Fréttablaðið - 15.09.2014, Side 54
15. september 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 18
MIÐASALA Á
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
PÓSTURINN PÁLL 2D 5:50
THE NOVEMBER MAN 5:50, 8, 10:20
PARÍS NORÐURSINS 5:50, 8, 10:10
LIFE OF CRIME 10
LUCY 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
DENOFGEEK.COM
RICHARD ROEPER-CHICAGO SUN TIMES
FRAMLEIÐENDURNIR STEVEN SPIELBERG
OG OPRAH WINFREY BJÓÐA ÞÉR UPP Á
SANNKALLAÐA VEISLU
ARIZONA REPUBLIC NEW YORK OBSERVER
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL 2D KL. 5.50
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER KL. 8 - 10.15
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8
DAWN.. .PLANET OF THE APES 3D KL. 10.15
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 8 - 10.40
THE NOVEMBER MAN KL. 5.30 - 8 - 10.25
THE NOVEMBER MAN LÚXUS KL. 10.10
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 - 5.45
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL 3D KL. 3.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 3.30 - 5.45 - 8
PARÍS NORÐURSINS LÚXUS KL. 8
THE GIVER KL. 10.10
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8 - 10.20
LET́S BE COPS LÚXUS KL. 3.30 - 5.45
EXPENDABLES KL. 8 - 10.40
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
Hvernig eruði að fíla september? Eru garðhúsgögnin komin inn í bílskúr?
Búið að hella niður öllum sumarlegum
kokteilum? Ábreiðan komin yfir grillið?
Ég er að minnsta kosti búin að vakúm-
pakka havaí-skyrtunum og hvítu buxurnar
fá loks hvíld. Ofur-stílíseruðu sumarbrúð-
kaupin þar sem við drukkum úr krukkum
eru liðin hjá og búið að hleypa vatninu úr
pottinum í bústaðnum.
ÞAÐ virðist svo stutt síðan júní gekk í
garð. Það hafði ekki snjóað í nokkra daga
og við héldum að bikiní-tímabilið væri
gengið í garð. Pabbi dró fram stutt-
buxurnar sem hann keypti á Mæjorka
1990, sló grasið og spjallaði við grann-
ana yfir limgerðið, þótt þeir hafi ekki
heilsast allan veturinn. Konurnar
í Smáíbúðahverfinu sátu berar að
ofan úti á örsmáum svölum. Allir
voru dáleiddir af örvæntingar-
fullri sumartilhlökkun.
ÞESSIR björtu vordagar liðu
hratt og veðrið varð vont.
Það var ekki beint rigning,
en það var úði. Við reyndum að
vera hress. Óluðum krakkana
í regngöllunum niður í kerrur og röltum
um Bankastrætið. Það eina sem þar var
að finna var hafsjór gráhærðra goretex
Skandinava, ráfandi um að taka myndir
af vindjökkum hver annars með glænýjar
lundastyttur í poka.
SUMARIÐ kom og það fór. Ókeibæ og
takk fyrir þessi vörusvik. Nú þýðir ekk-
ert annað en að setja upp lambhúshettu
og horfa á fölnuð sumarblóm fjúka á hlið-
ina. Svo verðum við öll rennandi á rass-
inn í hálku áður en við vitum af. Það sem
íslenska sumarið veit ekki er að það á
að vera gott veður á sumrin. En íslenski
veturinn veit hins vegar að við elskum
flatkökur og Jólabó of mikið til að flýja
svo að hann lætur öllum illum látum um
leið og klukkan slær haust. Eftir að hafa
hetjulega lifað af þetta ömurlega sumar
er það eina sem við eigum í vændum
brúnleit laufblöð sem fjúka í smettið á
okkur og jólastressið sem byrjar víst
extra snemma í ár.
ÞETTA er bara smá september-realismi
því ég hef ekki góða tilfinningu fyrir
vetrinum. Til hamingju með að búa á
Íslandi og eigið góðan dag.
BAKÞANKAR
Berglindar
Pétursdóttur
Haustverkur
Gleði og glaumur á Línu
Það var mikið um dýrðir í Borgarleikhúsinu á laugardaginn þegar leikritið Lína Langsokkur var frumsýnt.
Ungir sem aldnir leikhúsgestir virtust í miklu stuði enda Lína í uppáhaldi hjá mörgum. Með titilhlutverkið
fer leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir og með önnur hlutverk fara til dæmis Örn Árnason, Kristín Þóra Har-
aldsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
FLOTT FEÐGIN Leikarinn Guðjón Davíð Karlsson ásamt
dóttur sinni Kristínu Þórdísi.
LEIKHÚSSTJÓRINN Katrín Odds-
dóttir, Katrín Lilja Árnadóttir og Kristín
Eysteinsdóttir, Borgarleikhússtjóri.
FJÖR Jóhann G. Jóhannsson leikari
var ófeiminn við myndavélina ásamt
Krumma og Óla Kaldal.
FORSETAFJÖR Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, lét sig ekki vanta á frumsýninguna og mætti ásamt stórfjölskyldu sinni.
FLOTTAR SAMAN Vigdís Finnboga-
dóttir, Ásta Sigríður Eggertsdóttir og Eva
María Eggertsdóttir.
SÆT Edda Björg Eyjólfsdóttir, Ísfold Elsa
og Kolbeinn Daði.
SPENNT Þorgerður Katrín fjölmennti með sitt fólk í leikhús.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
Hin nýgiftu leikarahjón Brad
Pitt og Angelina Jolie keyptu sér
frekar veglega brúðkaupsgjöf
en þau fjárfestu í nýrri snekkju
fyrir fjölskylduna. Farartækið
kostar litlar 250 milljónir Banda-
ríkjadala, eða um 29 milljarða
íslenskra króna. Snekkjan ku
vera ítölsk að uppruna og meðal
þess sem er á skipinu er búnað-
ur til að trufla myndavélar ljós-
myndara frá slúðurmiðlum. Pitt
og Jolie eru þessa dagana við
tökur á myndinni By the Sea sem
er í leikstjórn Jolie.
Keyptu sér
snekkju
FLOTT Á ÞVÍ Brad Pitt og Angelina
Jolie keyptu sér glænýja snekkju.
NORDICPHOTOS/GETTY