Fréttablaðið - 23.09.2014, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGMorgunstund gefur gull í mund ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is s.512-5447
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Arnór gerði sér grein fyrir að hann yrði að gera eitt-hvað sér til heilsubótar; ellegar myndi hann eyða of miklum tíma á bekknum í stað þess að vera
með í leikjum.
„Ég hef mikinn áhuga á öllu sem eykur almennt heil-
brigði og líkamlegan árangur hjá íþróttafólki,“ segir
Arnór sem hefur nú um skeið tekið inn burnirót í jurta-
hylkjum frá Arctic Root.
„Ég trúi hvorki á galdralausnir né pillur sem eiga allt
að lækna en ég las mér til
um burnirótina og komst að
því að hún passar mjög vel
inn í það sem ég er að gera.
Þetta er náttúrulegt bætiefni
sem er unnið úr rót rhod iola
rosea-plöntunnar.“
Arnór tekur tvær töflur á
dag, eina að morgni og aðra
fyrir æfingar síðdegis.
„Fyrstu áhrif af burnirótinni voru áberandi. Ég upp-
lifði strax aukna einbeitingu og gat haldið mér lengur við
efnið án þess að yfir mig færðist slen. Góð einbeiting er
gríðarlega mikilvæg í íþróttum og því þykir mér gott að
taka burnirót fyrir æfingar og leiki. Það hjálpar mér að
halda mér við efnið og viðhalda einbeitingu sem annars
getur verið erfitt þegar þreyta fer að færast yfir á löngum
æfingum eða í leikjum.“
Arnór er í háskólanámi og segir burnirótina hjálpa sér
við að beina athygli að námsefninu á löngum
skóladögum.
„Ég mæli eindregið með burnirótinni frá
Heilsu. Prófið að sleppa orkudrykkjum eða
öðrum örvandi efnum og farið aftur til nátt-
úrunnar. Hún mun gefa ykkur langvarandi
orku og einbeitingu án þess að brenna kerti
ykkar í báða enda.“
Arctic Root frá Heilsu fæst í apótekum,
heilsuvöruverslunum og stórmörkuðum.
Meira úthald og skerpa
Arnór Aðalsteinsson, leikmaður Breiðabliks, breytti um lífsstíl árið 2012 vegna þreytu
og orkuleysis. Hann þakkar náttúrulegri burnirót aukið úthald, orku og einbeitingu.
Góð leið til að byrja daginn er að taka frá nokkrar mínútur til
að hugleiða. Fyrir hugleiðsluna mætti einnig gera nokkrar vel
valdar teygjur til að hita upp líkamann. Þannig má fara inn í dag-
inn í jafnvægi og tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni.
Í ró og næði
Þegar byrjað er að hugleiða er mælt með að gera það tvisvar á dag,
að morgni og kvöldi í tíu til tuttugu mínútur. Þetta vex kannski
barnafólki í augum enda eru
morgnar iðulega erilsamir. Þá
gildir annaðhvort að semja við
makann eða vakna fyrr.
Til að hugleiðslan hafi til-
ætluð áhrif er nauðsynlegt að
hafa ró og næði. Gott er að setj-
ast niður á rólegum stað og gæta
þess að verða ekki fyrir trufl-
un, til dæmis frá síma og tölvu.
Einnig er gott að minnka birt-
una í herberginu.
Hægt er að finna ýmsar leið-
beiningar um hugleiðingu á net-
inu en hér er ein leið til að ná ró
í hugann: Lokið augunum og
takið nokkra djúpa andardrætti
þar sem andað er alveg niður í kviðinn í rólegum takti. Athygl-
inni skal beint að andardrættinum en ef hugsunin fer á flakk skal
beina henni hægt og rólega aftur að önduninni. Smám saman á
fólk að líða inn í núverundina og það losnar um spennu og streitu
í líkamanum, það hægist á hjartslætti, vöðvar slakna og hugur-
inn skýrist.
Hægt að teygja hvar sem er
Teygjur geta dregið úr vöðvaeymslum og fyrirbyggt meiðsli.
Teygjur eru nauðsynlegar í tengslum við heilsurækt en þær eru
einnig góðar á morgnana. Þá þarf að passa að teygja vöðvana ró-
lega en ekki með rykkjum en gott er að halda teygjunni í 20-30
sekúndur. Einnig ætti að teygja sama vöðvann þrisvar sinnum.
Þegar teygt er skal anda rólega inn og út til að ná góðri slökun. Þar
er einnig góð leið inn í hugleiðsluna.
Hugleitt og teygt
að morgni
Það gefur mér orkuskot út í daginn að hreyfa mig áður en börnin vakna. Mér finnst
gott að vera komin heim úr rækt-
inni klukkan 6.45 til að eiga með
þeim stresslausa morgunstund og
eiga svo seinni part dagsins laus-
an fyrir fjölskylduna. Það leng-
ir daginn þótt það kosti að ég fari
fyrr í rúmið á kvöldin,“ segir Ebba
Særún sem vaknar ýmist klukkan
fjögur til að fara í flug eða fimm á
morgnana til að rækta heilsuna.
Ebba er þriggja barna móðir,
hárgreiðslukona, flugfreyja og lík-
amsræktarþjálfari sem hefur und-
anfarinn áratug vaknað mjög árla
dags til að rækta líkama og sál.
„Ég er mjög mikil A-manneskja
og hef verið fyrst á fætur síðan
ég man eftir mér. Yfirleitt veit-
ist mér auðvelt að vakna en þegar
ég hef átt þrjú morgunflug í röð er
ég stundum orðin svefnvana. Þá
hvetur mig áfram hvað starfið og
samstarfsfólkið er skemmtilegt
og ef það læðist að mér að sofna
aftur aðra daga segi ég við sjálfa
mig: „Nei, Ebba! Drífðu þig fram
úr því þú verður svo hrikalega
fersk á eftir“.“
Margir undrast seiglu Ebbu að
vakna svo snemma til líkamlegra
átaka en hún segir það henta sér
vel.
„Líkamsrækt að morgni er mitt
orkuskot, rétt eins og aðrir þurfa
kaffibollann sinn. Þetta á vel við
mig og þegar ég verð orðin gömul
verð ég örugglega fremst í röð-
inni fyrir utan sundlaugina þegar
opnað er klukkan sex á morgn-
ana,“ segir hún hlæjandi.
Háttatími Ebbu er oftast klukk-
an tíu á kvöldin enda þarf hún sjö
til átta tíma svefn eins og aðrir.
„Ég legg mig vanalega ekki á
daginn en get þó sofnað hvar og
hvenær sem er og þykir stundum
gott að taka korters kríu í orku-
blund. Þá get ég vel vakað til rúm-
lega tíu,“ segir hún í gríni.
Ebba hefur frá árinu 2004 kennt
líkamsrækt hjá Hress í Hafnarfirði
og er nú með tabata- og foam flex-
tíma klukkan sex á morgnana.
„Þessi tími hentar mörgum vel
til líkamsræktar og vanalega er
tíminn hjá mér fullur af hressum
konum sem hafa tileinkað sér að
rækta líkamann í bítið,“ segir Ebba
sem er ótrúlega orkumikil.
„Ég fæ kraft úr hollu og góðu
mataræði en held að lykillinn
sé að vera glaður með það sem
maður hefur, njóta hverrar stund-
ar og þess að vera til.“
Auk líkamsræktar að morgni
hleypur Ebba maraþon, æfir þrí-
þraut og mætir til stífra sund-
æfinga í þríþrautinni þrjá morgna
í viku.
„Eftir kvöldmat förum við
fjölskyldan líka í Suðurbæjar-
laugina fjórum til fimm sinn-
um í viku og þá syndi ég ekk-
ert heldur slaka á í pottinum.
Þá tökum við með okkur nátt-
föt í útiklefana sem er yndislega
afslappandi og notalegt og allir
sofna vært á eftir.“
Það á svo ekki við Ebbu að
sofa fram eftir þegar frí gefst.
„Ég sef ákaflega sjaldan út og
finnst dagurinn búinn ef ég sef
til tíu. Ég hreinlega tími því ekki
og mæli hiklaust með að byrja
daginn fyrr því þá verður svo
mikið úr honum.“
Í morgunmat fær Ebba sér
graut úr chia-fræjum sem hún
leggur í bleyti kvöldið áður en
fullgerir svo að morgni. Graut-
inn segir hún ljúffengan, hollan
og töfrabragð að setja út í hann
klípu af möndlusmjöri.
Chia-morgungrautur Ebbu
1 msk. chia-fræ, lögð í bleyti kvöldið
áður
smávegis haframjöl
kókosmjólk
1 msk. möndlusmjör
hampfræ
bláber, jarðarber og kíví
Öllu hrært rólega saman með
skeið og borðað með bestu lyst með
skvettu af lífrænni AB-mjólk út á
grautinn
Tímir ekki að missa af deginum
Hársnyrtirinn, flugfreyjan og íþróttakonan Ebba Særún Brynjarsdóttir vaknar eldsnemma á hverjum morgni og hugnast ekki að
sofa út því þá er illa farið með daginn. Fyrir vikið á hún stresslausa tilveru með börnum sínum sem fara í náttfötin eftir kvöldsund.
Ebba Særún Brynjarsdóttir vaknar klukkan fjögur og fimm á hverjum morgni. Hún er þriggja barna móðir, hársnyrtir á Skipt í miðju í
Hafnarfirði, flugfreyja hjá WOW og líkamsræktarþjálfari hjá Hress. MYND/VALLI
Arnór Aðalsteinsson er knattspyrnumaður hjá Breiðabliki. Hann fann strax
fyrir aukinni einbeitingu þegar að hann byrjaði að taka inn burnirót.