Fréttablaðið - 23.09.2014, Qupperneq 31
| FÓLK | 7
■ BÓLUSETNING
Á vetri hverjum gengur inflú-
ensa yfir norðurhvel jarðar á
tímabilinu október til mars og
er hún tvo til þrjá mánuði að
ganga yfir. Árleg bólusetning
gegn inflúensunni er besta
vörnin og því gott að fara að
huga að því að fá sér hana.
Bólusetningin gefur um sextíu
til níutíu prósent vörn hjá ein-
staklingum yngri en 65 ára
(einnig börnum eldri en sex
mánaða) en heldur minni hjá
eldri einstaklingum. Bólusetn-
ingin dregur einnig úr alvar-
legum fylgikvillum sýkingar-
innar og lækkar dánartíðni hjá
þeim sem veikjast þó þeir hafi
verið bólusettir
Sóttvarnalæknir mælir með
árlegri bólusetningu áhættu-
hópa sem eru eftirfarandi
• Allir einstaklingar eldri en
60 ára.
• Öll börn 6 mánaða og eldri
og fullorðnir sem þjást
af langvinnum hjarta-,
lungna-, nýrna- og lifrar-
sjúkdómum, illkynja sjúk-
dómum og öðrum ónæmis-
bælandi sjúkdómum.
• Starfsfólk heilbrigðis-
þjónustu og aðrir þeir sem
daglega annast fólk með
aukna áhættu.
Heimild: doktor.is
FLENSA Á FERÐ
Nú fer tími flensu-
faraldra að renna upp.
Afmælismálþing Krafts verður
haldið í Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélags Íslands að
Skógarhlíð 8 miðvikudaginn
1. október kl. 13.
Kraftur er stuðningsfélag fyrir
ungt fólk sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur.
Það fagnar 15. afmælisári sínu
og stendur af því tilefni fyrir mál-
þingi undir yfirskriftinni „Ungt
fólk og krabbamein“.
Afmælismálþingið fer fram á
stofndegi Krafts og er það öllum
opið að kostnaðarlausu. Mark-
mið þess er að fjalla um þær hlið-
ar krabbameins sem sérstaklega
tengjast ungu fólki.
Formleg stofnun Neyðar-
sjóðs Krafts fer einnig fram á
málþinginu ásamt því að boðið
verður upp á afmælisveitingar.
Fyrirlesarar málþingsins eru
bæði fræðimenn og reynslumiklir
leikmenn. Umfjöllunarefni þess
snýr að forvörnum, kostnaðar-
þátttöku krabbameinssjúklinga,
frjósemi og barneignum eftir
krabbameinsmeðferð, stuðningi
við aðstandendur, aðferðum til
að ræða við börn um sjúkdóminn
og upplifun notenda af heilbrigð-
isþjónustunni.
AFMÆLISMÁLÞING OG STOFNUN NEYÐARSJÓÐS KRAFTS
Meðal fyrirles-
ara er Elísabet
Lorange list-
meðferðar-
fræðingur sem
heldur erindi
um stuðning við
aðstandendur.
ÖLLUM OPIÐ
Málþingið er haldið á stofndegi
Krafts og er öllum opið.
● OFNÆMI
Ný rannsókn á vegum vísinda-
manna við Oxford-háskóla
bendir til að ristaðar jarð-
hnetur séu líklegri til að vekja
ofnæmisviðbrögð en hráar
hnetur.
Talið er að efnafræðilegar
breytingar sem verða við rist-
un geti kveikt ofnæmi og aukið
líkur á ofnæmisviðbrögðum
síðar.
Rannsóknin var birt í tíma-
ritinu Journal of Allergy and
Clinical Immunology. Hún
var gerð á músum sem fengu
jarðhnetu prótein. Líkamar
þeirra sem fengu ristuðu út-
gáfuna brugðust mun verr við
en líkamar þeirra músa sem
fengu hráar hnetur.
Vísindamennirnir sögðu
ítarlegri rannsóknir nauð-
synlegar en töldu að þessar
niðurstöður gætu útskýrt af
hverju jarðhnetuofnæmi er
mun minna í Austur-Asíu þar
sem soðnar, hráar eða steiktar
hentur eru mun algengari í
fæðu en ristaðar.
RISTAÐAR
VERRI
Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir fjölskyldunnar
og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur
því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næring-
arríkan mat frá grunni eins og það vildi gera,
m.a. til þess að forðast aukaefni og of mikinn
sykur. Þannig að fljótlega varð okkar næsta
verkefni að búa til heilsurétti án aukaefna,
viðbætts sykurs, eins og maturinn væri í raun
matreiddur í eldhúsinu heima, en samt hægt
að kaupa tilbúna úti í búð. Við höfum útbúið
þrjá nýja heilsurétti, Grænmetislagsagna,
Gulrótarbuff og Indverskar grænmetisbollur.
Bragðgóðir réttir, fullir af þarflegum næring-
arefnum.
Bestu kveðjur, Berglind og Siggi.