Fréttablaðið - 23.09.2014, Qupperneq 38
23. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 22
„Ég hlakka mikið til að koma
til landsins, ég hef aldrei komið
áður,“ segir Mike Leigh, hinn
víðfrægi breski leikstjóri, sem
verður einn heiðursgesta á RIFF,
alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík sem hefst í næstu viku.
Aðspurður hvort hann sé með ein-
hverja áætlun, segir Leigh: „Nei,
að vera með eitthvert plan væri
ansi hrokafullt, held ég.“
Leigh hóf störf í leikhúsi á sjö-
unda áratugnum en í dag er hann
einn virtasti núlifandi leikstjóri
heims. „Lundúnaborg Leighs er
jafn sérstæð og Rómaborg Fellin-
is eða Tókýó Ozus,“ var ritað um
myndir Leighs í New York Review
of Books á sínum tíma.
Á RIFF verða sýndar nokkr-
ar gamlar myndir eftir Leigh;
Naked, Life Is Sweet og Topsy-
Turvy, ásamt nýju myndinni hans
Mr. Turner. Myndin fjallar um ævi
og störf breska málarans J.M.W.
Turner.
„Sem málari er hann einstakur
og list hans er ótrúleg og mjög sér-
stök,“ svarar Leigh, spurður um
ástæðuna fyrir því að hann laðað-
ist sérstaklega að Turner. „Hann
er bæði einn besti enski málari
allra tíma og einfaldlega einn besti
málari allra tíma yfirhöfuð. Síðan
bjóða málverkin hans upp á mjög
myndræna meðhöndlun. Hann er
mjög „sinematískur“ málari. Síðan
er hin hliðin á teningnum, sem er
persónan Turner. Sérvitur, flókinn
og mótsagnakenndur fýr. Spenn-
an milli mannsins og þessara
ótrúlegu, epísku og háleitu verka
finnst mér mjög áhugaverð. Það
kallaði eiginlega á að gera mynd
um hann.“
Persónusköpunin í handritum
Leigh er unnin á harla óhefðbund-
inn hátt en hann skapar eigin-
lega persónurnar ásamt leikurun-
um með löngu ferli rannsókna,
umræðna og spuna. Timothy
Spall sem leikur Turner eyddi til
dæmis tveimur árum með mynd-
listarkennara sem kenndi honum
að mála.
Myndir Leighs eru ekkert létt-
meti en þær hafa oft einhverja
djúpstæða merkingu. „Ég myndi
segja að það sem þessi mynd eigi
sameiginlegt með hinum myndun-
um mínum er það að hún er að ein-
hverju leyti um siði og venjur sam-
félagsins, um sambönd fólks, um
utangarðsmenn og fólk sem brýst
frá „norminu“ og því sem er sjálf-
gefið.“
Leigh kom að einhverju leyti
út úr bresku menningarstefnunni
„kitchen-sink realism“ á sjöunda
áratugnum, eins konar félagslegu
raunsæi sem lagði áherslu á lægri
stéttir samfélagsins. En hversu
mikilvægt er raunsæið fyrir
Leigh? „Ég reyni að gera mismun-
andi kvikmyndir en aðeins innan
stefnu raunsæisins. Fyrir mig
er það mjög náttúrulegt að taka
myndavélina og beina henni að
heiminum, sem er mjög flókinn
og spennandi. Mig langar ekki
að beina henni neitt annað – það
gæti verið að ég horfi á heiminn
í gegnum mismunandi linsur og
prisma. Aðalmálið er að endur-
spegla þennan grátbroslega heim
sem við lifum í.“
Þessi grátbroslegi
heimur sem við lifum í
Mike Leigh, einn virtasti leikstjóri heims, er einn heiðursgesta RIFF í ár.
Sýnir nýja mynd sína um málarann Turner.
RAUNSÆIÐ HEILLAR Mike Leigh heldur sér innan stefnu raunsæisins
Naked (1993)
Naked fjallar um ógeðfelldan en gáfaðan ungan mann sem flýr frá Man-
chester til London til að flýja undan barsmíðum eftir að hafa nauðgað
stúlku. Naked er dökk innsýn í líf týndrar sálar en myndin hlaut fjölda
verðlauna á sínum tíma.
Topsy-Turvy (1999)
Myndin fjallar um Gilbert og Sullivan, leikritahöfundinn og tónskáldið sem
unnu saman á Viktoríutímanum. Nýjasta leikrit teymisins fær hrikalegar við-
tökur en síðan hefja þeir störf við meistaraverkið Míkadó.
Life Is Sweet (1990)
Dramatísk gamanmynd um harla sérvitra fjölskyldu í Norður-Lundúnum.
Timothy Spall, sem leikur aðalhlutverkið í Mr. Turner, leikur í myndinni eins
og mörgum öðrum myndum Leighs.
Fleiri Mike Leigh myndir á RIFF
Við óskum Biokraft til hamingju með vindmyllurnar!
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
ORKA NÁTTÚRUNNAR ER NÚ
EINNIG FÁANLEG ÚR ÍSLENSKU ROKI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
4
4
9
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna
á samkeppnishæfu verði. Við viljum nýta auðlindir af ábyrgð
og nærgætni og bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð.
Fyrirtækið Biokraft hefur gangsett tvær vindmyllur í Þykkvabæ sem
munu skila allt að þremur gígavattstundum á ári, en það jafngildir
raforkuþörf um eittþúsund íslenskra heimila.
Við hjá Orku náttúrunnar erum stolt af því að selja þessa vistvænu
orku til neytenda um allt land. Við óskum aðstandendum Biokraft
innilega til hamingju með þennan áfanga og hlökkum til áfram-
haldandi samstarfs og uppbyggingar í framtíðinni.
LÍFIÐ