Fréttablaðið - 15.09.2014, Page 8

Fréttablaðið - 15.09.2014, Page 8
15. september 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Göran Hägglund Kristilegir Annie Lööf Mið- flokkurinn Jan Björklund Frjálslyndir Jonas Sjöstedt Vinstri- flokkur- inn Åsa Romson Græn- ingjar Fredrik Reinfeldt Hægrifl. Stefan Löfven Jafnaðar- menn Gudrun Schyman Femín- istar Jimmie Åkesson Svíþjóð- ardemó- kratar Úrslit sænsku þingkosninganna Kosningaúrslit (Breyting frá 2010) Hægri flokkarnir Hlutfall Þingsæti Hægriflokkurinn (Moderata samlingspartiet) 23,2 (-6,8) 85 (-22) Frjálslyndir (Folkpartiet liberalerna) 5,4 (-1,7) 19 (-5) Miðflokkurinn (Centerpartiet) 6,2 (-0,4) 21 (-2) Kristilegir demókratar (Kristdemokraterna) 4,6 (-1,0) 16 (-3) Samtals 39,4 (-8,9) 141 (-32) Vinstri flokkarnir Jafnaðarmenn (Socialdemokraterna) 31,1 (+0,4) 114 (+2) Vinstriflokkurinn (Vänsterpartiet) 5,7 (+0,1) 20 (+1) Græningjar (Miljöpartiet) 6,8 (-0,4) 24 (-1) Samtals 43,6 (+0,1) 158 (+2) Femínistafrumkvæðið (Feministiskt initiativ) 3,1 (+2,7) 0 (0) Svíþjóðardemókratarnir 13 (+7,2) 50 (+30) SVÍÞJÓÐ Stærsta sigurinn í þing- kosningunum í Svíþjóð í gær unnu hægri þjóðernissinnarnir í flokki Svíþjóðardemókrata. Þeir eru komnir upp í rúmlega 10 prósent atkvæða og þar með orðnir þriðji stærsti stjórnmálaflokkur lands- ins. Svíþjóðardemókratarnir hafa því náð að bæta við sig nærri fimm prósentum með því að höfða til ótta almennings við útlendinga. Enginn hinna flokkanna hefur samt minnsta áhuga á að fá þá í stjórnarsamstarf með sér, þannig að þessi sigur hefur fyrst og fremst þau áhrif að torvelda öðrum flokkum að mynda meiri- hlutastjórn. Kosningavaka flokksins í Malmö var haldin í húsnæði KFUM í gær- kvöld, en formaður KFUM frétti ekki af því fyrr en um kvöldið og brást við með því að taka raf- magnið af húsinu og kveikja á brunabjöllum. Félagar flokksins héldu engu að síður áfram með fundinn, í myrkri og hávaða, en hleyptu ekki blaða- mönnum inn. Hægri stjórn Fredriks Rein- felds beið afhroð í kosningunum, Reinfeldt sagði í gærkvöld af sér, bæði sem forsætisráðherra og leið- togi hægri flokksins. Samtals eru hægri flokkarnir fjórir með innan við 40 prósent atkvæða, og hafa þá tapað nærri tíu prósentum frá kosningunum árið 2010. Munar þar mestu um nærri 8 prósenta fylgis- tap Moderaterna, flokks Reinfeldts forsætisráðherra. Vinstri flokkarnir þrír vinna hins vegar engan afgerandi sigur, því þótt þeir séu komnir með nærri 45 prósent atkvæða þá eru þeir ekki að bæta við sig nema um einu prósenti samanlagt. Útgönguspár bentu til þess að flokkur femínista, Femínista- frumkvæðið, myndi í fyrsta sinn skríða yfir 4 prósenta lágmarkið og ná manni inn á þing. Það gekk þó ekki eftir. Reinfeldt hefur verið forsætis- ráðherra í tvö kjörtímabil, heil átta ár, og þykir hafa staðið sig býsna vel í efnahagsmálum. Ekki er því að sjá að kjósendur hafi verið að refsa honum fyrir neitt sérstakt, heldur skýrist niður staðan frek- ar skýrast af því að kjósendur séu hreinlega orðnir leiðir á honum. Annars vekur athygli hve fylgis- tölurnar hafa í raun lítið breyst frá kosningunum fyrir fjórum árum. Breytingar á fylgi flokkanna eru innan við tvö prósent, að undan- skildum Moderaterna sem tapar nærri sjö prósentum og Svíþjóðar- demókrötum sem vinna rúmlega sjö prósent. Niðurstaðan úr sænsku kosning- um hlýtur meðal annars að vera harla leiðinleg fyrir David Came- ron, forsætisráðherra Bretlands, en Reinfeldt hefur verið helsti bandamaður Camerons innan Evrópu sambandsins. Löfven er á hinn bóginn í góðum tengslum við Ed Miliband, leiðtoga bresku stjórnarandstöð unnar, enda báðir sósíaldemókratar. gudsteinn@frettabladid.is Heldur dapurlegur sigur Löfvens Leiðtogi sænskra sósíaldemókrata getur ekki myndað meirihlutastjórn vinstri flokkanna, þrátt fyrir kosningasigur þeirra í gær. Svíþjóðar- demókratar eru orðnir þriðji stærsti flokkurinn, en enginn vill stjórna með honum og rafmagnið var tekið af kosningavöku flokksins í gær. STEFAN LÖFVEN Það kemur í hlut leiðtoga jafnaðarmanna að reyna myndun nýrrar ríkisstjórnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SEGIR AF SÉR Fredrik Reinfeldt sagði af sér í gærkvöld, bæði sem forsætisráðherra og leiðtogi flokks sins. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.