Fréttablaðið - 15.09.2014, Page 13

Fréttablaðið - 15.09.2014, Page 13
MÁNUDAGUR 15. september 2014 | SKOÐUN | 13 Fjárlagafrumvarpið sýnir af- dráttar lausar hugmyndir um verðugar tekjulindir: Gjöld verða lækkuð á Lexusum en hækkuð á lestri. Stefnt er að því að Íslend- ingar hætti að vera lestrarhestar og verði að lesuxum. Ekki verð- ur hætt að þjarma að bókaútgáfu á Íslandi fyrr en hvítbókin hans Illuga Gunnarsson er eina bókin sem verður eftir í landinu – með hvítum og alauðum blaðsíðum. Hæstvirtur Glanni Því sumar tekjulindir eru nær- tækari en aðrar. Á sama ári og útgerðin skilar methagnaði út af lágu gengi krónunnar (og lækk- uðu gjaldi fyrir afnot af sam- eiginlegri auðlind landsmanna) er vandfundin kostnaðarsam- ari iðja í samfélaginu um þess- ar mundir en að gangast undir krabbameinsmeðferð og þarf fólk sem er að berjast fyrir lífi sínu jafnframt að hafa stór felldar áhyggjur af afkomu sinni og sinna. Það háttalag að rukka fólk fyrir veikindi – eins og nokkurs konar skemmtanaskatt – er vissu- lega arfur frá fyrri stjórnum, hvort sem þær voru bólustjórnir eða stóðu í endurreisn efnahags- lífsins – en verður ekki skárra fyrir það, allra síst ef það er satt, sem haldið er fram, að allt sé nú með blóma á ný. Hinu lága gengi krónunnar fylgir ekki bara minni kaupmátt- ur almennings og hærri greiðslu- byrði á lánum sem „leiðrétt“ eru með rykkjum á tuttugu ára fresti heldur ekki síður hitt að matar- verð hækkar, hækkar og hækkar en lækkar ekki; gömul kona á Raufarhöfn minnist þess að vísu að eitt sinn hafi poki af rúsínum í Kaupfélaginu lækkað ör lítið í verði eftir að hafa legið þar ósnertur í á þriðja ár einhvern tímann á ofanverðri seinustu öld en af öðrum verðlækkunum hefur varla heyrst í háa herrans tíð. Matur er alltof dýr á Íslandi. Alltof hátt hlutfall af tekjum launafólks fer í að kaupa í kvöld- matinn, einfaldan mat; græn- meti, kjöt og fisk, ávexti, hafra- grjón, kannski ost. Stjórnarliðinu finnst þó ekki nóg að gert og hyggst hækka verðið á matnum með sérstakri skattlagningu – en þó eingöngu á hollum mat – enda sumar tekjulindir nær- tækari en aðrar. Engu er lík- ara en að sjálfur Glanni glæp- ur sé orðinn fjármálaráðherra. Óhollur matur verður lækk aður í verði samkvæmt sérstakri manneldisstefnu ríkisstjórnar- innar að stuðla að sem mestu sykuráti á meðal landsmanna, enda þjóðin hvergi nærri nógu feit og betur má ef duga skal ef á að ná kókdrykkjumarkmið- um ríkisstjórnarinnar. Fram- sóknarmenn hafa að vísu sett fyrirvara við þessi áform. Það táknar, eins og við vitum, að Sjálfstæðismenn eiga að taka á sig sökina af þessum álögum á mat – þ.e.a.s. holla matinn. Reyndar hafa snjallir menn sýnt fram á með mikilfenglegum hlut- fallareikningi að matarhækkunin komi ekkert verr við fátækt fólk en ríkt, en það dæmi er því miður gersamlega ofviða gömlum fall- ista í reikningi. Talaðu við mig eftir helgi Ekki þarf að fara í grafgötur um þann hug til mennta og lista sem ríkisstjórnin telur sér skylt að sýna í þessu fjárlagafrumvarpi. Það hefur lengi tíðkast við gerð fjárlaga hér á landi að vera lítið að stressa sig yfir lögbundnum skuldbindingum um framlög rík- isins, rétt eins og lög frá alþingi séu bara eins og hvert annað blogg, sem megi svo sem hafa gaman af en þurfi ekki að taka alvarlega. Þannig hafa nú afglap- arnir sem samþykktu að Ríkis- útvarpið skyldi fremur treysta á slíkar efndir en að geta gengið að sínu afnotagjaldi vísu komist að því fullkeyptu að lögbundin gjöld til þeirrar stofnunar munu aldrei skila sér og þess kann að vera skammt að bíða að Sigvaldi Júlíus son verði neyddur til að rappa tilkynningarnar, svo að Rás eitt geti borgað honum kaupið. Við þekkjum lögleysurnar og undanbrögðin við fjárlagagerð og erum kannski orðin samdauna þessum ósiðum, en það verður varla sagt um þá aðila í Holly- wood sem voru þeir kjánar að falla fyrir gylliboðum íslenskra stjórnvalda um endurgreiðslu virðisaukaskatts, kæmu þeir hingað með framleiðslu sína. Nú er sem sé ríkissjóður Íslands orðinn eins og hver annar skuld- seigur íslenskur umsvifamaður með rassvasabókhald, sem biður menn að hringja eftir helgi; þá verði kannski komið eitthvað. Kvikmyndaframleiðendunum er nú sagt að þeir fái ekki lögboðna endurgreiðslu fyrr en kannski seinna – hringdu í mig eftir helgi. Má geta nærri um þær afleið- ingar sem þetta á eftir að hafa fyrir þá öflugu en viðkvæmu starfsemi sem vaxið hefur í kringum þjónustu við kvik- myndagerðina; og hefur skapað ómæld störf víða um land, veitt fjármagni og lífi inn í byggðarlög sem búa við fábreytt atvinnulíf og gefið íslensku fagfólki í greininni ómetanlegt tækifæri til að þroska sig til frekari afreka. Allt er það í uppnámi og ekki þarf heldur að fara í grafgötur með það hvaða afleiðingar þetta háttarlag mun hafa fyrir orðspor landsins. Og blessaðar bókmenntirnar. Þær hafa fylgt þessari þjóð frá elstu tíð, sögur og ljóð, orðlist, allt frá því að fyrstu landnáms- mennirnir fóru orði um landið og nefndu það – og gegnum ald- irnar, fram á okkar daga. Hvað sem hver segir eru Íslendingar bókaþjóð og mega alveg hafa þá sjálfsmynd. Og þetta að skrifa og hugsa á íslensku – aðrar þjóðir geta því miður ekki tekið það að sér fyrir okkur. Flestar Evrópuþjóðir styðja við sína bókmenntasköpun, skilja hversu mikilsverður hluti það er af menningarlífi þeirra og hið sama hefur gilt hér á landi, burt- séð frá hægri og vinstri. Það er svo margt sem glepur fólk um þessar mundir – athyglisræningj- arnir eru við hvert fótmál. Bókaútgáfan þarf kannski ekki beinlínis á stuðningi yfirvalda að halda núna – en hún þarf heldur ekki á því að halda að rekstrar- grundvellinum sé kippt undan henni. Og ástandið verði þannig að þjóðin eigi aðeins eina bók, og hún sé hvít. Lexusar og lesuxar Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Við þekkjum lög- leysurnar og undan- brögðin við fjárlagagerð og erum kannski orðin sam- dauna þessum ósiðum. AF NETINU Skandinavar rólegri Í gær mættust í kappræðum Fredrik Reinfeldt forsætis- ráðherra, leiðtogi Moderata samlings- partiet, og forsætis- ráðherraefnið Stefan Löfven, formaður Sósíaldemókrata- flokksins. Ef einhverjir bjuggust við því að þessar kappræður yrðu spenn- andi, þá urðu hinir sömu fyrir vonbrigðum. Í frétt Politiken í Danmörku segir að þeir hafi verið sammála um flest. Þannig er pólitíkin í Skandinavíu – ekki jafn stríð og hér á Íslandi. Menn geta verið ósammála án þess að sé eins og ágreiningurinn snúist um himnaríki og helvíti. http://www.eyjan.pressan.is/ silfuregils Egill Helgason sjónvarpsmaður AF NETINU Besta ræðan frá VG Notalegt að heyra formenn stjórnar- flokkanna tala til allra landsmanna en ekki eingöngu til eigin kjósenda eins og var áberandi hjá forystumönnum stjórnarandstöð- unnar. Sumir voru meira í almennu kaffihúsaspjalli en gerðu það svo sem ágætlega. Og hafi einhver verið í vafa um að forystumaður Pírata væri róttækur vinstrisósíal- isti hvarf sá efi í umræðunum í gær. Best og heiðarlegust fannst mér þó ræða nýja þingmannsins í VG. Mætti samt halda að ræðan hefði verið fengin að láni frá ein- hverjum þeirra sem voru í sumar- búðum í Austur-Þýskalandi í byrjun áttunda áratugarins. http://www.pressan.is Brynjar Níelsson alþingismaður HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur, jölklippur, sandbl sturst ki og argt eira Járnsmíðavélar á verði sem gleður - fyrir fagfólk í léttum iðnaði og minni verkstæði Sýningarvélar á staðnum og rekstrarvörur að auki Rennibekkur 300-550 mm 65.958 kr. Bandsög 67.522 kr. ECO Slípivél 16.190 kr. Bandsög 125 mm 75.000 kr. Sandblásturs- kassi 29.900 kr. Járnkúttari 130 mm rör 88.101 kr. Fjölbeygjuvél 50.110 kr. Verkfærataska m/86 stk 36.315 kr. Kynntu þér úrvalið á idnvelar.is IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.