Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 14
15. september 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, ÓLÖF BIRNA KRISTÍNARDÓTTIR frá Bessastöðum, sem lést á Landspítalanum mánudaginn 8. september verður jarðsungin frá Melstaðarkirkju í Miðfirði föstudaginn 19. september kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á sjóð til styrktar fjölskyldu hennar, kt. 040284-3119, rknr. 0582-15-081678. Kristinn Freyr Þórsson Kristín Helga Kristinsdóttir Ólöf Erla Kristinsdóttir MERKISATBURÐIR 1604 Svíar biðu ósigur fyrir Pólsk-litháíska samveldinu í orrust- unni við Weissenstein. 1647 Brynjólfur Sveinsson biskup fékk Flateyjarbók að gjöf. 1929 Kvæðamannafélagið Iðunn var stofnað. 1947 Átta ára stúlka, Þórunn S. Jóhannsdóttir, hélt sína fyrstu píanótónleika í Reykjavík og var sögð undrabarn. 1962 BSRB gerði sinn fyrsta kjarasamning við ríkið. 1967 Sjónvarpsútsendingar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru takmarkaðar við flugvallarsvæðið og næsta nágrenni. 1967 Þjóðgarður var stofnaður í Skaftafelli. 1972 Ásgeir Ásgeirsson, fyrrverandi alþingismaður, ráðherra, bankastjóri og forseti Íslands frá 1952 til 1968, lést 78 ára að aldri. 1981 Út af Rit veiddist risalúða sem reyndist vera 268 sentí- metra löng og vó yfir fjórðung úr tonni. 1985 Sif Sigfúsdóttir var kjörin fegurðardrottning Norðurlanda, en hún var þá 17 ára gömul. 1994 Helgi Áss Grétarsson varð heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri og varð jafnframt stórmeistari í skák. 2000 Sumarólympíuleikar settir í Sydney. Helgi Áss Grétarsson varð heims- meistari í skák í flokki 20 ára og yngri þennan dag árið 1994. Heimsmeistara- mótið fór fram í Brasilíu og fyrir síðustu umferðina ríkti gífurleg spenna. Efst og jöfn með átta vinninga voru þrjú ungmenni: Helgi Áss, ungverska stúlkan Soffia Polgar og hinn þýski Christopher Gabriel, sem var annar tveggja kepp- enda mótsins sem þegar höfðu náð stórmeistaratitli. Soffía Polgar tefldi við Spangenberg frá Argentínu og lauk þeirri skák með jafntefli. Helgi Áss og Gabriel mættust í úrslita- skákinni. Helgi Áss hafði hvítt og upp kom drottningarbragð. Skákin varð strax æsispennandi og báðir urðu knappir á tíma í lokin. Í þokkalegri stöðu tók Gabriel þá örlagaríku ákvörðun að fórna drottning- unni og það varð honum að fótakefli. Helgi náði yfirhöndinni með því að gefa sína til baka og verða peði yfir í enda- tafli. Hann tefldi af miklu öryggi og varð fyrsti Íslendingurinn til að vinna sigur í flokki 20 ára og yngri, aðeins sautján ára að aldri. Með heimsmeistaratitlinum var hann útnefndur stórmeistari. ÞETTA GERÐIST 15. SEPTEMBER 1994 Íslenskur heimsmeistari í skák Vegfarendur í miðbæ Kópavogs hafa vafalaust tekið eftir því að ásýnd húsanna við Hamrabrekku, norðan megin Hamraborgar, hefur breyst og lifnað við að undanförnu. Nýlega fæddist þar andlit Kópavogsskáldsins, Jóns úr Vör, eftir ástralska listamanninn Guido Van Helten en fyrr í sumar birtist þar verk eftir listakonuna Kristínu Þorláks- dóttur, sem er vísun í ljóð Kópavogsskáldsins og ber heitið Ómáluð mynd. Verkin ættu ekki að fara fram hjá þeim sem koma frá Reykjavík og aka í átt að menningarhúsum bæjarins við Hamraborg. Þau eru styrkt af lista- og menningarráði Kópavogs. Guido hefur áður málað andlitsmyndir á veggi í Vestur- bæ Reykjavíkur og hefur líka gert vegglistaverk í Vest- mannaeyjum og á Akureyri. Verk hans prýða einnig hús- veggi í London, Melbourne, Dublin og Edinborg. Kristín Þorláksdóttir hefur líka lagt áherslu á götulist og má sjá verk eftir hana í miðbæ Reykjavíkur og í Vest- mannaeyjum. Hún stundar nú myndlistarnám í Toronto í Kanada. Hamrabrekkan breytir um svip KÓPAVOGSSKÁLDIÐ Jón úr Vör horfir íbygginn yfir Hamraborgina. „Við erum hreyknir af þessari útnefn- ingu. Í henni felst mikill heiður og stuðningur sem okkur er mikil vægur í okkar heimabæ. Bærinn útvegaði okkur líka æfingaaðstöðu þegar við vorum að byrja og það kom sér mjög vel,“ segir Davíð Antonsson, einn fjór- menninganna í hljómsveitinni Kaleo en hún telst í heild sinni bæjarlista- maður Mosfellsbæjar þetta árið. Með Davíð eru þeir Jökull Júlíusson, Daní- el Ægir Kristjánsson og Rubin Pol- lock í sveitinni. Kaleo skaust upp á stjörnuhimininn árið 2013. Hún hefur tekið þátt í Mús- íktilraunum, spilað á risatón leikum Rásar 2 á Menningarnótt, komið fram á Airwaves ásamt því að spila á tón- leikum í Mosfellsbæ og víða um land. Hún kom einnig, sá og sigraði á Hlust- endaverðlaununum 2014 sem fram fóru í Háskólabíói. Þar vann hún til þrennra verðlauna. Loks hefur fyrsta plata sveitarinnar selst í yfir 5.000 eintökum og er því komin í gull. „Við erum í smá fríi þessa dag- ana en eftir það förum við beint til London og spilum þar mjög athyglis- vert gigg fyrir Bob Gruvin, frægan rokkljósmyndara. Sá tók meðal ann- ars fræga mynd af Led Zeppelin við einkaþotuna og bjó með John Lennon á tímabili í New York. Hann ætlar að mynda okkur líka,“ segir Davíð kampakátur. „Það er ýmislegt í gangi, ekki kannski rétti tíminn til að sleppa frá sér einhverjum fréttum í smáat- riðum en það er margt í bígerð hjá okkur. Við erum til dæmis að vinna að nýrri plötu en hún kemur ekki út fyrr en á næsta ári.“ gun@frettabladid.is Heiður og stuðningur Hljómsveitin Kaleo hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2014. Í henni eru fj órir ungir menn sem deila þessum heiðri og eru stoltir af og ánægðir með heimabæinn. MEÐ VERÐ- LAUNAGRIP EFTIR INGU ELÍNU Davíð Antons- son, Jökull Júlíusson, Rubin Pollock og Daníel Ægir Kristjánsson eru í hljóm- sveitinni Kaleo.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.