Fréttablaðið - 15.09.2014, Side 13
MÁNUDAGUR 15. september 2014 | SKOÐUN | 13
Fjárlagafrumvarpið sýnir af-
dráttar lausar hugmyndir um
verðugar tekjulindir: Gjöld verða
lækkuð á Lexusum en hækkuð á
lestri. Stefnt er að því að Íslend-
ingar hætti að vera lestrarhestar
og verði að lesuxum. Ekki verð-
ur hætt að þjarma að bókaútgáfu
á Íslandi fyrr en hvítbókin hans
Illuga Gunnarsson er eina bókin
sem verður eftir í landinu – með
hvítum og alauðum blaðsíðum.
Hæstvirtur Glanni
Því sumar tekjulindir eru nær-
tækari en aðrar. Á sama ári og
útgerðin skilar methagnaði út af
lágu gengi krónunnar (og lækk-
uðu gjaldi fyrir afnot af sam-
eiginlegri auðlind landsmanna)
er vandfundin kostnaðarsam-
ari iðja í samfélaginu um þess-
ar mundir en að gangast undir
krabbameinsmeðferð og þarf
fólk sem er að berjast fyrir lífi
sínu jafnframt að hafa stór felldar
áhyggjur af afkomu sinni og
sinna. Það háttalag að rukka fólk
fyrir veikindi – eins og nokkurs
konar skemmtanaskatt – er vissu-
lega arfur frá fyrri stjórnum,
hvort sem þær voru bólustjórnir
eða stóðu í endurreisn efnahags-
lífsins – en verður ekki skárra
fyrir það, allra síst ef það er satt,
sem haldið er fram, að allt sé nú
með blóma á ný.
Hinu lága gengi krónunnar
fylgir ekki bara minni kaupmátt-
ur almennings og hærri greiðslu-
byrði á lánum sem „leiðrétt“ eru
með rykkjum á tuttugu ára fresti
heldur ekki síður hitt að matar-
verð hækkar, hækkar og hækkar
en lækkar ekki; gömul kona á
Raufarhöfn minnist þess að vísu
að eitt sinn hafi poki af rúsínum
í Kaupfélaginu lækkað ör lítið
í verði eftir að hafa legið þar
ósnertur í á þriðja ár einhvern
tímann á ofanverðri seinustu öld
en af öðrum verðlækkunum hefur
varla heyrst í háa herrans tíð.
Matur er alltof dýr á Íslandi.
Alltof hátt hlutfall af tekjum
launafólks fer í að kaupa í kvöld-
matinn, einfaldan mat; græn-
meti, kjöt og fisk, ávexti, hafra-
grjón, kannski ost. Stjórnarliðinu
finnst þó ekki nóg að gert og
hyggst hækka verðið á matnum
með sérstakri skattlagningu –
en þó eingöngu á hollum mat
– enda sumar tekjulindir nær-
tækari en aðrar. Engu er lík-
ara en að sjálfur Glanni glæp-
ur sé orðinn fjármálaráðherra.
Óhollur matur verður lækk aður
í verði samkvæmt sérstakri
manneldisstefnu ríkisstjórnar-
innar að stuðla að sem mestu
sykuráti á meðal landsmanna,
enda þjóðin hvergi nærri nógu
feit og betur má ef duga skal ef
á að ná kókdrykkjumarkmið-
um ríkisstjórnarinnar. Fram-
sóknarmenn hafa að vísu sett
fyrirvara við þessi áform. Það
táknar, eins og við vitum, að
Sjálfstæðismenn eiga að taka
á sig sökina af þessum álögum
á mat – þ.e.a.s. holla matinn.
Reyndar hafa snjallir menn sýnt
fram á með mikilfenglegum hlut-
fallareikningi að matarhækkunin
komi ekkert verr við fátækt fólk
en ríkt, en það dæmi er því miður
gersamlega ofviða gömlum fall-
ista í reikningi.
Talaðu við mig eftir helgi
Ekki þarf að fara í grafgötur um
þann hug til mennta og lista sem
ríkisstjórnin telur sér skylt að
sýna í þessu fjárlagafrumvarpi.
Það hefur lengi tíðkast við gerð
fjárlaga hér á landi að vera lítið
að stressa sig yfir lögbundnum
skuldbindingum um framlög rík-
isins, rétt eins og lög frá alþingi
séu bara eins og hvert annað
blogg, sem megi svo sem hafa
gaman af en þurfi ekki að taka
alvarlega. Þannig hafa nú afglap-
arnir sem samþykktu að Ríkis-
útvarpið skyldi fremur treysta
á slíkar efndir en að geta gengið
að sínu afnotagjaldi vísu komist
að því fullkeyptu að lögbundin
gjöld til þeirrar stofnunar munu
aldrei skila sér og þess kann að
vera skammt að bíða að Sigvaldi
Júlíus son verði neyddur til að
rappa tilkynningarnar, svo að Rás
eitt geti borgað honum kaupið.
Við þekkjum lögleysurnar og
undanbrögðin við fjárlagagerð
og erum kannski orðin samdauna
þessum ósiðum, en það verður
varla sagt um þá aðila í Holly-
wood sem voru þeir kjánar að
falla fyrir gylliboðum íslenskra
stjórnvalda um endurgreiðslu
virðisaukaskatts, kæmu þeir
hingað með framleiðslu sína.
Nú er sem sé ríkissjóður Íslands
orðinn eins og hver annar skuld-
seigur íslenskur umsvifamaður
með rassvasabókhald, sem biður
menn að hringja eftir helgi; þá
verði kannski komið eitthvað.
Kvikmyndaframleiðendunum er
nú sagt að þeir fái ekki lögboðna
endurgreiðslu fyrr en kannski
seinna – hringdu í mig eftir helgi.
Má geta nærri um þær afleið-
ingar sem þetta á eftir að hafa
fyrir þá öflugu en viðkvæmu
starfsemi sem vaxið hefur í
kringum þjónustu við kvik-
myndagerðina; og hefur skapað
ómæld störf víða um land, veitt
fjármagni og lífi inn í byggðarlög
sem búa við fábreytt atvinnulíf og
gefið íslensku fagfólki í greininni
ómetanlegt tækifæri til að þroska
sig til frekari afreka. Allt er það
í uppnámi og ekki þarf heldur að
fara í grafgötur með það hvaða
afleiðingar þetta háttarlag mun
hafa fyrir orðspor landsins.
Og blessaðar bókmenntirnar.
Þær hafa fylgt þessari þjóð frá
elstu tíð, sögur og ljóð, orðlist,
allt frá því að fyrstu landnáms-
mennirnir fóru orði um landið
og nefndu það – og gegnum ald-
irnar, fram á okkar daga. Hvað
sem hver segir eru Íslendingar
bókaþjóð og mega alveg hafa þá
sjálfsmynd. Og þetta að skrifa og
hugsa á íslensku – aðrar þjóðir
geta því miður ekki tekið það að
sér fyrir okkur.
Flestar Evrópuþjóðir styðja
við sína bókmenntasköpun, skilja
hversu mikilsverður hluti það er
af menningarlífi þeirra og hið
sama hefur gilt hér á landi, burt-
séð frá hægri og vinstri. Það er
svo margt sem glepur fólk um
þessar mundir – athyglisræningj-
arnir eru við hvert fótmál.
Bókaútgáfan þarf kannski ekki
beinlínis á stuðningi yfirvalda að
halda núna – en hún þarf heldur
ekki á því að halda að rekstrar-
grundvellinum sé kippt undan
henni. Og ástandið verði þannig
að þjóðin eigi aðeins eina bók, og
hún sé hvít.
Lexusar og lesuxar
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Við þekkjum lög-
leysurnar og undan-
brögðin við fjárlagagerð og
erum kannski orðin sam-
dauna þessum ósiðum.
AF NETINU
Skandinavar rólegri
Í gær mættust í
kappræðum Fredrik
Reinfeldt forsætis-
ráðherra, leiðtogi
Moderata samlings-
partiet, og forsætis-
ráðherraefnið Stefan Löfven,
formaður Sósíaldemókrata-
flokksins.
Ef einhverjir bjuggust við því að
þessar kappræður yrðu spenn-
andi, þá urðu hinir sömu fyrir
vonbrigðum. Í frétt Politiken
í Danmörku segir að þeir hafi
verið sammála um flest.
Þannig er pólitíkin í Skandinavíu
– ekki jafn stríð og hér á Íslandi.
Menn geta verið ósammála án
þess að sé eins og ágreiningurinn
snúist um himnaríki og helvíti.
http://www.eyjan.pressan.is/
silfuregils
Egill Helgason sjónvarpsmaður
AF NETINU
Besta ræðan frá VG
Notalegt að heyra
formenn stjórnar-
flokkanna tala til
allra landsmanna
en ekki eingöngu til
eigin kjósenda eins
og var áberandi hjá
forystumönnum stjórnarandstöð-
unnar. Sumir voru meira í almennu
kaffihúsaspjalli en gerðu það svo
sem ágætlega. Og hafi einhver
verið í vafa um að forystumaður
Pírata væri róttækur vinstrisósíal-
isti hvarf sá efi í umræðunum í
gær. Best og heiðarlegust fannst
mér þó ræða nýja þingmannsins
í VG. Mætti samt halda að ræðan
hefði verið fengin að láni frá ein-
hverjum þeirra sem voru í sumar-
búðum í Austur-Þýskalandi í byrjun
áttunda áratugarins.
http://www.pressan.is
Brynjar Níelsson alþingismaður
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir,
bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur,
jölklippur, sandbl sturst ki og argt eira
Járnsmíðavélar
á verði sem gleður
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og minni verkstæði
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
Rennibekkur
300-550 mm
65.958 kr.
Bandsög
67.522 kr.
ECO Slípivél
16.190 kr.
Bandsög
125 mm
75.000 kr.
Sandblásturs-
kassi
29.900 kr.
Járnkúttari
130 mm rör
88.101 kr.
Fjölbeygjuvél
50.110 kr.
Verkfærataska
m/86 stk
36.315 kr.
Kynntu þér úrvalið á idnvelar.is
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is