Fréttablaðið - 15.09.2014, Síða 27

Fréttablaðið - 15.09.2014, Síða 27
Húsið er eitt kunnasta verk hans og hefur umfjöllun um húsið birst bæði í innlendum og erlendum fagtímaritum. Mikið er um stóra gluggafleti og skil milli inni og útirýma eru lítil, - flæði inni og úti rennur saman enda gólfefni víða þau sömu inni og á útisvæðum. Eignin er skráð 247,4 fm skv. fasteignaskrá en 46,6 fm stækkun á hjónasvítu og baðherbergi sem var gerð 1985 er ekki inní þeirri fermetratölu. Húsið skiptist í dag í 4 svefnherbergi, stofu með arni, eldhús með glæsilegri Poggenpohl innréttingu, 3 baðherbergi, þvottahús, víngeymslu, stóra borðstofu og auk þess er innréttuð stúdíóíbúð í bílskúr með sérinngangi. Grillpallur með glerþaki, lýsingu og hljóðkerfi. Lóðin er stór 1300 fm eignarlóð með óskertu sjávarútsýni yfir Arnarnesvoginn og verður ekki byggt fyrir framan. Stutt er í skóla (4 grunnskóla, alþjóðaskóla og fjölbrautaskóla) og íþróttahús/sundlaugar. Stórglæsilegt einbýlishús á einni hæð með óskertu sjávarútsýni yfir Arnarnesvoginn. Húsið er teiknað af Manfreð Vilhjálmssyni, staðsett við enda botnlanga við opið grænt svæði. Herbergi: 5 | Stærð: 294 m2 | Verð: Tilboð Sigríður Rut Fasteignasali 699 4610HRINGIÐ OG FÁIÐ FREKARI UPPLÝSINGAR Í GSM. 699 4610 Mávanes 4 210 Garðabær

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.