Fréttablaðið - 15.09.2014, Qupperneq 17
BAÐHERBERGI
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2014 Kynningarblað Álfaborg, S. Helgason, BYKO og Papco.
Álfaborg þekkja nú flestir,“ segir Ragnar Már Valsson, ráðgjafi hjá Álfaborg sem
býður heildarlausnir fyrir bað-
herbergið.
Fyrirtækið var stofnað 1986
af núverandi eigendum sem
hafa alla tíð boðið vöruúrval frá
traustum og vönduðum framleið-
endum.
„Álfaborg er þekktust fyrir sitt
mikla f lísaúrval en fyrirtækið
verslar með ýmsar aðrar gerðir af
gólfefnum, eins og parket, dúka og
teppi,“ útskýrir Ragnar.
Fyrir fáeinum árum rann fyrir-
tækið Baðheimar inn í Álfaborg og
jókst þar með vöruúrval af hrein-
lætistækjum.
„Eins og í öðrum vöruflokkum
einbeitir Álfaborg sér að fáum og
traustum framleiðendum,“ segir
Ragnar. „Má þar helst nefna Vill-
eroy & Boch, Tece, Bossini og Pal-
lazani sem allt eru áreiðanlegir
framleiðendur sem viðskipta vinir
okkar þekkja að góðum gæðum og
sanngjörnum verðum.“
Með eldri útgáfur á lager
Álfaborg býður upp á afar breitt
úrval af flísum en þær helstu eru
frá Porcelanosa og Venis frá Spáni,
Imola, Marazzi og Piemme frá
Ítalíu og Nordceram frá Þýskalandi.
„Undanfarin ár hefur mikil
vinna farið í að bregðast við
breyttum markaði og einn liður í
því var að skoða birgja okkar og
kanna hversu áreiðanlegir þeir eru
til næstu tíu til tuttugu ára. Mikill
árangur hefur náðst í þeirri vinnu
og skilar sér í betri vörum til við-
skiptavina okkar,“ segir Ragnar,
sem fær reglulega til sín viðskipta-
vini sem eru að bæta eða breyta og
vantar viðbót á flísum.
„Þá er mjög líklegt að við eigum
til viðkomandi f lísar og upp-
skerum vitaskuld mikið þakklæti
fyrir.“
Spennandi nýjungar á leiðinni
Ragnar segir Álfaborg fylgjast
vel með hvers kyns straumum og
stefnum í flísatískunni.
„Starfsfólk Álfaborgar fer að
minnsta kosti tvisvar á ári á sýn-
ingar erlendis og í næstu viku
förum við á stóra f lísasýningu
í Bologna á Ítalíu. Viðskipta-
vinir Álfaborgar geta því átt von á
spennandi nýjungum næstu mán-
uði.“
Eins og áður hefur komið fram
býður Álfaborg heildarlausnir
fyrir baðherbergi.
„Viðskiptavinir geta komið til
okkar í verslunina og meðal ann-
ars fengið ráðgjöf um hvernig
f lísar henta rýminu, hvort betra
sé að velja innfelld sturtutæki eða
hefðbundin og hvort velja skuli
sturtugler, sturtuhorn eða jafn-
vel heilan sturtuklefa. Álfaborg
býður upp á vandaða sturtuklefa
frá danska framleiðandanum
Dansani og hafa lausnir frá þeim
reynst afar vel á íslenskum heim-
ilum og sumarhúsum.“
Vegg- og gólfdúkar í tísku
Flísar eru gjarnan valdar til að
prýða gólf eða veggi baðherbergja
en Ragnar segir nú færast í aukana
að nota dúka á gólf og veggi.
„Sú lausn er reyndar mest notuð
í sérhæfð verkefni eins og hjúkr-
unar- og gistiheimili þó svo að æ
f leiri viðskiptavinir Álfaborgar
hafi áttað sig á möguleikum dúka
til notkunar á baðherbergjum,“
upplýsir Ragnar í Álfaborg sem er
sérstaklega sterkt í gegnheilum ör-
yggisdúkum frá sænska framleið-
andanum Tarkett.
Allar nánari upplýsingar um
vörur og þjónustu Álfaborgar má
finna á www.alfaborg.is.
Heildarlausnir fyrir baðherbergið
Í Álfaborg fæst allt sem prýða má fallegt baðherbergi. Verslunin er þekkt fyrir glæsilegt flísaúrval en býður einnig upp á traust, falleg
og vönduð hreinlætistæki, sturtuklefa, parket, teppi og dúka sem nú njóta æ meiri vinsælda á gólf og veggi baðherbergja.
Ragnar Már Valsson er söluráðgjafi hjá Álfaborg sem býður glæsilegar heildarlausnir fyrir baðherbergi.
MYND/GVA
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755