Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGBaðherbergi MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 20144 „Þetta fer svolítið eftir því hvar niðurfallið er staðsett og hvort um er að ræða salerni á neðstu hæð húss eða á efri hæðum. Ef niðurfallið er nálægt veggn- um getur verið nóg að fjarlægja gamla salernið, smíða kassa utan um niður fallið og tengja nýja sal- ernið í sama niðurfall,“ segir Guð- mundur. „Sé það langt frá vegg getur kassinn hins vegar orðið óþarf- lega fyrirferðamikill. Þá getur reynst nauðsynlegt að brjóta upp gólfið og færa niðurfallið nær veggnum. Það er lítið mál á neðstu hæð en meira fyrirtæki á efri hæðum.“ Guðmundur mælir með því að skipt sé við viðurkenndar lagna- verslanir en hann segir hægt að kaupa vandaða pakka sem inni- halda salernisskál, hnapp og lögn frá um 50-60 þúsund krónum. Með vinnu pípulagningamanns og f l ísalagningarmann gæti verkið í heild kostað frá 150.000 krónum, en það fer auðvitað allt eftir aðstæðum á hverjum stað fyrir sig og hversu mikið fólk vill leggja í framkvæmdina. Margir nota jú tækifærið og skipta um annað í leiðinni. Guðmundur segir nauðsynlegt að fá pípara til að tengja salernið. „Ég hef komið að frágangi ann- arra en fagmanna og það er ekki fögur sjón. Óvandaður frá gangur býður líka hættunni heim og getur kallað á leka og ýmis önnur vandamál.“ Ef niðurfallið er nálægt veggnum getur verið nóg að fjarlægja gamla salernið, smíða kassa utan um niðurfallið og tengja nýja salernið í sama niðurfall. Minna mál en margur heldur Upphengd salerni hafa marga kosti fram yfir gólfföst. Þau eru fyrirferðarminni og það er auðveldara að þrífa í kringum þau. Þau þykja jafnframt smart. Að sögn Guðmundar Páls Ólafssonar, formanns Félags pípulagningameistara, er ekki endilega nauðsynlegt að taka allt baðherbergið í gegn þótt vilji sé til að skipta úr gólfföstu í upphengt salerni og er það oft minna mál en margur heldur. Fyrirtækið S. Helgason hefur um langt skeið selt fallegar handlaugar, flísar og borðplötur úr steini inn á baðher-bergi landsmanna. Fyrirtækið sérsmíðar meðal annars fallegar baðherbergishandlaugar úr náttúrusteini og kvarsi sem hafa slegið í gegn enda sameinast þar bæði falleg hönn- un og mikið notagildi að sögn Ægis Ólafssonar, rekstrarstjóra S. Helgasonar. „Þetta eru gullfallegir vaskar sem við sérsmíð- um fyrir viðskiptavini okkar. Þeir hafa þá kosti umfram hefð- bundna vaska og borðplötur að raki og bleyta vinna ekki á þeim og því þarf ekki að skipta þeim út síðar meir. Auk þess er miklu þægilegra að þrífa þá og svo eru þessir vaskar auð- vitað miklu fallegri en hefðbundnir vaskar.“ Steinvaskarnir nýta plássið betur að sögn Ægis og því ein- staklega hentugir í minni baðherbergi þar sem huga þarf vel að nýtingu plássins en starfsmenn S. Helgasonar veita ráðgjöf varðandi bestu nýtingu rýmisins í baðherbergjum. Steinvaskana er hægt að fá í fjölmörgum litum þótt þeir hvítu og svörtu séu vinsælastir. Skemmtilegar lausnir Fyrirtækið býður auk þess upp á úrval skemmtilegra lausna fyrir baðherbergið. „Við seljum úrval af flísum á gólf og veggi auk flísa í sturtuklefann. Einnig bjóðum við upp á skemmti- legar lausnir þegar kemur að því að klæða klósett kassann. Hægt er að flísaleggja hann en einnig nota heilar plötur til dæmis frá Stone Italiana en þeir bjóða upp á efni sem er ein- ungis 13 mm þykkt og hentar því vel á fleti sem þessa. Það hefur einnig færst í vöxt að fólk rammi inn baðkarið með steini og steinn ofan á baðkar setur punktinn yfir i-ið á fallegu baðherberginu.“ Innfluttu steinarnir sem S. Helgason vinnur með eru úr graníti, marmara og kvarsi og koma þeir víðs vegar að úr heiminum, til dæmis frá Ítalíu, Noregi og Indlandi, auk þess sem fyrirtækið framleiðir einnig flísar, borðplötur og vaska úr íslenskum steini. Sýningarsalur S. Helgasonar við Skemmuveg 48 í Kópavogi er rúmgóður og bjartur og þar geta viðskiptavinir kynnt sér úrvalið og lausnirnar. Þar má meðal annars finna sýnishorn af sérsmíðuðum handlaugum í ýmsum litum og fá ráðgjöf frá reynslumiklum starfsmönnum fyrirtækisins. Allar nánari upplýsingar má finna á www.shelgason.is. Steinninn fegrar baðherbergið Fyrirtækið S. Helgason selur ýmsar vörur á baðherbergið sem framleiddar eru úr steini. Baðherbergishandlaugar úr steini hafa slegið í gegn og aðrar útfærslur hafa vakið mikla lukku. Í björtum sýningarsal fyrirtækisins í Kópavogi geta viðskiptavinir kynnt sér úrvalið og lausnirnar. Handlaugar úr náttúrusteini og kvarsi hafa slegið í gegn. MYND/ÚR EINKASAFNI „Þetta eru gullfallegir vaskar sem við sér- smíðum fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Ægir Ólafsson, rekstrarstjóri S. Helgasonar. MYND/ANTON Guðmundur segir kostnaðinn við að skipta úr gólfföstu í upphengt salerni ekki þurfa að vera mikinn. Hægt er að kaupa vandaða pakka sem innihalda klósett- skál, hnapp og lögn á um 50-60 þúsund en til viðbótar þarf að reikna með vinnu iðnaðarmanna. Upphengd salerni eru fyrirferðarminni en gólfföst. Það er jafnframt auðveldara að þrífa í kringum þau. Hér sameinast bæði falleg hönnun og mikið notagildi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.