Fréttablaðið - 02.10.2014, Síða 26
2. október 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
MS eða Mjólkursamsalan er fyrirtæki
sem ég hef lengi litið á sem heimilis-
vin með gott vöruframboð og góða vöru.
Íslenskir kúabændur hafa staðið sig
vel á liðnum árum í sinni vöruþróun, á
því er ekki vafi. Mér fannst einnig gott,
sem neytanda, að geta verslað við önnur
mjólkurfyrirtæki en MS, til dæmis
Baulu og Mjólku, á meðan þeirra naut
við sem sjálfstæðra fyrirtækja. Ekki
síst til að geta borið saman verð og gæði
milli framleiðenda.
MS var lengi vel í mínum huga ímynd
hreinleika og hollustu í íslenskum mat-
vælaiðnaði. En svo komst ég að því mér
til mikilla vonbrigða að margar af þeim
„hollu“ mjólkurvörum sem boðið var
upp á í verslunum innihéldu viðbætt-
an sykur í slíku magni að nærri var að
tala um sælgæti en hollustuvörur. Sú
mynd er mjög skýr í huga mér þegar
íslenskur fréttaskýringaþáttur sýndi
þennan viðbætta sykur með því að hlaða
sykurmolum við hlið vörutegundanna.
Góðu fréttirnar voru hins vegar þær að
þessi umræða um sykurinn virtist hafa
jákvæð áhrif á fyrirtækið og MS setti
á markaðinn skyr og e.t.v. fleiri vörur
sem merktar voru án viðbætts sykurs og
smakkast alveg ljómandi vel.
En nú hafa alvarleg tíðindi borist. MS
hefur samkvæmt úrskurði Samkeppnis-
eftirlitsins brotið af sér í skjóli þeirrar
verndar sem hún býr við og framið
alvarleg samkeppnisbrot. Ef úrskurður
Samkeppniseftirlitsins verður staðfest-
ur við áfrýjun hefur MS brugðist þeim
ríku skyldum sem fylgja því að hafa slíkt
einkaleyfi með höndum. Fjárhæð sektar-
innar sem lögð er á MS gefur til kynna
alvarleika brotsins, ekki síst í því hvern-
ig með kerfisbundnum hætti var grafið
undan félögum í samkeppni. Auðvitað er
einbúið að ráðist verður í lagabreytingar
sem tryggja bæði hag neytenda og fram-
leiðenda, en þar sem neytendur hafa
meira vægi eins og í almennri löggjöf.
Ég fagna einnig viðbrögðum Haraldar
Benediktssonar, þingmanns Sjálfstæð-
isflokksins og fyrrverandi formanns
Bændasamtakanna, í þessu máli þar sem
hann hvetur til að félagið opni bækur
sínar og hugi að eigin trúverðugleika.
Heimilisvinur bregst
SAMKEPPNI
Elín Hirst
alþingismaður
➜ Auðvitað er einbúið að ráðist
verður í lagabreytingar sem tryggja
bæði hag neytenda og framleið-
enda, en þar sem neytendur hafa
meira vægi eins og í almennri
löggjöf.
Framsókn út á land?
Ráðherrar Framsóknarflokksins
keppast við að efla atvinnulíf hér
og þar um landið. Sigurður Ingi
Jóhannsson hefur ratað í ýmsar
ógöngur með Fiskistofu og nú ætlar
Eygló Harðardóttir að taka á honum
stóra sínum og ekki bara flytja
Barnaverndarstofu úr Reykjavík
heldur leggja hana niður og stofna
aðra, á landsbyggðinni. Þar sem
ráðherrum Framsóknar er þetta
svo mikið kappsmál, því ætli
þeir byrji ekki á heimavelli?
Höfuðstöðvar Framsóknar-
flokksins eru við Hverfisgötu
í Reykjavík, í 101 Reykjavík.
Og ekki er úr vegi að fylgjast
með hvort þær verði ekki
fluttar út á land. Sem hlýtur
bara að verða.
Hjálparstofnunin slekkur ljósin
Mörgum kemur á óvart að Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hafi kosið að hætta
að skipta við Kertaverksmiðjuna
Heimaey og ákveðið frekar að kaupa
friðarkerti frá Póllandi. Þegar hefur
skapast mikil umræða um þessa
ákvörðun, sem veikir mjög grundvöll
Heimaeyjar, sem er verndaður vinnu-
staður. Af umræðunni má marka að
margir hafi slegið tvær flugur
í einu höggi, styrkt bæði
hjálparstarfið og
Heimaey með kaup-
um á friðarkertunum.
Kertaverksmiðjan
hefur sent út beiðni
til góðgerðarfélaga
vegna áfallsins og
er vonast
til að á
næstu vikum komi eitthvað út úr
þeirri beiðni.
Á þingi Íhaldsmanna
Bjarni Benediktsson kom í gær heim
frá Bretlandi, þar sem hann hefur
dvalið undanfarna daga. Hann var
staddur þar á þingi Íhaldsflokksins.
Ekki liggur fyrir hvort Bjarni hitti
David Cameron, formann flokksins
og forsætisráðherra Breta, en þeir
hafa áður hist. Meðal annars í
mars á þessu ári, þar sem þeir
ræddu efnahagsmál. Þeir Bjarni
og Cameron hittust líka árið
2010 þar sem þeir ræddu sam-
eiginlega hagsmuni Íslands og
Bretlands.
sme@frettabladid.is
jonhakon@frettabladid.isÍ
sland hefur lengi verið í fremstu röð þegar kemur að
jafnrétti kynjanna. Því er fagnaðarefni tilkynning Gunn-
ars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra hjá Sameinuðu
þjóðunum í byrjun vikunnar um að Ísland og Súrínam ætli
í byrjun næsta árs, á vettvangi samtakanna, að standa að
„rakarastofuráðstefnu“ þar sem karlar einir ræði jafnréttismál og
ofbeldi gegn konum.
Samtal karlanna er þó raunar ekki nema hluti ráðstefnunnar,
þótt sá hluti hafi vakið hvað mesta athygli hér heima og erlendis.
Ráðstefnan er einn viðburða sem
Sameinuðu þjóðirnar efna til á
næsta ári í tilefni af því að þá
verða 20 ár liðin frá kvennaráð-
stefnu SÞ í Peking.
Gréta Gunnarsdóttir, fastafull-
trúi Íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum, sagði í viðtali við
síðdegisútvarp Rásar 2 í gær að
ráðstefnan væri einn angi af þeim jafnréttismálum sem íslenska
sendinefndin hefði beitt sér fyrir. Hún áréttaði að aðaláhersla ráð-
stefnunnar væri á ofbeldi gegn konum. „Ætlunin er ekki að tala
um jafnréttismál almennt, heldur taka fyrir hlutverk karla bæði
sem hluta af vandanum og sem hluta af lausninni,“ sagði hún.
Um það verður ekki deilt að sú umræða er þörf. Síðustu ár og
áratugi hefur umræða um ofbeldi gegn konum tekið breytingum
og málaflokkurinn komist upp á yfirborðið. Jafnvel hér á landi
þar sem jafnmikill árangur og raun ber vitni hefur náðst í jafn-
réttismálum er ofbeldi gegn konum útbreitt vandamál. Margoft
hefur verið bent á að vandinn takmarkist ekki við einhverja
ákveðna þjóðfélagshópa, heldur geti heimilis- og kynferðisofbeldi
átt sér stað á hvaða heimili sem er, án tillits til stöðu og efnahags.
Þá einskorðast vandinn vitanlega ekki einvörðungu við líkam-
legt ofbeldi. Niðrandi tal, myndbirtingar á veraldarvefnum og
annað sem ætlað er til að grafa undan stöðu og trúverðugleika
kvenna er líka ofbeldi.
Ætla má að í landi eins og Súrínam, sem er í hópi þeirra sem
skemmst eru á veg komin í heiminum hvað varðar jafnrétti
kynjanna, sé vandi kynbundins ofbeldis enn meiri og duldari en
hér. Vonandi getur þetta samtal sem eiga á sér stað í janúar orðið
til þess að efla umræðu og meðvitund um vandamálið sem víðast
um heim, hversu langt sem þjóðir eru komnar í að bæta hag
kvenna. Þótt hér hafi árangur náðst er hvergi nærri nóg að gert.
Vitanlega láta allir almennilegir menn sig varða ofbeldi gegn
konum og leggja lið baráttunni gegn því, sem og baráttu fyrir
jafnrétti kynjanna. Í þeim efnum þurfa bæði karlar og konur að
leggja hönd á plóg.
Veki samtal karla um vandamálið á ráðstefnu Íslands og
Súrínam athygli, getur það bara verið til góðs. Engin ástæða er til
að stökkva í einhverjar niðurrifsskotgrafir og ætla aðstandendum
þessarar ráðstefnu að vilja færa málaflokk kynbundins ofbeldis
inn í einhver reykfyllt karlaherbergi. Umræðan er góð og liður
í baráttu gegn öllu ofbeldi. Því að ofbeldi á aldrei að líða, sama í
hvaða formi það birtist.
Barátta gegn ofbeldi kallar á samhent átak:
Karlar leggja
góðu máli lið
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
www.heilsuborg.is
Í tilefni af 5 ára afmæli Heilsuborg
okkur að bjóða þér á eftirtalda fyr
- 13.450 kr.
ar langar
irlestra:
Laugardaginn 11. október höldum við afmælishátíð Heilsuborgar.
Fylgstu með og vertu vinur okkar á Facebook.
Heilsa og Húmor
Sykur og sætuefni
Fyrirlestur um Svefn og slökun