann
stendur fyrir tónleikum til heiðurs
Jeff Buckley og hefur verið í sam-
bandi við móður Buckleys, Mary
Guibert, undanfarin ár. Hann hitti
hana fyrst árið 2007 á tónlistarhá-
tíð í Bandaríkjunum. „Ég hef staðið
fyrir Jeff Buckley-heiðurstónleikum
áður en það var árið 2007. Skömmu
áður hitti ég móður Buckleys á tón-
listarhátíð í Bandaríkjunum og hún
var alveg uppnumin yfir því að það
væri verið að halda tónleika til heið-
urs syni sínum á Íslandi. Hún komst
því miður ekki þá en sendi okkur
kveðjur á myndbandi sem sýnt var á
skjá fyrir tónleikana 2007,“ útskýrir
Franz.
Hann fékk í kjölfarið sendar sér-
stakar Jeff Buckley-gítarneglur og
hefur verið í sambandi við hana
síðan. „Hún stýrir öllu Buckley-batt-
eríinu og hefur í nógu að snúast.“
Guibert kemst þó ekki á tónleikana
í vikunni en á þeim verður farið yfir
feril Buckleys.
„Við leikum hans vinsælustu lög
en tilefni tónleikanna er 20 ára
útgáfuafmæli Grace-plötunnar. Við
leikum hana frá a til ö og einnig
tökulög sem hann var að taka á tón-
leikum.“
Tónleikarnir fara fram á Gaukn-
um á fimmtudagskvöld og hefjast
stundvíslega klukkan 21.00.
– glp
Mamma Buckleys heilluð af Íslandi
Mary Guibert, móðir Jeff s Buckley, er snortin yfi r áhuga Íslendinga á syni sínum.
HEIÐRAÐUR Jeff Buckley lést langt
fyrir aldur fram.
„Loftur hefði orðið 35 ára í vikunni
og okkur langaði að gera eitthvað
sérstakt af því tilefni,“ segir Gunn-
ar Hilmarsson fatahönnuður, einn
af þeim sem standa að Minning-
arsjóði Lofts Gunnarssonar sem
berst fyrir bættum hag utangarðs-
fólks á Íslandi.
Sjóðurinn stendur nú fyrir sölu
á 50 hermannajökkum svipuðum
þeim sem Loftur klæddist gjarna
en hann var þekktur fyrir sinn
sérstaka stíl. Jakkanum breytti
hann sjálfur og Nonni í Dead setti
nokkur handgerð prent á jakkann
fyrir Loft og ýmislegt bætt-
ist á jakkann með tím-
anum, svo sem barm-
merki, nælur og fleira.
Jakkarnir verða eins
nákvæm eftirgerð
og mögulegt er af
upprunalega jakk-
anum og eru seldir
í forsölu á Karol-
ina fund. Gunnar
segir viðtökurnar
hafa farið fram úr
þeirra björtustu
vonum. „Þeir sem
vilja tryggja sér
jakkann verða að
hafa hraðar hendur
því þetta hefur rokið
út. Það verður líka ein-
hvers konar yfirlýsing
fyrir þennan málstað hjá þeim sem
bera jakkann, um að við erum öll
eins og maður á ekki að dæma ein-
hvern fyrir það hvernig hann lítur
út,“ segir Gunnar, mágur Lofts.
Allur ágóði af framleiðslu jakk-
ans fer í næsta
verkefni Minn-
ingarsjóðs Lofts
Gunnars sonar,
en það er að
kaupa átta ný
rúm á heimili
fyrir heimilis-
lausa karlmenn
á Njálsgötu 74.
Loftur lést í
janúar 2012 og að minn-
ingarsjóðnum standa vinir og
vandamenn Lofts. „Loftur átti
mikið bakland og mikið net af fólki
sem þótti vænt um hann þó að hann
áttaði sig ekki alltaf á því.“
-áp
Eft irlíking jakka
Loft s til styrktar
heimilislausum
Gunnar Hilmarsson hefur endurgert hermannajakka
Loft s Gunnarssonar en allur ágóðinn verður notaður til
kaupa ný rúm á heimili fyrir heimilislausa karlmenn.
HALDA MINNINGU LOFTS Á
LOFTI Hjónin Gunnar og
Kolbrún hafa endurgert
hermannajakka Lofts,
bróður Kolbrúnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK