Fréttablaðið - 05.02.2015, Page 62

Fréttablaðið - 05.02.2015, Page 62
5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50 Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5. Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is LAGALISTINN TÓNLISTINN 29.01.2015 ➜ 04.02.2015 1 Mark Ronson/Bruno Mars Uptown Funk 2 Sam Smith Like I Can 3 Valdimar Ryðgaður dans 4 Taylor Swift Blank Space 5 James Newton & Jennifer The Hanging Tree 6 Amabadama Gaia 7 Hozier Take Me To Church 8 Hozier Sedated 9 Maroon 5 Sugar 10 Meghan Trainor Lips Are Movin 1 Björk Vulnicura 2 Ýmsir Pottþétt 63 3 Ýmsir Fyrir börnin 4 Skálmöld Með vættum 5 AmabAdamA Heyrðu mig nú 6 Valdimar Batnar útsýnið 7 Mammút Komdu til mín svarta systir 8 Helgi Björns Eru ekki allir sexý 9 Spilverk Þjóðanna Allt safnið 10 Dimma Vélráð „Þetta verður líklega stærsta ár Sólstafa hingað til. Við erum bók- aðir frá og með deginum í dag fram undir lok apríl,“ segir Aðalbjörn Tryggvason, söngvari hljómsveit- arinnar Sólstafa. Sveitin er á tónleikaferðalagi um Evrópu og er nú stödd í Hamborg í Þýskalandi. „Þetta er um það bil mánaðartúr sem við erum á núna. Við tókum viku í Englandi, viku í Frakklandi og Þýskalandi. Við förum næst til Skandinavíu, þá til Rússlands og svo förum við til Grikklands og Búlgaríu líka,“ segir Aðalbjörn um hið mikla ferðalag sem sveitin er á. Sólstafir áttu einnig annasamt ár í fyrra. „Við fórum í tvö tónleika- ferðalög til Bandaríkjanna á síð- asta ári og vorum þar um það bil sex vikur. Við spiluðum á fimmtán tónleikahátíðum síðasta sumar og tókum líka mánaðartúr um Evrópu.“ Sama er upp á teningnum í ár og ætla Sólstafir að koma fram á ýmsum tónlistarhátíðum í sumar. „Ég má ekki segja á hvaða hátíðum við spilum að svo stöddu.“ Eftir sumarið gerir Aðalbjörn ráð fyrir því að sveitin hoppi upp í rútu og haldi af stað í tónleikaferð á nýjan leik. „Ég geri ráð fyrir því að strax 1. september hoppum við upp í rútu og tökum annan Evróputúr. Við tökum líka mögulega Suður-Amer- íku- og Asíutúr. Við erum mikið að horfa í þessa áttina, til Suður-Amer- íku og Asíu,“ bætir Aðalbjörn við. Sólstafir hafa verið iðnir við tón- leikaferðalög í um tíu ár, tekur þetta tónleikahald ekki sinn toll? „Þetta er skemmtilegt og er eitthvað sem mann langar að gera. Þetta er auð- vitað val. Við höfum verið „túring- band“ í tíu ár, fórum fyrst til Dan- merkur árið 2005. Við getum samt orðið geðveikir hver á öðrum, bókin kemur líklega út eftir nokkur ár og í nokkrum mismunandi útgáfum,“ segir Aðalbjörn léttur í lundu. Hann Stærsta ár Sólstafa Sveitin er farin í tónleikaferðalag um Evrópu en trommuleikari sveitarinnar er ekki með. Nýjasta platan fékk mikið lof gagnrýnenda og annasamt ár er í vændum. segir mikilvægt að heimsækja sömu staðina reglulega til þess að minna á sig. Það hefur valdið talsverðu fjaðra- foki á samfélagsmiðlum að trommu- leikari sveitarinnar, Guðmundur Óli Pálmason, er ekki með sveitinni á tónleikaferðalagi þessa stundina. Hvorki Guðmundur né Aðalbjörn vildu tjá sig um málið að svo stöddu. Trommuleikarinn Karl Petur Smith leysir Guðmund af á bak við settið þessa dagana. Nýjasta plata Sólstafa, Ótta, fékk frábæra dóma og var meðal annars valin fimmta besta plata ársins af Metal Hammer í Bretlandi og fleiri þekktum tímaritum. „Það er ágætis klapp á bakið að komast á lista og fá góða dóma. Það er mikil vinna að búa til tónlist og því gott að fá klapp á bakið.“ Aðalbjörn segir sveitina þó ekki ætla að semja tónlist fyrir nýja plötu fyrr en á næsta ári. gunnarleo@frettabladid.is Þetta er skemmtilegt og er eitthvað sem mann langar að gera. Þetta er auðvitað val. Við höfum verið „túringband“ í tíu ár, fórum fyrst til Danmerkur árið 2005. Við getum samt orðið geðveikir hver á öðrum, bókin kemur líklega út eftir nokkur ár og í nokkrum mismunandi útgáfum. Aðalbjörn Tryggvason, söngvari hljómsveitarinnar Sólstafa ANNASAMT ÁR Sólstafir eru komnir í tónleikaferð og gera ráð fyrir miklum ferðalögum um heim allan á árinu. „Okkur langaði til þess að hafa einhvern spennandi viðburð sem fengi hárin til að rísa og væri pass- lega ógnvekjandi. Við vildum líka sýna verk sem væri áhrifavaldur í kvikmyndasögunni,“ segir Hall- fríður Þóra Tryggvadóttir, verk- efnastjóri hjá RIFF, um sundbíó sem verður í Sundhöll Reykja víkur næstkomandi laugardagskvöld. Í sundbíóinu verður kvik myndin Psycho eftir Alfred Hitchcock sýnd í grynnri enda laugarinnar. „Okkur fannst eitthvað svo fynd- ið að pæla í því hvernig það er að vera nýkomin úr sturtu, vera í vatni og horfa á eina frægustu kvikmyndasenu sögunnar þar sem sturtan í öllu sínu veldi er tekin fyrir,“ segir hún. Sviðsmyndahönnuðurinn, Hall- veig Kristín Eiríksdóttir, hann- aði umgjörð í kringum sýninguna og notaðist við tákn úr myndinni, persónur og sturtusenuna frægu. „Það verður allavega ekki bara spennandi að fara ofan í laugina og horfa á myndina, það verður líka spennandi að fara í búnings- klefann og gera sig til,“ segir Hall- fríður og bætir dularfull við: „Það verður svo bara að koma í ljós hvað verður í sturtunum.“ Sundbíóið er hluti af dagskrá Sundlaugarnætur á Vetrarhátíð Reykjavíkur og hefst í Sundhöll- inni á laugardaginn klukkan átta, aðgangur er ókeypis og eru gestir hvattir til þess að mæta tímanlega og er aldurstakmark tólf ára. - gló Fá hárin til að rísa í grunna endanum Kvikmyndin Psycho verður sýnd í sundbíói Sund- hallar Reykjavíkur næstkomandi laugardagskvöld. SUNDHÖLLIN Myndin Psycho verður sýnd í Sundbíói á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Nicolas Wright og James A. Woods hafa verið ráðnir til að skrifa handritið að endurgerð myndar- innar Stargate. Þeir eru tiltölulega óþekktir en fengu verkefnið eftir að þeir endurskrifuðu með góðum árangri handritið að framhaldi Inde pendence Day. Roland Emmer- ich verður einmitt leikstjóri beggja myndanna, auk þess sem hann leik- stýrði báðum fyrri myndunum. Ekki er vitað um hvað endur- gerð Stargate mun fjalla en Kurt Russell, James Spader og Jaye Davidson léku aðalhlutverkin í fyrri myndinni sem kom út 1994. Stefnt hefur verið á að gera nokkrar Stargate-myndir. Búast má við að aðdáendur sjónvarps- þáttanna Stargate SG-1 og Star- gate Atlantis verði á meðal þeirra sem muni flykkjast á þær. Styttist í Stargate Tveir handritshöfundar hafa verið ráðnir til starfa. KURT RUSSELL Fyrri Stargate-myndin kom út fyrir rúmum tveimur áratugum. MYND/BJORN ARNASON TÍST MANNANAFNANEFND, FEMÍNISMI OG JESÚBARN. Þóra Tómasdóttir @thoratomas 40 mín. að elda, 4 mín. að verða södd. Mætti vera öfugt. Emmsjé Gauti @emmsjégauti Allir sem hafa drullað yfir femín- isma í tengslum við fréttir af mér og RVK-dætrum eru ekki mínir talsmenn. Sunna Ben @SunnaBen Ætli mannanafna- nefnd myndi leyfa mér að skýra framtíðarson minn Sauron? Það beygist eins og Aron. Steiney Skúladóttir @steiney_skula Býð mig fram til að ganga með næsta Jesúbarn #singlelife Bragi Valdimar Skúlason @BragiValdimar Kom aldrei til greina að Halla fengi forskeytið Fjalla-, frekar en Eyvindur? #fjallahalla LÍFIÐ 5. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR 0 4 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 A 5 -1 3 4 0 1 3 A 5 -1 2 0 4 1 3 A 5 -1 0 C 8 1 3 A 5 -0 F 8 C 2 8 0 X 4 0 0 9 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.