Fréttablaðið - 15.09.2014, Page 18
KYNNING − AUGLÝSINGBaðherbergi MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 20142
Finnbogi Hilmarsson hjá fasteignasölunni Heimili segir að það fari svolítið eftir
eiginleika húsnæðisins hvort bað-
herbergið sé lítið eða stórt. Litlar,
eldri íbúðir eru oft með mjög lítil
baðherbergi. „Nauðsynlegt er að
koma hlutum hagan lega fyrir í
litlum baðherbergjum. Vel skipu-
lagt og uppgert lítið baðherbergi
hefur mikið að segja í söluferli,“
segir Finnbogi. „Í stærri íbúðum
skiptir verulegu máli að baðher-
bergið sé rúmgott.“
Hann segir marga kaupendur
gera kröfur um að koma þvotta-
vél fyrir í baðherberginu. Sérstak-
lega á það við í eldra húsnæði.
„Með góðu skipulagi er oft hægt
að koma því við að þvottahús og
baðherbergi séu sameinuð.“
Finnbogi segir enga spurn-
ingu að nýuppgert baðherbergi
eða endurnýjað hafi áhrif á sölu.
„Gott er þegar tæki hafa verið
endurnýjuð en enn betra ef ein-
hverju hefur verið bætt við að
auki, til dæmis innréttingum
og flísum. Ef notuð eru vönduð,
dýr efni eða ef innanhússarki-
tekt hefur komið að skipulagi þá
eykur það verðgildi eignarinnar
til muna.“
Kaupendur hafa í auknum
mæli óskað eftir tveimur bað-
herbergjum í fjölbýlishúsum.
Í nýjum fjölbýlishúsum hefur
framboð aukist á þess konar
lúxus. „Þetta er sérstaklega í íbúð-
um sem ætluð eru eldri kaupend-
um. Oft er sérherbergi inn af
hjónaherbergi í þeim
íbúðum. Krafan er
orðin sú að tvö bað-
herbergi séu til stað-
ar en þannig er það
í öllum sérbýlum,“
segir Finnbogi.
Ákveðinn hópur
kaupenda horfir fyrst
og fremst á eld húsið
en annar gerir kröf-
ur um gott baðherbergi.
„Flestum finnst frábært
ef baðherbergið
hefur verið endurnýjað þar sem
fólki óar frekar við endurbótum
á því en eldhúsi. Það er því mikill
kostur ef þær framkvæmdir hafa
þegar átt sér stað.“
Mikilvægt er að fólk geri bað-
herbergið upp á stí l-
hreinan og klassískan
hátt. Ósmekklegar
flísar geta stuðað þá
sem eru í kauphug-
leiðingum. „Hróp-
legur ljótleiki er frá-
hrindandi,“ segir
Finnbogi og bætir
við: „Gott er að forð-
ast tískubólur.“
Fallegt baðherbergi eykur
sölumöguleika íbúðarinnar
Ástand og útlit baðherbergisins skiptir miklu máli þegar fólk veltir fyrir sér íbúðarkaupum. Ef baðherbergið er nýuppgert á
smekklegan hátt eykur það verðgildi eignarinnar. Gott er að forðast tískubólur þegar endurbætur fara fram.
Mikið er lagt í sum baðherbergi og lúxusinn allsráðandi.
Fallegt baðherbergi eykur verðgildi eignarinnar. Gæta verður þess að endurbætur séu stílhreinar og fallegar.
Finnbogi Hilmarsson
fasteignasali
Mikið úrval fyrir baðherbergið
Keramikhofið
sími 869 3774
Fylstu með okkur á
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is