Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 62
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 50 Kvikmyndin Dracula Untold verð- ur frumsýnd hér á landi á morgun og þótt nafnið gefi annað til kynna er hún ekki byggð á sögu Brams Stoker frá árinu 1897 um Drakúla greifa. Í myndinni er hins vegar búin til saga um uppruna greif- ans og fylgst með transylvaníska prinsinum Vlad III sem notar myrka krafta til að vernda fjöl- skyldu sína og konungsríkið. Soldáninn Mehmed II ógnar friði í Transylvaníu og heimtar að fá son Vlads, Ingeras, í her sinn. Vlad ferðast um langan veg til að bjarga syni sínum en á ferða- lagi sínu hittir hann seiðmanninn Kalígúla og semur við hann þann- ig að prinsinn öðlast styrk hundr- að manna, hraða hrapstjörnu og næga krafta til að fella andstæð- inga sína. Hins vegar fær hann líka óslökkvandi þorsta í manns- blóð sem verður til þess að hann breytist í eina frægustu vampíru heims, Drakúla greifa. Hasarmyndahetjan Luke Evans fer með hlutverk Vlads en íslenski leikarinn Þorvaldur Davíð Krist- jánsson fer einnig með hlutverk í myndinni. Hann leikur karakter- inn Bright Eyes, austur-evrópskan mann sem var hnepptur í þrældóm á yngri árum en er nú harðskeytt- ur morðingi. Myndin var tekin upp í fyrra og dvaldi Þorvaldur Davíð við tökur í Belfast frá ágúst og fram í nóvem- ber. Með önnur hlutverk í myndinni fara til dæmis Dominic Cooper, Sarah Gadon og Art Parkinson en leikstjóri er Gary Shore. Þetta er fyrsta mynd Garys í fullri lengd liljakatrin@frettabladid.is BÍÓFRÉTTIR 7,5/10 24 ára Leik- og söngkonan Samantha Barks Hún er hvað þekktust fyrir að leika Éponine í kvikmyndinni Vesalingarnir. AFMÆLISBARN DAGSINS Þorvaldur Davíð leikur harðskeyttan morðingja Kvikmyndin Dracula Untold verður frumsýnd á Íslandi á morgun. Íslenski leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson fer með eitt af hlutverkunum í myndinni en í aðalhlutverki er hasarmyndahetjan Luke Evans. VÍGALEGUR Luke Evans leikur Vlad III. EKKI ABBAST UPP Á ÞORVALD Hér sést Þorvaldur Davíð lengst til hægri. Fyrirtækið Threshold Entertain- ment hefur tekið höndum saman við Tetris Company og er ætl- unin að búa til stórmynd byggða á tölvuleiknum Tetris sem var gríðarlega vinsæll á níunda ára- tug síðustu aldar. Ekki er ljóst hver leikstýr- ir myndinni eða hverjir leika í henni en söguþráðurinn er klár. „Vörumerki eru nýju stjörn- urnar í Hollywood. Við erum með söguþráð á bak við Tetris sem hleypir ímyndunaraflinu á flug,“ segir Larry Kasanoff, forstjóri Threshold, í samtali við Wall Street Journal. „Þetta er stór, epísk vísinda- skáldsögumynd. Þetta er ekki mynd sem byggð er á handriti með fullt af texta,“ bætir hann við. Larry er hvað þekktastur fyrir að færa tölvuleikinn Mortal Kom- bat yfir á hvíta tjaldið en fyrsta myndin, sem kom út árið 1995, skilaði sjötíu milljónum dollara í kassann, átta og hálfum millj- arði króna, og framhaldsmynd- in, Mortal Kombat: Annihilation, árið 1997 skilaði 35 milljónum dollara, rúmum fjórum milljörð- um króna. - lkg Tetris-mynd í bígerð Kvikmyndin Afinn er vinsælasta myndin á Íslandi í dag samkvæmt nýjum lista yfir aðsóknarmestu myndirnar. Sigurður Sigurjónsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Þor- steinn Bachmann leika aðalhlut- verkin í myndinni sem er leikstýrt af Bjarna Hauki Þórssyni og byggð á samnefndu leikriti sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Vinsælust á Íslandi Ný stikla úr kvikmyndinni Borgríki II – Blóð hraustra manna verður frumsýnd á Visir.is í dag. Myndin er sjálfstætt framhald myndarinnar Borgríkis sem kom út árið 2011 en í helstu hlutverkum eru Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðs- son, Zlatko Krickic, Sigurður Sigurjóns- son og Hilmir Snær Guðnason. Myndin verður frum- sýnd í þessum mánuði og er leikstjóri Olaf de Fleur. Ný stikla frumsýnd Dracula Untold var tekin eingöngu í Belfast á Norður-Ír- landi en Northern Ireland Screen styrkti myndina um 1,6 milljónir punda, rúmlega þrjú hundruð milljónir króna. Þrátt fyrir það var myndin ekki frumsýnd í Belfast heldur ákvað Universal Pictures að frumsýna hana í London og Dublin. Myndin Good Vibrations frá árinu 2012 var tekin í Belfast og var frumsýnd í borginni en myndin er byggð á lífi pönkgoð- sagnarinnar Terri Hooley. „Það er fáránlegt að myndin sé ekki frumsýnd í Belfast,“ segir Terri í samtali við Belfast Telegraph. „Þetta minnir mig á þegar Dublin og London höfðu engan áhuga á okkur fyrir þrjátíu árum. Við virðumst vera annars flokks borg- arar,“ bætir hann við. Margir af þeim sem unnu við myndina eru hins vegar búnir að taka sig til og ætla að halda sérstaka sýningu á myndinni í Belfast á föstudaginn. Uppselt er á sýninguna. ➜ Ósáttir Belfastbúar HEIMSFRUMSÝNING FRUMSÝNING 7,4/10 7,2/10 Annabelle Hryllingsmynd Aðalhlutverk: Ward Horton, Anna- belle Wallis, Alfre Woodard, Tony Amendola og Michelle Romano. Smáheimar Teiknimynd Leikstjórn: Hélène Giraud og Thomas Szabo. ELDBORG FÖSTUDAGINN 31. OKTÓBER MIÐASALA Á MIÐI.IS OG HARPA.IS OG Í MIÐASÖLU HÖRPU Í SÍMA 528-5050 EKKI MISSA AF ÞESSUM EINSTAKA VIÐBURÐI SIGGA BEINTEINS SIGRÍÐUR THORLACIUS RAGNHEIÐUR GRÖNDAL FRIÐRIK ÓMAR MAGNI ÁSGEIRSSON EINAR SCHEVING TROMMUR OG SL AGVERK EIÐUR ARNARSSON BASSI SIGURÐUR FLOSASON SA XÓFÓNN OG SL AGVERK KJARTAN VALDEMARSSON HLJÓMBORÐ ÞORVALDUR BJARNI ÞORVALDSSON GÍ TAR UNNUR BIRNA BJÖRNSDÓTTIR HLJÓMBORÐ OG SÖNGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.