Fréttablaðið - 02.10.2014, Síða 70
2. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 58
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
ÞAÐ hlaut að koma að því. Byrjað er að
takast á um læk á Facebook fyrir dóm-
stólum.
ÓLAFUR Garðarsson, verjandi Gísla
Freys Valdórssonar í lekamálinu, sagði í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að Helgi
Magnús Gunnarsson, saksóknari máls-
ins, hefði tjáð afstöðu sína til málsins með
því að læka Facebook-færslu um málið.
Saksóknari væri vanhæfur og ætti því að
víkja sæti. Þetta er ekki grín.
ÓLAFUR bætti við að fólk tjáði sig
með því að læka. Þar með væri það
sammála síðasta ræðumanni.
Dómari í málinu spurði hvort
þetta þýddi að sækjandi mætti
ekki vera á Facebook. Ólafur
sagðist hafa fengið svar frá
Facebook hvað læk þýddi og á
þeim forsendum ætti Helgi Magnús að
víkja. Þetta gerðist í alvöru.
UM LEIÐ og ég bendi höfundum
Áramótaskaupsins á þessa umræðu í
héraðsdómi þá vil ég benda á veik-
leika í málflutningi Ólafs. Hann
túlkar læk á aðeins einn hátt og afskrifar
þar með stóran hluta af þeim lækum sem
fólk setur á óteljandi ummæli og myndir á
hverjum einasta degi. Hvað með t.d. djók-
lækið? passive-aggressive-lækið? Og vin-
sælasta lækið: meðvirknis-lækið.
FYRST það er byrjað túlka að læk fyrir
dómstólum vil ég setja fyrirvara á læk
sem koma frá mér í framtíðinni:
EF ÉG þekki þig er líklegt að ég læki eitt-
hvað frá þér þrátt fyrir að mér líki í raun
ekkert við það. Þá er ég í raun að læka
þig og/eða vináttu okkar. Myndir úr sum-
arfríinu þínu læka ég til að opna á mögu-
leika á að geta sett inn sams konar mynd-
ir sjálfur. Þó ég læki mynd af matnum
þínum er ekki öruggt að mér finnist hann
girnilegur og það er ekkert víst að mér
líki eitthvað sérstaklega vel við börnin
þín þótt ég læki myndirnar af þeim.
OG EF ég læka ummæli sem þú skilur
eftir undir stöðuuppfærslu frá mér er lík-
legra að ég sé að læka viðleitni þína til að
staðfesta tilveru mína á internetinu, frek-
ar en að læka það sem þú sagðir. Sorrí.
Fyrirvari á lækin
Amber Rose er sögð hafa komið
að fyrrverandi eiginmanni
sínum, Wiz Khalifa, í bólinu með
tvíburasystrum. Náinn vinur
Amber, plötusnúðurinn Peter
Rosenberg, segir að hún hafi
komið að Wiz í rúminu með fata-
hönnuðunum Jas og Ness Rose á
heimili fjölskyldunnar og hafi í
kjölfarið slitið sambandi þeirra.
Hann sagði einnig að parið hefði
verið búið að vera óhamingju-
samt í einhvern tíma og vand-
ræði hefðu verið í hjónabandinu.
Amber hefur sjálf verið sökuð
um að hafa haldið framhjá Wiz en
vinurinn segir það af og frá.
Í bólinu með
tvíburasystrum
Ofurfyrirsætan Elle Mcpherson
segist ekki óttast að eldast. Hún
er ánægð með að vera fimm-
tug og segir að fegurðin komi að
innan.
„Mig langar ekki að vera ung,
mig langar að vera falleg. Eins
falleg og ég get verið, auðvitað
geri ég það en það kemur ekki út
frá því að vera ung. Þegar ég horfi
á myndir af mér frá því ég var
ung þá sé ég að bros mitt var ekki
ekta af því það var skemmt því ég
var með svo lítið sjálfstraust. Ég
þekki ekki einu sinni sjálfa mig á
sumum myndum af mér frá því ég
var yngri,“ segir Elle um aldur-
inn í viðtali við tímaritið Red og
heldur áfram: „Þegar ég horfi á
myndir af mér í dag þá þá hugsa
ég já, þetta er sú sem ég er. Ég er
ekki tvítug. Ég er fimmtug. Mér
líður vel. Ég elska börnin mín
og ég elska eiginmann minn. Ég
elska líf mitt. Það er það sem ég
einbeiti mér að.“
Ánægð með
aldurinn
ELLE MCPHERSON Fyrirsætan segist
miklu sáttari með sjálfa sig í dag heldur
en þegar hún var tvítug.
TÍMI STAÐUR
Allar upplýsingar á riff.is
DAGSKRÁ RIFF
FIMMTUDAGURINN 2.10.
Sýningarstaðir:
HÁSKÓLABÍÓ, BÍÓ PARADÍS, TJARNARBÍÓ og NORRÆNA HÚSIÐ
13:30 Bíó Paradís 1 Kennslustundin
13:30 Bíó Paradís 2 Í skothríð skal skjóta til baka!
14:00 Bíó Paradís 3 Leyndardómar vörðunnar
15:30 Bíó Paradís 1 Timbúktú
15:30 Bíó Paradís 2 Kebab og stjörnuspá
16:00 Bíó Paradís 3 Ballettstrákar
17:30 Bíó Paradís 1 Ludo
17:30 Bíó Paradís 2 Touma húsið Q&A
18:00 Bíó Paradís 3 Heiðarlegur lygari Q&A
18:00 Háskólabíó 2 Þau hafa flúið Q&A
18:00 Háskólabíó 3 Við götuna Q&A
18:00 Tjarnarbíó Gullna eggið B
19:30 Bíó Paradís 1 Dulið stríð Q&A
19:30 Bíó Paradís 2 Áður en ég hverf
20:00 Norræna húsið Grænlenskar og færeyskar
20:00 Bíó Paradís 3 Fuglaþingið Q&A
20:00 Tjarnarbíó Íslenskar stuttmyndir 3
20:15 Háskólabíó 2 Maísey Q&A
20:20 Háskólabíó 3 Hættulegur leikur Q&A
20:30 Húrra Þær þeyta
21:45 Bíó Paradís 2 Ástarhreiðrið Q&A
22:00 Bíó Paradís 1 Menningarvíman
22:00 Bíó Paradís 3 Litla fluga, fljúgðu hátt
22:00 Tjarnarbíó Íslenskar stuttmyndir 2
22:30 Háskólabíó 2 Lifi frelsið
22:30 Háskólabíó 3 Monsún
MYND
JALANAN
SÉRVIÐBURÐIR & PALLBORÐSUMRÆÐUR
13:00 Norræna húsið 14 dagbækur úr stríðinu mikla
15:00 Norræna húsið 14 dagbækur úr stríðinu mikla
17:00 Norræna húsið Umræður:
20:00 Molinn Kópavogur Einnar mínútu myndanámskeið
í norðri
stuttmyndir
1. og 2. hluti
3. og 4 hluti
Að markaðssetja stríð. Ókeypis!
(16-25 ára) Ókeypis!
Við götuna segir ótrúlega sögu Boni, Ho og Titi, þriggja hæfileikaríkra
og heillandi götulistamanna í Jakarta á fimm erfiðum árum bæði í
eigin lífi sem og heimalandsins Indónesíu.
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
FRÁBÆR TÓNLIST, MÖGNUÐ SAGA
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
FRÁBÆR NÝ ÍSLENSK GAMANMYND
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
EIRÍKUR JÓNSSONHJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
THE EQUALIZER KL. 5 - 8 - 10.45
THE EQUALIZER LÚXUS KL. 8 - 10.45
THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 - 10.30
THE NOVEMBER MAN KL. 10.15
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL2D KL. 3.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 3.30 - 5.45 - 8
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8 - 10.20
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D KL. 3.30
THE EQUALIZER KL. 6 - 10.15
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8
VONARSTRÆTI KL. 9
THE EQUALIZER 8, 10:40
WALK AMONG TOMBSTONES 5:45, 8, 10:20
MAZE RUNNER 5:40, 8, 10:20
PÓSTURINN PÁLL 2D 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HEIMILDAR-
MYNDIR
★★★★ ★
Titill: Sounds Queer
LEIKSTJÓRI: Dan Bahl
Sounds Queer er heimildarmynd
um þrjá kvenkyns plötusnúða í
höfuðborg teknósins, Berlín. Í
myndinni er skyggnst inn í líf og
störf þessara kvenna, Tama Sumo,
Resom og Ena Lind, og við fáum
innsýn í umhverfi þeirra þar sem
karlar eru oftast yfirgnæfandi. Í
þessu samhengi er þó rétt að minn-
ast á óformlega könnun sem Frétta-
blaðið gerði í ágúst þar sem fram
kom að um 45% plötusnúða sem
tróðu upp í Reykjavík í mánuðinum
voru kvenkyns.
Myndin verður sýnd frítt í kvöld
kl. 20.30 á skemmtistaðnum Húrra
og að sýningu lokinni verður hald-
ið partí með þremur vinsælustu
kvenkyns plötusnúðum Íslands,
þeim DJ Yamaho, DJ Sunnu Ben og
DJ Möggu Maack. Þetta er frábær
mynd fyrir alla tónlistaráhuga-
menn, sérstaklega raftónlistar-
nörda en aðalpersónurnar segja frá
því hvernig raftónlistin kom inn í
líf þeirra og breytti því.
Myndin dregur upp afar áhuga-
verða mynd af Berlín og lífi þess-
ara þriggja kvenna og vekur
skemmtilegar spurningar um ást-
ina á tónlist, vinnustétt plötusnúða
og femínisma. - þij
Plötusnældur í Berlín
SOUNDS QUEER Ein plötusnældanna sem myndin fjallar um.
Raftónlistargoðsögnin Richard D.
James, betur þekktur sem Aphex
Twin, var spurður út í skoðan-
ir sínar á stjórnmálum í nýlegu
viðtali við Q Magazine. „Úff,
hvar á maður eiginlega að byrja?
Allur heimurinn er gjörsamlega
„fokkt“, í stórum dráttum.“
Aphex, sem er reyndar þekktur
fyrir mikinn grallaraskap, sagði
síðan að hann væri handviss um
að árásirnar á Tvíburaturnana
hefðu verið skipulagðar af banda-
rískum stjórnvöldum og að hann
tryði á Illuminati-samsærið. „Dót
á netinu um Illuminati, hina nýju
heimsmynd og geimverur er ein-
faldlega þúsund sinnum betra en
hvaða vísindaskáldskapur sem er,
jafnvel þótt það sé ekkert satt í
því,“ sagði hann.
„Ég trúi þessu öllu í stórum
dráttum. Þú mátt ekki bara trúa
á hluti sem hægt er að sanna. Það
er drepleiðinlegt.“ - þij
Elskar sam-
særiskenningar