Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 12
15. september 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Sagt er að í hallærum hér áður fyrr hafi menn notað bækur fyrir brenni og skinn- handrit í skó. Ritað mál varð að víkja fyrir viljanum til að lifa af. Nú til dags vita allir sem koma nálægt bókaskrifum, útgáfu bóka, bókasöfnum og bóksölu að lestur samfellds texta og almenn bókaeign þverr hægt og bítandi. Haldin eru málþing og umræður í fjöl- miðlum um ástæðurnar og auðvitað eru þær margþættar. Einn þátturinn er hátt verð bóka sem stafar að hluta til af því að útgáfukostnaður er hér jafn hár eða hærri og í milljónasamfélögum en mark- aður afar smár í því samhengi. Þess vegna blasir við ein leið til að ýta undir lestur bóka, hvort sem er prentaðra eða tölvutækra: Að hækka ekki verð bóka heldur lækka það. Af sjálfu leiðir að það mætti gera með því að lækka höfundar- hlut í hverri seldri bók, lækka prent- kostnað, eignarhlut útgefanda í hverri bók eða álagningu bóksalans og skyndi- bóksöluverslunarinnar á jólavertíðinni. Þessir aðilar eru þó ekki öfundsverðir með sitt, nema kannski stórmarkaðirnir sem reyndar keyra niður álagningu og heildsöluverð bóka. Augljósasta leiðin felst samt í að lækka eða afnema virðisaukaskatt á bókum. Ef til vill gæti það aukið menntun fólks, hlúð að nýsköpun, styrkt lýðræðið og hvað eina sem okkur er kynnt í eldhús- dagsumræðum á Alþingi eða í þjóð- legum og bólgnum ræðum ráðherra fyrr og síðar. Nei, í stað þessa augljósa menningar afreks er virðisaukaskattur hækkaður og þar með verð hins ritaða máls. Lækkun eða afnám hans leiddi til tekna hjá ríkinu sem auðvelt er að gera sér í hugarlund vegna aukinnar bóksölu og ótal samfélagslegra atriða og þau kæmu til móts við tekjutapið. Hvernig Færeyingum og Írum tekst að komast hjá virðisaukaskatti á bókum hlýtur að vera mikið leyndarmál. En það er enn lag. Samhliða endurskoðun á skattlagningu ritaðs máls væri ráð að hætta að tekju- skattsleggja fé sem veitt er sem viður- kenning í menningarstarfseminni. Það er aumt að sjá rithöfund taka við verðlaun- um hver áramót hjá RÚV með annarri hendinni en greiða ríkinu ríflega þriðj- unginn með hinni, svo dæmi séu nefnd. Dýrari bækur – aukinn lestur? Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið lak ön nu n Ca pa ce nt o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rsv æ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU SKATTAR Ari Trausti Guðmundsson rithöfundur og jarðvísindamaður ➜ Hvernig Færeyingum og Írum tekst að komast hjá virðisauka- skatti á bókum hlýtur að vera mikið leyndarmál. En það er enn lag. Af því hún er kona Margt hefur verið ritað og rætt um stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Hún kvartar sjálf undan óvæginni umræðu, en það er ljóst að margir hafa komið henni til varnar. Þar á meðal eru félagar hennar í ríkisstjórninni, Elliði Vignis- son bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og Heimir Örn Herbertsson lögmaður. Einn bættist við í hópnum fyrir helgi en það var Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Halldór veltir upp þeirri spurningu hvort staða Hönnu Birnu sé verri af því að hún er kona. Aðrir lent í sömu stöðu Halldór virðist gleyma því að þetta er síður en svo í fyrsta sinn sem stjórn- málamenn þurfa að verjast ásökunum vegna þess sem miður fer. Hugurinn reikar til þess tíma þegar Guðmundur Árni Stefánsson sagði af sér sem ráðherra og Illugi Gunnars son vék tímabundið sæti á Alþingi vegna setu sinnar í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni. Darraðardansinn sem sumir stjórnmálamenn þurfa stundum að stíga er því varla háður kynferði þessara sömu stjórnmála- manna. Óhagræðingarhópurinn? Þeir Benedikt Jóhannesson, rit- stjóri Vísbendingar, og Þorsteinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri SA, ræddu fjárlagafrumvarpið á Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Þeir voru sammála um að það vantaði sterkari hug- myndafræði í frumvarpið. Þorsteinn sagðist sakna þess að sjá alvöru uppstokkun og hugsun varðandi það hverju ríkissjóður hefði efni á og hverju ekki. Nefndi hann tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar í þessu samhengi. Það skyldi þó ekki vera að hagræðingarhópurinn verði enn einn starfshópur skipaður á vegum stjórnvalda, sem skilar frá sér tillögum sem strax verður stungið undir stól. Verði það raunin má kannski segja að skipan hagræðingarhópsins, með tilheyrandi kostnaði, hafi falið í sér visst óhag- ræði. jonhakon@frettabladid.is H luti af því að búa í réttarríki er að öllum borgurum landsins er tryggð réttlát málsmeðferð séu þeir sakaðir um refsinæma háttsemi. Menn skulu vera saklausir uns sekt er sönnuð, njóta réttlátrar máls- meðferðar á öllum stigum málsins og fá úrlausn sinna mála fyrir óhlutdrægum dómstól. Í helgarútgáfu Fréttablaðsins er viðtal við fyrrverandi starfsmann embættis sérstaks saksóknara, Jón Óttar Ólafsson. Í viðtalinu greinir Jón Óttar ítarlega frá mjög alvarlegum athugsemdum sem hann gerir við vinnubrögð fyrr- verandi vinnuveitanda síns. Þar á meðal þeim mikla þrýstingi sem embættið var undir og líkir hann því við þá pólitísku pressu, fjöl- miðlafár og múgæsing sem ríkti í Guðmundar- og Geirfinnsmál- inu. Þetta hafi orsakað brenglað hugarfar rannsakenda til vinnu sinnar og hafi andrúmsloftið sem var og ef til vill er uppi hjá embættinu einkennst af nokkurs konar við á móti þeim – góðir á móti vondum – andrúmslofti, eitt- hvað sem á slæmri íslensku er oft kallað bunker mentalitet. Sam- kvæmt Jóni Óttari varð þetta andrúmsloft þess valdandi að menn gátu réttlætt fyrir sér að beita ýmsum vafasömum brögðum til að ná settum markmiðum. Þessi uppljóstrun er grafalvarleg. Einn af hornsteinum réttar- vörslukerfisins hér á landi er að handhafar lögregluvalds skulu ávallt gæta fyllstu hlutlægni og réttsýni. Þeir skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjá- kvæmilegt er. Þessar kröfur til lögreglunnar fara illa saman við það andrúmsloft sem Jón Óttar lýsti í viðtalinu og samlíking hans við Guðmundar- og Geirfinnsmálið er beinlínis ógnvekjandi. Þar voru skelfileg brot á réttindum sakborninga einmitt réttlætt með því að rannsakendur og raunar öll íslenska þjóðin voru sannfærð um að þau væru sek. Vonandi mun sagan ekki dæma rannsókn hrunmálanna með sama hætti og rannsóknina á mannshvörfum Guðmundar og Geirfinns en sporin hræða. Jón Óttar lýsir ýtarlega hvernig gögnum var haldið frá Ríkis- saksóknara þegar hann var kærður af fyrrverandi vinnuveitanda sínum, en slíkt hefur einnig komið upp í að minnsta kosti einu dómsmáli, þar sem gögn sem fram komu á síðari stigum leiddu til sýknu. Hann lýsir einnig hlerunaraðferðum sérstaks saksóknara þar sem rannsakendur og saksóknarar hópuðust í kringum upp- tökur af slíkum samtölum og voru eins og krakkar í sælgætisbúð. Þessar uppljóstranir Jóns Óttars eru í takt við það sem hefur komið fram fyrir dómi í öðrum málum embættisins en þar hefur verið upplýst að embættið hafi hlerað lögmenn. Nú kann sumum að finnast þetta vera allt í lagi; að tilgangurinn helgi meðalið. Eftir allt saman þá er embætti sérstaks saksóknara að rannsaka alvarleg brot í aðdraganda bankahrunsins, brot sem því miður höfðu neikvæð áhrif á flesta landsmenn. Það gengur hins vegar ekki upp. Rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar er heilagur og engin brot, sama hversu ógeðfelld, hræðileg eða miklar afleiðingar þau hafa, eiga að geta hliðrað til þeim stóra sannleik réttarríkisins að allir hafa sama rétt réttlátri málsmeð- ferð sama hvað þeir hafa á samviskunni. Um leið og það gildir ekki lengur þá höfum við yfirgefið réttarríkið og gengið í samfélag lögleysu. Þær aðferðir sem Jón Óttar lýsir í viðtali helgarinnar eru óásættanlegar, ekki síst í ljósi þess, sem Jón Óttar imprar reyndar sjálfur á, að sannarlega voru hér framin lögbrot. Og fyrir þau ber að refsa mönnum í samræmi við lög og reglur. En tilgangurinn má aldrei helga meðalið. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar er heilagur: Tilgangur og meðal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.