Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.09.2014, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 23.09.2014, Qupperneq 12
23. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12 26. september 09:00 Aðalfyrirlesari: Bernadette Christensen sálfræðingur og fagstjóri við Atferdssenteret í Noregi. 10:30 Samhliða málstofur. Meðferð hegðunar- og vímuefnavanda. Heimilisofbeldi – barnvæn nálgun, verklag og framtíðarsýn. Undirbúningur og framkvæmd fósturs. 13:00 Aðalfyrirlesari: Henrik Andershed, prófessor í sálfræði og dósent í afbrotafræði við Háskólann í Örebro í Svíþjóð. 14:30 Samhliða málstofur. Hlutverk og samvinna í greiningu og meðferð. Meðferð í kjölfar áfalla og ofbeldis. 16:00 Ráðstefnuslit. RÉTTUR TIL VERNDAR, VIRKNI OG VELFERÐAR BARNAVERNDARÞING 2014 Hilton Reykjavík Nordica 25. og 26. september. Dagskrá: 25. september 09:00 Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra setur þingið. Aðalfyrirlesarar: Trond Waage, sérfræðingur um réttindi barna og fyrrum Umboðsmaður barna í Noregi. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu og formaður Lanzarote nefndar Evrópuráðsins. 12:45 Sameiginleg málstofa. Eru reglur um málsmeðferð mikilvægar? 14:45 Samhliða málstofur. Kynferðislegt ofbeldi - forvarnir og verklag. Það skiptir máli að byrja snemma. Hvernig innleiðum við PMTO með árangursríkum hætti? N á n a r i u p p l ý s i n g a r o g s k r á n i n g á w w w. b v s . i s Ráðstefnan er opin öllum. VIÐSKIPTI „Pabbi borgaði sjö millj- ónir fyrir búseturétt í sinni íbúð. Þann pening átti hann að fá aftur ef hann flytti út úr íbúðinni eða þá að peningurinn átti að greiðast til erfingja ef hann félli frá. Við höfum engan pening fengið tveim- ur árum eftir andlát hans og ekki fengið nein skýr svör um hvort við fáum hann yfirhöfuð, segir Hall- dóra Hafsteinsdóttir. Faðir Halldóru, Hafsteinn Sig- urgeirsson, bjó í leiguhúsnæði á vegum Elliða, húsnæðissamvinnu- félags eldri borgara í Þorlákshöfn. Fjölskyldan hefur nú tveimur árum síðar ekki fengið greidd- an út búseturétt föðurins og því hafa ekki getað lokið við að gera upp dánarbúið. Elliði á 24 íbúð- ir sem ætlaðar eru 60 ára og eldri í Þorlákshöfn en félagið glímir við mikla fjárhags- erfiðleika. Ósátt við vinnubrögð félagsins. Halldóra segir að íbúar og aðstand- endur hafi ekki verið upplýstir um slæma fjárhagsstöðu félagsins og því hafi fregnir af rekstrarerfið- leikum félagsins komið þeim í opna skjöldu. Halldóra segir systkinin engin skýr svör hafa fengið frá félaginu varðandi hvort eða hvenær þau megi búast við að fá peningana. Hún er ósátt við stöðu mála. „Við fengum bara þau svör hjá félaginu að þau mættu ekkert gera og mættu ekki borga neitt út. Þau segjast vonast til þess að sveitar- félagið komi inn í þetta og það er kannski óskandi að það geri það. En ég er ósátt við viðbrögð félags- ins og mér finnst að það hafi ekki verið staðið við neitt af þess hálfu. Við hefðum ekki skilað af okkur íbúðinni hefðum við vitað þetta. Félagið leigir íbúðina núna út og því má segja að félagið hafi hagn- ast áfram á okkur.“ Skuldar tæpar 650 milljónir Til þess að öðlast búseturétt hjá Elliða þarf fólk að greiða fjórar til sjö milljónir en borgar eftir það mánaðarlega leigu. Ef einstakling- ur flytur úr húsunum eða deyr þá fær hann eða eftirlifandi ættingj- ar greiddan til baka höfuðstólinn af því sem borgað var inn. Húsnæðissamvinnufélagið Elliði var stofnað árið 2004 af íbúum í kringum byggingu og rekstur íbúð- arhúsa fyrir 60 ára og eldri í Þor- lákshöfn. Félagið hefur nú byggt alls 24 íbúðir í parhúsum við Mána- braut og Sunnubraut í bænum. Byggingarnar voru fjármagnað- ar með lánum frá Íbúðalánasjóði en heildarskuldir félagsins við Íbúða- lánasjóð voru 644.107.754 krónur samkvæmt síðasta ársreikningi og skuldir vegna búseturéttar voru 141.293.694 krónur. Skammtímaskuldir félagsins hljóða upp á um fimm milljónir króna. Segir lausn í sjónmáli Að sögn Vals Rafns Halldórssonar sem situr í verkefnastjórn Elliða eru fimm búseturéttir ófrágengnir. Valur segir að unnið sé að lausn mála í samvinnu við sveitarfélagið og að málið sé komið í ákveðinn farveg. Hann segir lagalega óvissu ríkja um hversu há upphæðin er vegna þessara fimm búseturétta en að nafnvirði sé upphæðin um 24 milljónir. Félagið hafi greitt út tvo búsetu- rétti áður en fjárhagur þess versn- aði en þá hafi ÍLS tekið fyrir að félagið greiddi frekari búseturétt út. „Það er ákveðin lausn í sjón- máli, sem við erum að vinna að í samvinnu við sveitarfélagið. Það eru auðvitað fleiri búsetufélög um land allt sem eru í svipaðri ef ekki verri stöðu,“ segir Valur sem kveð- ur ástæður rekstrarerfiðleikanna ekki vera bruðl heldur forsendu- bresti við efnahagshrunið 2008. „Félagið er í skilum. Það er eng- inn framkvæmdastjóri hjá félaginu og enginn starfsmaður. Félagið hefur aldrei greitt neitt í laun hvorki til starfsmanna né stjórnar eða verkefnisstjórnar. Við eins og margir aðrir horfðum upp á lán tvöfaldast.“ Vonast til að traust íbúa aukist Varðandi framtíð Elliða segir Valur Rafn að hún sé óráðin. Verkefnis- stjórn vinnur að því að finna lausn- ir á fjárhagsvanda félagsins. Sveit- arfélagið hefur aðstoðað á þeirri vegferð og til standi að gera þjón- ustusamning við sveitarfélagið. „Með þjónustusamningnum munum við bæta þjónustu við íbúa, styrkja fjárhagslegan grundvöll félagsins sem og stöðugleika. Með auknum stöðugleika vonumst við til þess að traust íbúa og almennings til félagsins aukist og að það leiði til þess að einstaklingar verði aftur tilbúnir til að fjárfesta í búsetu- rétti. Á borðinu liggur einnig tilboð frá ÍLS sem verkefnisstjórnin er að skoða,“ segir Valur Rafn Halldórs- son. hannarut@365.is Ósátt að fá arfinn ekki greiddan Erfingjar ósáttir við húsnæðissamvinnufélagið Elliða. Félagið skuldar Íbúðalánasjóði tæpar 650 milljónir. Getur ekki greitt íbúum og erfingjum búseturétt sem þeir eiga inni hjá félaginu. Erfingjar sitja í óskiptu búi og segja forsvarsmenn félagsins gefa óskýr svör. PARHÚS Íbúðirnar sem eru fyrir 60 ára og eldri eru við Mánabraut og Sunnubraut í Þorlákshöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VALUR RAFN HALLDÓRSSON ÓSÁTT Halldóra Hafsteinsdóttir segir að hún og systkini hennar geti ekki gert upp dánabú föður þeirra vegna fjár- hagsvanda Elliða. Við hefðum ekki skilað af okkur íbúðinni hefðum við vitað þetta. Félagið leigir íbúðina núna út og því má segja að félagið hafi hagnast áfram á okkur. Halldóra Hafsteinsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.