Fréttablaðið - 23.09.2014, Side 6
23. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
SKIPULAGSMÁL „Viðræður síðustu mánaða og ára
hafa ekki borið árangur og því óhjákvæmilegt að
undirbúa nauðsynlegar aðgerðir til að rýma lóð-
ina,“ segir í samþykkt stjórnar Faxaflóahafna sem
ákvað í gær að segja upp lóðarleigusamningi fyrir-
tækisins Björgunar við Sævarhöfða.
Í samþykkt hafnarstjórnarinnar segir að við-
ræður um flutning á starfsemi Björgunar af lóð-
inni ásamt könnun á möguleikum þess að koma
starfseminni fyrir á öðrum stað hafi staðið allt frá
árinu 2004. Lóðarleigusamningur Björgunar frá
1969 hafi runnið út árið 2009 og Faxaflóahafnir
hafi ítrekað sagt að ekki yrði um að ræða áfram-
haldandi útleigu á lóðinni.
Fram kemur að Björgun telji sig eiga bæði for-
leigurétt og byggingarrétt á svæðinu. Um sé að
ræða tvær lóðir, 3.161 fermetra lóð sem innheimt
hefur verið leiga fyrir frá upphafi og 73.503 fer-
metra lóð sem ekki hefur verið innheimt leiga af
frá því lóðarleigusamningurinn rann út 1. septem-
ber 2009. - gar
Faxaflóahafnir gefast upp á áralöngum viðræðum og segja upp lóðasamningi:
Björgun fær tvö ár til að rýma
ATHAFNASVÆÐIÐ Björgun sérhæfir sig í efnisöflun á hafs-
botni. Faxaflóahafnir segja að fyrirtækið verði að hreinsa eftir
sig fjöruna við Sævarhöfða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð
1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna.
Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er
að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða
munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf,
sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
HONG KONG, AP Þúsundir mennta- og
háskólanema lögðu í gær frá sér námsbæk-
ur sínar og hófu vikulangt verkfall til að
mótmæla kínverskum stjórnvöldum.
Þau hafa ákveðið að leyfa ekki að fram-
bjóðendur verði tilnefndir fyrir opnum
tjöldum til æðsta embættis í Hong Kong.
Það verður sett á laggirnar eftir tvö ár og
felur í sér framkvæmdastjórn yfir borginni.
Kínverjar vilja að frambjóðendurnir verði
valdir af dómnefnd en sautján ár eru liðin
síðan Kínverjar tóku við stjórninni í Hong
Kong, sem áður var bresk nýlenda.
Nemendurnir fóru í verkfall á sama tíma
og tugir viðskiptajöfra frá Hong Kong heim-
sóttu stjórnvöld í Peking til viðræðna við
kommúnistaleiðtoga Kína.
„Þetta nemendaverkfall mun koma af stað
lýðræðislegri vakningu,“ sagði Alex Chof,
formaður nemendafélags stúdenta í Hong
Kong, við um þrettán þúsund nemendur frá
24 skólum fyrir utan Kínverska háskólann í
borginni.
„Við viljum engar sjónhverfingar frá
stjórnvöldum lengur heldur ætlum við að
trúa á okkur sjálf. Við erum tilbúin til að
gjalda fyrir lýðræðið.“
- fb
Mennta- og háskólanemar í Hong Kong mótmæltu ákvörðun stjórnvalda um tilnefnda frambjóðendur:
Þúsundir nema í verkfalli fyrir lýðræðið
Í VERKFALLI Um þrettán þúsund nemendur lögðu frá
sér bækur sínar til að mótmæla ákvörðun kínverskra
stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. Hve margir læknar fl ytja af landi
brott árlega?
2. Hve margir mættu í Loftslagsgöngu
Reykjavíkur á sunnudaginn?
3. Hvaða ástsæli söngvari fagnaði átt-
ræðisafmæli í gær?
SVÖR:
1. Sextíu og sex 2. Um 300
3. Ragnar Bjarnason
LÖGREGLUMÁL Jónas Þór Guð-
mundsson, formaður Lögmanna-
félags Íslands, fagnar fréttum af
því að Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, forsætis- og dómsmála-
ráðherra, ætli að láta skoða hvort
rétt sé staðið að símhlerunum við
rannsókn sakamála
„Og þá ekki síst hvort
regluverkið sem um þetta fjallar er
í lagi og svo auðvitað framkvæmd-
in líka. Og þar skiptir máli að mínu
mati að Lögmannafélag Íslands
hefur óskað eftir fundi með ríkis-
saksóknara, til þess að ræða fram-
kvæmd símahlustunar og eftir
atvikum hvernig farið er með upp-
lýsingar sem þannig fást, frá því í
apríl á síðasta ári en án árangurs
þrátt fyrir ítrekanir,“ segir Jónas
Þór.
Formaður lögmannafélagsins
segir því mjög brýnt að þessi mál
verði skoðuð nánar.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkis-
saksóknari mun mæta fyrir fund
allsherjar- og menntamálanefndar
Alþingis í dag. Tilefni fundarins er
umræða sem hefur farið af stað um
hleranir.
„Þetta er á málefnasviði alls-
herjar- og menntamálanefndar og
þar sem friðhelgi einkalífsins er
varin í stjórnarskránni þá ber að
passa sig þegar við setjum reglur
um það líkt og við gerum þegar
við heimilum þessar rannsóknir,“
segir Unnur Brá Konráðsdóttir, for-
maður nefndarinnar. Nefndin vilji
því fullvissa sig um að farið sé að
reglum.
Auk ríkissaksóknara mun Reim-
ar Pétursson mæta fyrir hönd Lög-
mannafélags Íslands.
Þá mun Ragnhildur Hjaltadóttir,
ráðuneytisstjóri í innanríkisráðu-
neytinu, mæta með skrifstofustjór-
unum Bryndísi Helgadóttur og Þór-
unni J. Hafstein.
„Við höfum litið svo á að reglu-
verkið eins og það er sé nægilega
traust. Og þess vegna hefur okkur
komið á óvart að það séu einhverjar
efasemdir um það hvað megi gera
í þessu, hvað sé heimilt að gera í
þessum efnum og svo það að fram-
kvæmdin virðist vera ótraust. En
fyrst þetta er staðan þá auðvitað
bara fögnum við því að það sé skoð-
að hvort það sé ástæða til að treysta
regluverkinu,“ segir Jónas Þór.
Að sögn Jónasar Þórs lítur
félagið svo á að þetta mál snúist um
trúnaðarsambandið sem er á milli
lögmanns og umbjóðanda hans.
„Það nýtur verndar samkvæmt
lögum og ef það er brotið gegn
þessu trúnaðarsambandi þá felur
það í sér brot á rétti skjólstæðings
lögmanns. En það kann svo að vera
að það sé athugunarefni líka hvort
að það hafi verið með einhverj-
um hætti gengið á rétt lögmanna
sjálfra eftir atvikum til friðhelgi
eða í öðru efni,“ segir Jónas Þór.
fanney@frettabladid.is / jonhakon@frettabladid.is
Hunsar ósk um fund
um hleranir lögreglu
Formaður Lögmannafélags Íslands fagnar því að ráðherra láti skoða hvort rétt sé
staðið að hlerunum við rannsókn sakamála. Hann segir að félagið hafi óskað eftir
beiðni um fund vegna hlerana frá því í apríl. Þingnefnd fundar um málið í dag.
RÍKISSAKSÓKNARI Sigríður Friðjónsdóttir mun mæta á fund allsherjar- og
menntamálanefndar Alþingis í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lög-
mannafélag
Íslands hefur
óskað eftir
fundi með
ríkissaksókn-
ara til þess að
ræða framkvæmd
símahlustunar.
Jónas Þór Guðmundsson,
formaður Lögmannafélags Íslands
VEISTU SVARIÐ?