Fréttablaðið - 23.09.2014, Side 24
KYNNING − AUGLÝSINGMorgunstund gefur gull í mund ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 20144
Ég finn mikinn mun á mér,“ segir Díana Íris Þórðardótt-ir sem tekið hefur inn Efa-
mol Active Memory í tvo mánuði.
„Einbeitingin er miklu betri og ég
er jákvæðari og hressari.“
Efamol Active Memory er glæný
blanda sem sameinar Omega
3-fiskiolíu með lykilnæringarefn-
um sem eru stór þáttur í að halda
heilanum heilbrigðum og efla lík-
amsvirkni og getu til að eiga gott
líf.
Unnið hefur verið að þróun og
samsetningu Efamol í meira en
aldarfjórðung með það að mark-
miði að bætiefnið nýtist manns-
líkamanum sem best við upptöku
á Omega 3-fitusýrum.
„Formúlan er blanda af DHA-
fitusýrum, phosphatidylserine,
fólínsýru, B-12 og E-vítamín-
um ásamt þykkni úr jurtinni
gingko biloba sem er þekkt fyrir
að viðhalda góðu minni. Heilinn
stjórnar líðan okkar, tilfinning-
um og hreyfanleika líkamans og
því mikilvægt að fá öll nauðsyn-
leg næringarefni, ekki síst þegar
við byrjum að eldast,“ segir Hafdís
Björk Guðmunds-
dóttir hjá Heilsu.
Efamol Active
Mem ory inniheld-
ur Omega 3 sem
er lykilf itusýra í
viðhaldi eðlilegr-
ar heilastarfsemi
ásamt B-12 og fól-
ínsýru sem stuðla
að eðlilegri líkam-
legri virkni.
„Efamol Active
Mem or y get u r
hjálpað við að viðhalda og bæta
vinnsluminni og verndar heila-
starfsemina gegn aldurstengdri
hrörnun. Flestum er kunnugt um
mikilvægi Omega 3 fyrir líkamann
og ekki síst til þess að viðhalda
heilbrigðri heilastarfsemi, góðri
sjón, varna náttblindu, styrkja
taugakerfið, bæta svefn og stuðla
að heilbrigðri
virkni líkam-
a n s . Fæ s t i r
fá viðunandi
magn þessara
bæt ief na ú r
fæðu og þess
vegna er Efa-
mol frábært til
að stuðla að al-
mennu hei l-
brigði og góðri
l íðan,“ seg ir
Hafdís.
Einnig er til Efamol Vision sem
er undraefni fyrir sjónina og vinn-
ur vel á öllum minnstu sjóngöll-
um, eins og náttblindu, versn-
andi fókus og hrörnun augnbotna.
Efamol Vision er ríkt af Omega 3,
DHA og lykilefnunum lútein, aðal-
bláberjum og zeaxanthin.
Efamol Mother and Baby er
sérþróuð Omega-blanda til að taka
fyrir, eftir og á meðgöngu. Það
inniheldur nauðsynlegar Omega
3 fitusýrur sem getur skort í nægj-
anlegu magni í fæðu mæðra á
meðgöngu og eru að sama skapi
mikilvægar fyrir þroska augna,
heila og taugakerfis fósturs. Efa-
mol Mother and Baby hjálpa
mæðrum einnig að komast í gott
andlegt form eftir fæðingu.
Efamol Active Memory fæst
í apótekum, heilsuvörubúð-
um og stórmörkuðum.
Efamol bætir minnið
Efamol Active Memory er glæný blanda sem sameinar Omega 3 með lykilnæringar-
efnum sem eru stór þáttur í líkamsvirkni, heilaheilbrigði og getu til að eiga gott líf.
Díana Íris Þórðardóttir hefur tekið Efamol Active Memory í tvo mánuði og finnur á sér
mikinn mun.
Þeir sem reka fyrirtæki eða hafa mikið að gera í vinnu vildu ef-
laust flestir hafa fleiri klukkutíma í sólarhringnum til að kom-
ast yfir allt sem gera þarf. Lykillinn að því að afkasta meiru gæti
verið í mörgum tilfellum sá að nýta morgnana betur. Í bók sinni
What the Most Successful People Do before Breakfast bendir Laura
Vanderkam á hvernig hægt sé að nota morgnana.
● Minni líkur eru á truflun á morgnana. Dagurinn er fljótur
að fyllast af alls kyns verkefnum hjá
önnum köfnu fólki og því líklegt að
ekki gefist tími til að gera eitthvað
fyrir sjálfan sig ef beðið er með það
fram yfir hádegi. „Það eru minni
líkur á að eitthvað komi í veg fyrir að
þú komist til dæmis á æfingu klukk-
an sex um morgun en klukkan
fjögur um daginn.“
● Viljastyrkurinn er
meiri á morgnana.
„Viljastyrkurinn er
eins og vöðvi sem
þreytist þegar hann
er ofnotaður,“ segir
Vanderkam. Yfir dag-
inn þarf til dæmis að
fást við erfiðar ákvarð-
anir, erfitt fólk og keyra í
mikilli umferð sem eyðir
upp viljastyrk fólks þannig
að í lok dags er forðinn búinn.
● Á morgnana gefst færi á að setja
tóninn fyrir daginn. Þeir sem
hafa sofið yfir sig eða gleymt nesti
barnanna á borðinu heima vita
að þegar dagurinn byrjar illa getur
það haft áhrif á skapið og minnkað afköst
dagsins. Vanderkam segir að þegar
fólk vaknar snemma gefi það
færi á að byrja daginn
skipulega og á litlum
sigrum sem setja tón-
inn fyrir hamingjurík-
ari og afkastameiri dag.
Afkastamiklir morgnar
Í morg u n f lý t i nu m re y n ist sumum erfitt að næra sig og börnin sem skyldi. Margir enda
á morgunkorni. „Það er svo sem
allt í lagi á meðan morgunkornið
er ekki sykrað en að mínum dómi
er hafragrauturinn bestur,“ segir
næringarfræðingurinn, kennar-
inn og ofurmamman Erna Héð-
insdóttir sem á fjögur börn á aldr-
inum 7 til 18 ára. Hún féllst á að
gefa nokkur ráð um það hvernig
best er að næra börnin á morgn-
ana.
Hafragrauturinn hollur og ódýr
Hafragrautur er hollur og góður og
mun ódýrari en pakkamaturinn.
„Heima hjá mér setjum við rúsín-
ur og chia-fræ út í grautinn en það
er auðvelt að leika sér með hann.“
Erna segir suma reyndar kvarta
yfir því að þeir verði svangir fljót-
lega eftir að hafa borðað hafragraut.
„Þá er ráð að fá sér smá prótein eða
fitu með og þar kemur lýsið sterkt
inn. Það hægir aðeins á melting-
unni. Eins er D-vítamínið okkur Ís-
lendingum ofboðslega mikilvægt
og í raun eina fæðubótarefnið sem
við þurfum.“
Sum börn vilja þó alls ekki hafra-
graut. „Þá er að velja sykurlaust
morgunkorn og sykursnauðar
mjólkurvörur. Eins gróft brauð
og lítið unnar kjötvörur.“
Nóg af vatni
Erna segir líka gott
að huga að morgun-
verðarmenningunni.
„Hví ekki að vakna tíu mínútum
fyrr, setja grautarpottinn á borð-
ið og sitja saman og borða í stað
þess að allir séu að grípa eitthvað
á hlaupum. Eins vil ég minna á
það að gefa börnum vel að drekka.
Setja glös og vatnskönnu á borð-
ið eða skenkja öllum vatn í glas.
Það þarf að passa að þau séu vel
vökvuð. Við finnum það sjálf að þó
við séum ekki með bein ofþorn-
unareinkenni þá fáum við fljótt
hausverk og verðum pirruð ef við
drekkum ekki nóg af vatni.“
Grænmeti og ávexti í nesti
Eitt af morgunverkunum er að
útbúa nesti. Erna er ekki lengi að
svara því hvað á að setja í nestis-
boxið. Það er grænmeti og ávext-
ir. „Ég hef unnið í skólum og mín
reynsla er sú að grænmetið sem
boðið er upp á með hádegismatn-
um í skólanum rýkur ekki endi-
lega út. Það eru helst þeir krakk-
ar sem eru vanir að borða græn-
meti og ávexti heima sem fá sér.
Hin komast upp með að láta það
vera. Það er því kjörið að tryggja
grænmetis- og ávaxtaneyslu með
því að hafa nestinu.“
Þarf að vera aðgengilegt
Erna mælir með því að hollust-
an sé skorin niður og gerð eins
lystug og aðgengileg og kostur
er. „Við köllum þetta gafflaperur
heima hjá mér en það eru perur
sem búið er að skera í bita. Eins
er gott að hafa grænmeti og ávexti
sjáanlegt uppi á borðum. Þá eru
meiri líkur á því að það sé borð-
að. Erna hefur líka vanið sig á að
gefa börnum sínum niðurskorið
grænmeti á meðan þau bíða eftir
kvöldmatnum. „Mín reynsla er sú
að það hefur ekki áhrif á matar-
lystina.
Sýnum gott fordæmi
Erna segir jafnframt afar mikil-
vægt að vera börnum góð fyr-
irmynd í fæðuvali og -venjum.
Koma þeim hægt og bítandi í
skilning um hvaða næring gerir
þeim gott og hvernig á að mat-
búa hina ýmsu rétti. „Það er
gaman að sjá hvernig það skilar
sér en elstu börnin mín tvö eru
til dæmis þegar farin að elda.“
Ernu er íþróttanæringarfræð-
in hugleikin en hún og börn-
in hennar fjögur æfa öll taek-
wondo hjá Ármanni. „Best er að
borða eitthvað létt klukkutíma
fyrir æfingu og drekka jafnframt
vel af vatni. Eftir æfingu er mik-
ilvægt að börnin fái f ljótlega
eitthvað orkuríkt í svanginn. Ef
það er ekki komið að kvöldmat
mæli ég með hnetum og fræjum
fyrir þau sem þola það en ann-
ars banana og hollum mjólkur-
vörum.
Hafragrauturinn bestur
Morgunmaturinn vefst fyrir mörgum og sumum reynist sérstaklega snúið að koma einhverju hollu og staðgóðu ofan í börnin í
upphafi dags. Næringarfræðingurinn og kennarinn Erna Héðinsdóttir gefur nokkur gagnleg ráð.
Hjá Ernu er hafragrauturinn þessa dagana með rúsínum og chia-fræjum.
Það er sniðugt að nýta morgn-
ana í að fara út að hlaupa.
Erna með börnum sínum
Höskuldi Mána 7 ára, Hólm-
fríði Ástu 9 ára, Brynjari Loga
12 ára og Álfheiði Kristínu 18
ára á taekwondo-æfingu.
Erna byrjaði fyrir þremur
árum og er ríkjandi Íslands-
meistari í sínum flokki. Hún
er jafnframt Íslandsmeistari
í ólympískum lyftingum.