Fréttablaðið - 02.10.2014, Side 56

Fréttablaðið - 02.10.2014, Side 56
 Við erum að velta því fyrir okkur hvað leikrit sé og hvort dramatískur texti þurfi endilega að vera þunga- miðja þess. MENNING 2. október 2014 FIMMTUDAGUR „Hátíðin fer fram á laugardag og sunnudag í Tjarnarbíói í Reykjavík og samtímis í fjórum öðrum borg- um. Þetta er samstarf leikhúslista- manna sem stýrt er frá London og er vonandi upphafið að einhverju skemmtilegu,“ segir Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, stjórnandi All Change Festival í Reykjavík. Hinar borgirnar þar sem hátíðin fer fram eru London, Augsburg, New York og New Orleans. Hallfríður segir þá sem að hátíð- inni koma vinna með það að leið- arljósi að vekja athygli á perform- ansleikhúsi. „Við erum að velta því fyrir okkur hvað leikrit sé og hvort dramatískur texti þurfi endilega að vera þungamiðja þess,“ segir Hallfríður. „Þetta þema kemur fram í ólíkum birtingarmyndum í þessum fimm borgum en alls staðar er unnið hljóðverk út frá viðkomandi borg. Hljóðverkið á All Change Festival í Reykjavík fjallar um Hallgrímskirkju og er eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdótt- ur. Fólk getur hlustað á það í sér- stökum turni sem er í Tjarnarbíói en það verður líka aðgengilegt á heimasíðu sem verður auglýst síðar.“ All Change Festival er hluti af bresku hátíðinni Fun Palaces og samstarfsmenn á alþjóðavísu eru listamennirnir eða listhóparnir Firehouse Creative Productions í London, Bluespots Productions í Augsburg, NEW NOISE í New Orleans og Lucy Jackson og Lisa Szolovits í New York. Í Reykja- vík verður fjölbreytt dagskrá þar sem meðal annars verða sýnd leik- verkin Kameljón, Haraldurinn og Róðarí, auk þess sem sýnt verð- ur úr verki í vinnslu, sýningunni Strengjum sem verður frumsýnd í lok október. Dagskránni lýkur svo með pallborðsumræðum á sunnu- dagskvöld. „Þær munu fjalla um þessa spurningu: hvað leikrit sé og þar mun Sigríður Lára Sigur- jónsdóttir, sem er að ljúka doktors- verkefni í bókmenntafræði með áherslu á leikhús, fjalla um mun- inn á dramatísku og póstdrama- tísku leikhúsi. Síðan munu nokkrir listamenn, þau Álfrún Örnólfsdótt- ir, Friðgeir Einarsson og Hrund Ólafsdóttir, fjalla um eigin leik- hússköpun, Símon Birgisson ræðir spurninguna hvað er leikrit? og að endingu mun Una Þorleifsdóttir segja frá kennslu og aðferðum sem beitt er á sviðshöfundabraut LHÍ. Þetta ættu að verða rosalega fróð- legar umræður,“ segir Hallfríður. „Og ég hvet alla sem hafa áhuga á íslensku leikhúsi til að mæta og taka þátt í þeim.“ Upplýsingar um dagskrána má meðal annars nálgast á Facebook- síðu hátíðarinnar, allchangefest- ivalreykjavik, og á heimasíðum Tjarnarbíós og Bókmenntaborg- arinnar. fridrikab@frettabladid.is Hvað er leikrit? Fjölþjóðlega leiklistarhátíðin All Change Festival verður haldin um helgina. Hátíðin fer fram samtímis í fi mm borgum en miðstöð hennar í Reykjavík verður í Tjarnarbíói og stjórnandi hátíðarinnar hér er Hallfríður Þóra Tryggvadóttir. HALLFRÍÐUR ÞÓRA TRYGGVADÓTTIR „Þetta er samstarf leikhúslistamanna sem stýrt er frá London og er vonandi upphafið að einhverju skemmtilegu.“ MYND: ALEX BERGMANN PIPA PP PPPA R \\ TBW A TBW A TBW A TBW A SÍA SÍA SÍA SÍA 132 74 3 132 7 32 74 3 Rauði þráðurinn, í bókstaflegri merkingu, í þessari sýningu er þráhyggja og sýningin er öll rauð,“ segir Rakel McMahon um sýninguna Red Direction sem hún opnar í Týsgalleríi í dag klukkan 17. „Ég hef mikið verið að sanka að mér leiðbeining- um af ýmsum toga síðustu árin; flugvélaleiðbein- ingum frá ýmsum flugfélögum, klassískum IKEA- leiðbeiningum, sem hafa reynst mér erfiðar, og fleiru. Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum, þann- ig að mín leið er að rýna í þessar skýringarmyndir sem í þeim eru, skoða listgildi þeirra og setja þær í nýtt samhengi.“ Titill sýningarinnar er Red Direction og auk teikninganna verður flutt tónverk eftir eiginmann Rakelar, Einar Tönsberg. „Hljóðverkið gefur tóninn fyrir sýninguna,“ segir Rakel. „Það er með texta og tvíræðni titils sýningarinn- ar er áberandi í honum.“ Rakel hefur unnið mikið með kynhlutverk og staðalímyndir í verkum sínum og segir að það þema sé undirliggjandi í þessari sýningu líka, þótt það sé ekki útgangspunkturinn. - fsb Þráhyggja fyrir leiðbeiningum Rakel McMahon opnar sýninguna Red Direction í Týsgalleríi í dag. RAKEL MCMAHON „Kveikjan að sýning- unni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbein- ingum.“ FR ÉT TA BL AÐ IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.