Fréttablaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 42
23. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26
PEPSI KVENNA 2014
STAÐAN
Stjarnan 17 15 1 1 56-9 46
Breiðablik 17 13 1 3 52-16 40
Þór/KA 17 9 3 5 20-23 30
Selfoss 17 9 2 6 38-25 29
Fylkir 17 9 2 6 18-18 29
ÍBV 17 9 0 8 43-26 27
Valur 17 6 4 7 28-27 22
FH 17 3 3 11 17-59 12
Afturelding 17 3 1 13 15-48 10
ÍA 17 0 1 16 9-45 1
SPORT
FÓTBOLTI „Sviðið og bikarinn voru
á svæðinu og því var eðlilega smá
skrekkur í okkur framan af. Við
hristum það svo af okkur og klár-
uðum þetta eins og við vildum,“
segir besti leikmaður Pepsi-deild-
ar kvenna, Harpa Þorsteinsdóttir,
eftir að hún hafði tryggt Stjörn-
unni Íslandsmeistaratitilinn í gær.
Eftir slakan fyrri hálfleik gegn
Aftureldingu reif Stjarnan sig upp
og vann 3-0 sigur með glæsilegri
þrennu frá Hörpu. Hún er komin
með 27 mörk í 17 leikjum í sumar
og hefur verið óstöðvandi.
„Ég vona að Stjarnan haldi
áfram að vera með yfirburði í
þessari deild. Við höfum svo sann-
arlega alla burði til þess. Liðið er
gott og mikill efniviður í yngri
flokkunum hjá okkur.“
Yfirburðir Stjörnunnar hafa
verið miklir í sumar rétt eins og í
fyrra. Liðið er aðeins búið að tapa
einum leik og gera eitt jafntefli. Í
fyrra vann liðið alla sína leiki. Það
er hvergi veikan hlekk að finna í
þessu Stjörnuliði og með marka-
skorara eins og Hörpu innan sinna
raða er það einfaldlega óstöðvandi.
„Það er mjög sætt að hafa náð
tvennunni en það er nákvæmlega
það sem stefnt var að. Við vildum
halda áfram að skrifa sögu Stjörn-
unnar upp á nýtt. Félagið hafði
aldrei varið titilinn og ekki held-
ur unnið tvöfalt,“ segir Ólafur Þór
Guðbjörnsson, þjálfari liðsins, en
það leyndi sér ekki að hann var
gríðarlega stoltur af stelpunum
og hann ætlar að halda áfram að
þjálfa þær.
„Það er í höndum Stjörnunnar
að halda áfram vel utan um þetta
lið því að hópurinn er frábær. Það
er frábær efniviður hér til þess að
byggja á til framtíðar.“
Það er svo sannarlega verk að
vinna hjá öðrum félögum ef á að
velta þessu Stjörnuliði úr sessi.
Frábært lið, breiður hópur og
fleiri stelpur að koma upp. Þess-
ar stelpur skrifa sögu Stjörnunnar
upp á nýtt á hverju ári og þær vilja
að strákarnir feti í fótspor þeirra.
„Við erum að endurskrifa sög-
una og nú er komið að strákun-
um. Ég er viss um að þeir vinna í
ár og það sé gullöld í uppsiglingu
í fótboltanum í Garðabæ,“ sagði
sigurreifur fyrirliði Stjörnunnar,
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir.
henry@frettabladid.is
Stjörnustúlkur bestar
Stjarnan varði Íslandsmeistaratitil sinn í kvennafl okki í gær og er því tvöfaldur
meistari í ár. Stjörnuliðið hefur verið í sérfl okki undanfarin tvö ár og fátt sem
bendir til annars en að liðið geti haldið yfi rburðum sínum á komandi árum.
LANGBESTAR Stjörnustúlkur hefja bikarinn á loft. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Fjölnir og Stjarnan mæt-
ast í mikilvægum leik í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu í dag klukkan
16.30 á Fjölnisvelli. Fjölnismenn
berjast fyrir sæti sínu í deildinni
en Stjarnan er í harðri baráttu um
Íslandsmeistaratitilinn við FH.
Liðin áttu að mætast á sunnu-
daginn en Garðar Örn Hinriks-
son, dómari leiksins, lét fresta
honum hálftíma áður en leikurinn
átti að hefjast vegna veðurs. Mörg-
um kom á óvart hversu seint Garð-
ar tók ákvörðunina, en hann var í
fullum rétti þó stutt væri í leik.
„Það má fresta leik alveg fram
að fyrsta sparki. Eftir að liðin eru
komin á leikstað er þetta alfarið
í höndum dómarans,“ segir Birk-
ir Sveinsson, mótastjóri Knatt-
spyrnusambands Íslands, í sam-
tali við Fréttablaðið.
Bæði lið þurfa á sigri að halda,
en hann hefur mikil áhrif bæði
á toppbaráttuna í deildinni sem
og botnbaráttuna. Því munar um
þessa auka tveggja daga hvíld
sem bæði lið fengu vegna frestun-
ar leiksins. Á sama tíma var spil-
að bæði á Hlíðarenda í Reykjavík,
Kópavogi og í Hafnarfirði.
„Ég var ekki á staðnum en dóm-
arinn mat aðstæður svona. Þær
geta verið misjafnar og þær eru
ekkert eins á öllum völlum. Við
verðum bara að treysta dómaran-
um fyrir þessu,“ segir Birkir.
Fjölnismenn eru með 19 stig í
níunda sæti Pepsi-deildarinnar og
geta endanlega kvatt falldrauginn
takist þeim að leggja Stjörnuna að
velli í kvöld. Fari svo eru FH-ing-
ar heldur betur komnir í bílstjóra-
sætið í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn, en þeir eru með
þriggja stiga forskot á Garðbæinga
eftir sigur á Fram á sunnudag-
inn. Stjörnumenn verða að vinna
í kvöld til að jafna við FH-inga í
baráttunni á toppnum. - tom
Treystum dómaranum fyrir þessu
Fjölnir og Stjarnan mætast í dag eft ir leik þeirra á sunnudaginn var frestað.
MIKILVÆGUR Leikurinn í kvöld hefur
mikil áhrif. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
HÆGINDASTÓLAR
DORMA Holtagörðum, Reykjavík 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík 558 1100
MIKIÐ ÚRVAL
EASY
hægindastóll
með skemli
STÓLA
TILBOÐ
99.990
FULLT VERÐ 119.
990
Jazz - hæginda stóll.
Fæst í koníaks brúnu,
svörtu,dökk brúnu og
kremuðu leðri.
JAZZ
hægindastóll
Easy - hæginda stóll.
Fæst í svörtu,dökk brúnu
og kremuðu leðri og ein-
nig í svörtu áklæði.
TUCSON hægindastóll
4 litir.
STÓLA
TILBOÐ
69.900
FULLT VERÐ 89.9
00
STÓLA
TILBOÐ
79.900
FULLT VERÐ 99.9
00
FÓTBOLTI Ragnar Sigurðsson og félagar
í Krasnodar unnu 1-2 útisigur á Amkar
Perm í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta
í gær. Krasnodar situr í 7. sæti deildarinn-
ar með 14 stig eftir átta umferðir.
Ragnar hefur verið fastamaður í vörn
Krasnodar á tímabilinu, en hann og
Svíinn Andreas Granqvist hafa myndað
sterkt miðvarðapar hjá rússneska liðinu.
Krasnodar hefur fengið á sig sex mörk í
deildinni, en aðeins fjögur lið hafa fengið
á sig færri mörk.
Ragnar var keyptur til Krasnodar frá
danska liðinu FCK í janúar, en hann lék
sex deildarleiki á síðustu leiktíð. - iþs
Ragnar stendur sína
plikt hjá Krasnodar HANDBOLTI Íslandsmeistarar ÍBV
eru aðeins með eitt stig eftir tvær
fyrstu umferðirnar í Olís-deild
karla í handbolta.
Eyjamenn töpuðu í gær fyrir
ÍR á heimavelli, 24-29, eftir að
hafa verið fjórum mörkum undir
í hálfleik, 12-16. Bjarni Fritzson
og Björgvin Hólmgeirsson skor-
uðu átta mörk hvor fyrir Breið-
hyltinga, en Einar Sverrisson
var markahæstur í liði ÍBV með
fimm mörk.
FH vann fjögurra marka sigur,
24-28, á Fram á útivelli. Benedikt
Reynir Kristinsson, Andri Hrafn
Hallsson, Ásbjörn Friðriksson og
Ragnar Jóhannsson skoruðu allir
fimm mörk fyrir FH, en Garðar
B. Sigurjónsson var markahæst-
ur Framara með sjö mörk.
Þá vann Stjarnan eins marks
sigur á HK, 27-26, í Mýrinni.
Þetta var fyrsti sigur Garðar-
bæjarliðsins í deildinni, en HK
er enn án stiga. Andri Hjartar
Grétarsson skoraði sjö mörk fyrir
Stjörnuna, en Egill Magnússon
kom næstur með fimm mörk.
Þorgrímur Smári Ólafsson var
atkvæðamestur í liði HK með níu
mörk. - iþs
Íslandsmeistararnir byrja illa
ÖFLUGUR Andri Hrafn lék vel með fh
gegn fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI