Fréttablaðið - 15.09.2014, Blaðsíða 23
BIRKIHÆÐ – GARÐABÆ.
Stórglæsilegt 259,3 fm. einbýlishús sem er innréttað á afar vandaðan og smekk-
legan hátt úr ljósum byggingarefnum. Verulega aukin lofthæð er í öllu húsinu.
Vönduð gólfefni, norsk skífa og parket úr rauðeik. Innréttingar eru ýmist úr eik eða
hvítar. Setustofa með arni, sjónvarpsstofa og borðstofa. Hjónasvíta og 2-3 minni
herbergi auk fataherbergis. Fallegur gróður og tyrfðar flatir.
KALDALIND - KÓPAVOGI. GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS
Virkilega vandað og vel skipulagt 232,0 fm. einlyft einbýlishús á glæsilegri gróinni
lóð með stórum veröndum á frábærum útsýnisstað. Húsið er arkitektateiknað að
utan af Sigurði Hallgrímssyni og að innan af Guðbjörgu Magnúsdóttur. Eignin er
innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta úr vönduðum byggingarefnum og
mikið er af föstum innréttingum. Innihurðir eru sérsmíðaðar.
GLAÐHEIMAR. 4RA – 5 HERBERGJA NEÐRI HÆÐ
Mjög góð 137,8 fm. 4ra - 5 herbergja neðri hæð í þessu eftirsótta hverfi miðsvæðis
í Reykjavík, ásamt 31,4 fm bílskúr sem er innréttaður sem stúdío íbúð. Í kjallara
er 13,4 fm. herbergi með aðgangi að snyrtingu. Rúmgóðar stofur með útgengi
á flísalagðar suðursvalir. Þrjú herbergi. Húsið stendur á stórri gróinni baklóð. Sér
bílastæði sem rúmar 2-3 bíla. Allt gler í íbúðinni er endurnýjað.
EFSTALEITI – 4RA HERBERGJA ÚTSÝNISÍBÚÐ
154,3 fm. glæsileg íbúð á 3. hæð (efstu) í glæsilegu fjöleignarhúsi “Breiðabliki”
miðsvæðis í Reykjavík. Samliggjandi stórar stofur með útgengi á svalir til suðurs,
sjónvarpsherbergi innaf stofum, rúmgott hjónaherbergi og skrifstofuherbergi.
Sérmerkt bílastæði í bílageymslu og hlutdeild í mikilli sameign. Á hverri hæð hússins
eru setustofur, lagðar náttúrugrjóti, bjartar og rúmgóðar. Húsvörður.
ASPARFELL – 7 HERB. PENTHOUSE ÍBÚÐ.
Glæsileg 187,0 fm. penthouse íbúð á 8. hæð í nýuppgerðu fjölbýlishúsi. Um 100
fm. sér þakgarður, yfirbyggður að hluta fylgir íbúðinni. Frábært útsýni til allra átta.
25,5 fm. bílskúr fylgir eigninni. Sér þvottaherbergi með glugga á hæðinni. Íbúðin
er ein á þessari hæð hússins og með gluggum í allar áttir. Gler er að mestu nýtt og
opnanlegir veltigluggar líka.
SKIPHOLT 29A - REYKJAVÍK.
Nánast heil húseign sem er þrjár hæðir og er nýtt í dag undir skrifstofur, jógastúdíó
og ósamþykkta íbúð með sér inngangi. Möguleiki er að breyta öllu húsnæðinu í
íbúðir eða gistiheimili. Möguleiki er að fá keyptann eignarhlutann á fyrstu hæðinni
og kjallarann þar sem rekið er rafmagnsverkstæði og væri þá allt húsið í eigu
sama aðila sem einfaldar allar breytingar á húsnæðinu.
55,0 millj.
43,9 millj. 63,5 millj.
46,0 millj.
86,9 millj.
Ólafsgeisli. Einbýlishús á útsýnisstað.
Stórglæsilegt 207,4 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á glæsilegum útsýnisstað í Grafarholtinu. Eignin er öll innréttuð á afar
vandaðan og smekklegan máta og úr vönduðum byggingarefnum. Gólfefni eru annars vegar ljósgrátt granít og hins vegar
vönduð, gegnheil hnota. Innihurðir og innréttingar eru ýmist úr hnotu eða hvítar sprautulakkaðar. Arinn í stofu og mikil lofthæð.
4 herbergiGríðarlega fallegt útsýni er úr stofum til vesturs yfir borgina, sundin og til Snæfellsjökuls, til suðurs yfir Reykjanesið
og í norðri til Esju. Falleg lóð með fullbúnum garði, stórum veröndum, skjólveggjum og heitum potti. Verð 79,5 millj.
Vatnsendablettur - Kópavogi. Einstök staðsetning.
Glæsilegt 300,6 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað alveg niður við Elliðavatn. Arkitekt er Kristinn Ragnarsson og
innanhússarkitekt er Guðbjörg Magnúsdóttir. Mikil lofthæð á efri hæð. Sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi og borðstofu.
Þetta er glæsilegt og vandað hús með einstakri staðsetningu við Elliðavatnið. Lóðin er mikið til villt og hefur verið látin
halda sér að mestu. Frábært tækifæri fyrir t.d. hestaáhugafólk. Verð 99,0 millj.
VATNSENDABLETTUR ÓLAFSGEISLI
99,0 millj.
SÉRBÝLI 4RA - 6 HERBERGJA 4RA - 6 HERBERGJA
ATVINNUHÚSNÆÐI
Mjög falleg, björt og vel skipulögð 123,4 fm. íbúð
á 2. hæð í góðu álklæddu fjölbýlishúsi í Sjálandi.
Fallegt útsýni er úr íbúðinni yfir sjóinn. Flísalagðar
suðvestur svalir. Gólfsíðir gluggar í stofu. Fallegt
eldhús með birkiinnréttingum. Sér stæði í bíla-
geymslu fylgir og lyfta er í húsinu. Staðsetning
eignarinnar er góð í nýlegu en grónu hverfi þaðan
sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði o.fl.
Verð 41,9 millj.
Norðurbrú – Sjálandi Garðabæ. 4ra herbergja íbúð.
Eignin verður til sýnis á morgun
frá kl. 17.15 - 17.45
Glæsileg 145,0 fm. 4ra herbergja íbúð á 3. hæð,
með tvennum svölum til suðausturs og austurs að
meðtalinni 9,1 fm. sér geymslu í kjallara í 3ja hæða
lyftuhúsi við Nýhöfn nr. 6 í Garðabæ. Sér stæði í
lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, sjónvarps-
hol, snyrtingu með sturtu, þvottahús, 2 barna-
herbergi og stórt hjónaherbergi með baðherbergi
inn af. Afhendist fullbúin án gólfefna í október
nk. Frábær staðsetning við sjávarsíðuna. Stutt
í falleg útivistarsvæði. Útsýni er yfir sjóinn og
fjallahringinn. Íbúð merkt 0306. Verið velkomin.
Nýhöfn 6 – Sjálandi Garðabæ. Ný íbúð á efstu hæð með tvennum svölum.
OP
IÐ
HÚ
S
Á M
OR
GU
N
Starhólmi 16 - Kópavogi.
Eignin verður til sýnis í dag
frá kl. 17.15 - 17.45
Mjög gott 196,2 fm. einbýlishús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr vel staðsett innst í botngötu. Mögulegt væri
að gera aukaíbúð á neðri hæð hússins. Húsið hefur verið mikið
endurnýjað á sl. árum m.a. hefur verið skipt um eldhúsinnréttingu
og tæki, nánast öll gólfefni, baðherbergi á efri hæð verið endur-
nýjað og ofna- og raflagnir. Stórar og bjartar stofur með útsýni
yfir Fossvogsdalinn. Þrjú herbergi auk sjónvarpsherbergis sem
auðvelt er að breyta í 1-2 herbergi. Lóðin er ræktuð með stórri
verönd til suðurs með heitum potti og tyrfðri lóð með tjörn og
gosbrunni. Gróðurhús er á lóðinni.
Verð 57,9 milllj.
Verið velkomin.
STARHÓLMI
OP
IÐ
HÚ
S
Í D
AG