Fréttablaðið - 02.10.2014, Side 56
Við erum að velta
því fyrir okkur hvað
leikrit sé og hvort
dramatískur texti þurfi
endilega að vera þunga-
miðja þess.
MENNING
2. október 2014 FIMMTUDAGUR
„Hátíðin fer fram á laugardag og
sunnudag í Tjarnarbíói í Reykjavík
og samtímis í fjórum öðrum borg-
um. Þetta er samstarf leikhúslista-
manna sem stýrt er frá London og
er vonandi upphafið að einhverju
skemmtilegu,“ segir Hallfríður
Þóra Tryggvadóttir, stjórnandi
All Change Festival í Reykjavík.
Hinar borgirnar þar sem hátíðin
fer fram eru London, Augsburg,
New York og New Orleans.
Hallfríður segir þá sem að hátíð-
inni koma vinna með það að leið-
arljósi að vekja athygli á perform-
ansleikhúsi. „Við erum að velta því
fyrir okkur hvað leikrit sé og hvort
dramatískur texti þurfi endilega
að vera þungamiðja þess,“ segir
Hallfríður. „Þetta þema kemur
fram í ólíkum birtingarmyndum
í þessum fimm borgum en alls
staðar er unnið hljóðverk út frá
viðkomandi borg. Hljóðverkið á
All Change Festival í Reykjavík
fjallar um Hallgrímskirkju og er
eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdótt-
ur. Fólk getur hlustað á það í sér-
stökum turni sem er í Tjarnarbíói
en það verður líka aðgengilegt
á heimasíðu sem verður auglýst
síðar.“
All Change Festival er hluti af
bresku hátíðinni Fun Palaces og
samstarfsmenn á alþjóðavísu eru
listamennirnir eða listhóparnir
Firehouse Creative Productions
í London, Bluespots Productions
í Augsburg, NEW NOISE í New
Orleans og Lucy Jackson og Lisa
Szolovits í New York. Í Reykja-
vík verður fjölbreytt dagskrá þar
sem meðal annars verða sýnd leik-
verkin Kameljón, Haraldurinn og
Róðarí, auk þess sem sýnt verð-
ur úr verki í vinnslu, sýningunni
Strengjum sem verður frumsýnd í
lok október. Dagskránni lýkur svo
með pallborðsumræðum á sunnu-
dagskvöld. „Þær munu fjalla um
þessa spurningu: hvað leikrit sé
og þar mun Sigríður Lára Sigur-
jónsdóttir, sem er að ljúka doktors-
verkefni í bókmenntafræði með
áherslu á leikhús, fjalla um mun-
inn á dramatísku og póstdrama-
tísku leikhúsi. Síðan munu nokkrir
listamenn, þau Álfrún Örnólfsdótt-
ir, Friðgeir Einarsson og Hrund
Ólafsdóttir, fjalla um eigin leik-
hússköpun, Símon Birgisson ræðir
spurninguna hvað er leikrit? og að
endingu mun Una Þorleifsdóttir
segja frá kennslu og aðferðum sem
beitt er á sviðshöfundabraut LHÍ.
Þetta ættu að verða rosalega fróð-
legar umræður,“ segir Hallfríður.
„Og ég hvet alla sem hafa áhuga
á íslensku leikhúsi til að mæta og
taka þátt í þeim.“
Upplýsingar um dagskrána má
meðal annars nálgast á Facebook-
síðu hátíðarinnar, allchangefest-
ivalreykjavik, og á heimasíðum
Tjarnarbíós og Bókmenntaborg-
arinnar.
fridrikab@frettabladid.is
Hvað er leikrit?
Fjölþjóðlega leiklistarhátíðin All Change Festival verður haldin um helgina.
Hátíðin fer fram samtímis í fi mm borgum en miðstöð hennar í Reykjavík verður
í Tjarnarbíói og stjórnandi hátíðarinnar hér er Hallfríður Þóra Tryggvadóttir.
HALLFRÍÐUR ÞÓRA TRYGGVADÓTTIR „Þetta er samstarf leikhúslistamanna sem stýrt er frá London og er vonandi upphafið
að einhverju skemmtilegu.“ MYND: ALEX BERGMANN
PIPA
PP
PPPA
R
\\
TBW
A
TBW
A
TBW
A
TBW
A
SÍA
SÍA
SÍA
SÍA
132
74
3
132
7
32
74
3
Rauði þráðurinn, í bókstaflegri merkingu, í þessari
sýningu er þráhyggja og sýningin er öll rauð,“ segir
Rakel McMahon um sýninguna Red Direction sem
hún opnar í Týsgalleríi í dag klukkan 17.
„Ég hef mikið verið að sanka að mér leiðbeining-
um af ýmsum toga síðustu árin; flugvélaleiðbein-
ingum frá ýmsum flugfélögum, klassískum IKEA-
leiðbeiningum, sem hafa reynst mér erfiðar, og
fleiru. Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög
erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum, þann-
ig að mín leið er að rýna í þessar skýringarmyndir
sem í þeim eru, skoða listgildi þeirra og setja þær
í nýtt samhengi.“
Titill sýningarinnar er Red Direction og auk
teikninganna verður flutt tónverk eftir eiginmann
Rakelar, Einar Tönsberg. „Hljóðverkið gefur tóninn
fyrir sýninguna,“ segir Rakel.
„Það er með texta og tvíræðni titils sýningarinn-
ar er áberandi í honum.“
Rakel hefur unnið mikið með kynhlutverk og
staðalímyndir í verkum sínum og segir að það þema
sé undirliggjandi í þessari sýningu líka, þótt það sé
ekki útgangspunkturinn. - fsb
Þráhyggja fyrir leiðbeiningum
Rakel McMahon opnar sýninguna Red Direction í Týsgalleríi í dag.
RAKEL
MCMAHON
„Kveikjan
að sýning-
unni er að
ég hef átt
mjög erfitt
með að fara
eftir svona
leiðbein-
ingum.“
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N