Fréttablaðið - 05.03.2015, Page 16

Fréttablaðið - 05.03.2015, Page 16
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16 GJ AL LA RH O RN IÐ „Við erum að tala um mál sem naut stuðnings tveggja aðalmanna af níu.“ Með þessum orðum lýsti Guðbjartur Hannesson í hnotskurn gagnrýni stjórn- arandstöðunnar á afgreiðslu allsherjar- og menntamálanefndar á frumvarpi um verslun með áfengi og tóbak. Nefndin afgreiddi málið til annarrar umræðu á föstudaginn. Þá bar svo við að aðeins sátu tveir aðalmenn fundinn, sjö voru varamenn. Hvaða máli skiptir það? kann einhver að spyrja. Jú, á yfirborðinu gagnrýnir stjórnarandstaðan meirihlutann fyrir að hafa kallað inn varamenn sem ekki höfðu unnið að málinu inni í nefndinni. Með því fengju nefndarmenn sem lagt hefðu mikla vinnu í málið ekki færi á því að vera með í nefndaráliti, en það fylgir málinu áfram í umræðunni. Undir niðri er gagnrýnin þó ekki síst sprottin af þeim rótum að óvíst var um það hvort meirihluti væri fyrir því í nefndinni að afgreiða málið til ann- arrar umræðu. Með því að kalla inn varamenn sem voru á annarri skoðun en aðalmennirnir komst málið hins vegar á rekspöl. Stjórnarandstæðingar hafa gagn- rýnt formann nefndarinnar, Unni Brá Konráðsdóttur, fyrir þessi vinnu- brögð. Þingsköp eða þýlyndi? Hvenær drepur maður mann og hvenær drep- ur maður ekki mann? spurði Jón Hreggviðs- son forðum. Þó þing- menn hafi ekki verið í svo tilvistarlegum spurningum hafa þeir verið að velta fyrir sér nokkru sem snertir grunninn í störfum Alþingis; hvenær má afgreiða mál úr nefnd? Þó það sé ekki sagt berum orðum þá er það viðtekin venja að sum mál séu svæfð í nefnd. Oft og tíðum koma fram umdeild mál sem fáum er akkur í að komi til atkvæðagreiðslu þar sem þurfi að taka endanlega afstöðu til þeirra. Slík mál eru oftar en ekki afgreidd til nefndar eftir fyrstu umræðu og síðan spyrst ekkert til þeirra. Umræðan síðustu daga hefur að ein- hverju leyti snúist um þetta. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði það berum orðum í þingpúlti á þriðjudag. „Háttvirtir þingmenn sem byrja umræðuna vita þetta ósköp vel og eru að setja á svið eitthvert mikið leikrit vegna þess að þeir þola ekki að málið komi til efnislegrar umræðu.“ Bjarni vísaði því á bug að nokkuð annarlegt hefði gerst, þingsköp hefðu verið virt í hvívetna. Undir það tók Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis. „Forseti vill vegna þeirra óska sem beindust að honum taka það fram að forseti gekk úr skugga um það að farið var í hvívetna að öllum lögum og reglum, bæði þing- sköpum og því sem snýr að starfsemi nefndanna.“ Stjórnarandstaðan ber ekki brigður á að farið hafi verið að þingsköpum. Málið snúist hins vegar um að þessum óvenjulegu aðferðum hafi verið beitt vegna þýlyndi við málið sjálft. Lög- legt en siðlaust, eins og Sigríður Ingibjörg Inga- dóttir orðaði það. „Ég harma niðurstöðu forseta á skoðun á þessari afgreiðslu, að þetta sé löglegt en siðlaust, vil ég leyfa mér að segja. Hér eru nefnd dæmi um að þingmenn víki úr nefndum til þess að meirihluti flokka þeirra fái ráðið. Hér er ekki um slíkt að ræða. Hér voru þing- menn í góðri trú þegar þeir áttuðu sig á því að nýta átti fjarveru þeirra til þess að smygla út málum.“ Efnislega umræðan Nú er ljóst að málið verður tekið til efnis- legrar umræðu í annarri umræðu. Það gæti reynst athyglisvert að fylgjast með því, þar sem ljóst er að það er ýmsum flokkum erfitt. Sjálfstæðisflokkur stendur nokkuð heill að baki frumvarpinu, en það er þingmaður hans, Vilhjálmur Árnason, sem leggur það fram. Framsóknarflokk- urinn er ekki einhuga í sinni afstöðu og nægir í því efni að vísa til þess að það voru þingmenn Framsóknarflokks- ins sem voru fjarverandi á umrædd- um nefndarfundi. Varamennirnir sem afgreiddu málið út úr nefnd komu úr sama flokki. Vinstri græn hafa í gegnum tíðina verið á móti áfengi í matvöruverslanir og engin breyting er á því. Samfylkingin er hins vegar klofnari í afstöðu sinni og bæði Guðbjartur og Sigríður Ingibjörg voru mjög gagnrýnin í sinni afstöðu. Píratar tala almennt fyrir auknu frelsi og það er eins í þessu máli. Björt framtíð á í hvað mestum vand- ræðum með málið. Flokkurinn vill hafa þá ímynd að vera frjálslyndur og nútíma- legur flokkur, en innan hans er mikil andstaða við umrætt frumvarp hjá nokkrum þingmönnum. Öðrum þykir sú afstaða lýsa gamaldags forræðishyggju. Allt þetta kemur í ljós við aðra umræðu málsins. kolbeinn@frettabladid.is Hvenær má taka mál úr nefnd? Þingmenn tókust á um það í vikunni hvernig rétt væri að standa að afgreiðslu mála úr nefnd. Tilefnið var afgreiðsla allsherjar- og mennta- málanefndar á frumvarpi um áfengi í matvöruverslanir. Nefndin afgreiddi málið með varamönnum. Stór orð voru látin falla í þingsal. ÞINGSJÁ Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is FERILL FRUMVARPA Mál lagt fram Tekið á dagskrá 1. umræða fer fram Kemst ekki á dagskrá Vísað til nefndar Fellt Þingnefnd leitar umsagna getur kallað fólk á fund Afgreiðir mál til 2. umræðu með nefndaráliti. Málið aldrei afgreitt úr nefnd 2. umræða fer fram Viðbótarupplýsingar og nefndarálit rædd. Venjan er að þarna fari mesta umræðan fram. Máli vísað til þriðju umræðu og mögulega þingnefndar á milli. Þingnefnd vinnur málið áfram. Samþykkt til þriðju umræðu. Málið aldrei afgreitt úr nefnd 3. umræða og atkvæðagreiðsla Samþykkt Lög send frá Alþingi Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata um málefni geð- sjúkra fanga Ég vil taka undir með öðrum þingmönnum, að það er mjög mikilvægt að hinn nýi hæstvirti innanríkisráðherra taki á þessum málum af festu. Og ef ég mætti biðja þingmenn- ina í hliðarherbergi að hætta að trufla ráðherrann svo hann geti hlustað á ræðu mína. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra um störf forseta vegna áfengisfrumvarps. Það er eiginlega gaman að því að hv. þm. Össur Skarphéðinsson skuli hafa komið hingað og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon líka sem sömdu um það sín í milli þegar þeir voru í erfiðleikum með eitt mál fyrir ekki löngu að þeir skyldu víkja hvor sínum ráðherranum úr hvorum flokknum fyrir sig til þess að greiða fyrir framgangi málsins. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna um störf forseta vegna áfengisfrumvarps. Það er gagnlegt að hæstvirtur fjármálaráð- herra skuli vera svona liðtækur í þessum efnum. Vandinn er sá að brennivín í búðirnar kemur blóðinu á hreyfingu í Sjálfstæð- isflokknum, þar slær hjartað, þá loksins vaknar flokkurinn til lífsins. Það er komið að hugsjón- inni sjálfri, að koma brennivín- inu út um allt og sem víðast. Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar um örnefnalög En samandregið þá byggist andstaða mín við frumvarpið á því að mér finnst hin nýja umgjörð, sem ég veit að leysir aðrar lagareglur af hólmi, einkennast um of af ráð- stjórnarlegum tilburðum. Það er fyrirkomulag sem mér hugnast almennt ekki og síst af öllu í menningarmálum. FRÉTTABLAÐ IÐ /PJETU R UNNUR BRÁ KONRÁÐSDÓTTIR Matarsóun hefur ekki verið skil- greind sérstaklega hér á landi í lögum eða reglugerðum. Þetta kemur fram í svari Sigrúnar Magn- úsdóttur, umhverfis- og auðlinda- ráðherra, við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar. Brynhildur spyr hvort umfang matarsóunar hafi verið mælt hér á landi en fær þær upplýsingar að ekki séu til áreiðanlegar tölur um umfangið. „Mig grunaði þetta. Ef það á að ráðast á vandann þá þarf að skil- greina hann og hvort matarsóun sé yfirhöfuð vandamál á Íslandi og þá hvar,“ segir Brynhildur í samtali við Fréttablaðið. Í svarinu kemur þó fram að sam- kvæmt mælingum Sorpu bs. sé líf- rænn niðurbrjótanlegur úrgangur um 45 prósent innihalds heimilis- úrgangs. Á árinu 2014 söfnuðust um 30 þúsund tonn af þessum úrgangi frá 84 þúsund heimilum með tæp- lega 209 þúsund íbúum á höfuðborg- arsvæðinu eða sem nemur 65 kíló- um á íbúa. Í ljósi reynslu annarra ríkja og rannsókna sem þar hafa farið fram segir ráðherra að gera verði ráð fyrir að matarsóun sé ekki minna vandamál á Íslandi en annars staðar. „Þetta er ekki einkamál, þetta er umhverfismál,“ segir Brynhildur. - fbj Umhverfisráðherra svaraði fyrirspurn um matarsóun. Lítið var um bein svör: Umfang matarsóunar ókannað MATARLEIFAR Mikill lífrænn niðurbrjótan- legur úrgangur fer til Sorpu frá íslenskum heim- ilum. BRYNHILDUR PÉTURSDÓTTIR 65 kíló af lífrænum niður- brjótanlegum úrgangi kemur frá hverjum íbúa á höfuðborgarsvæðinu til Sorpu. Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins um störf forseta vegna áfengisfrumvarps. Ef það er meirihluti fyrir þessu máli í þessu þingi meðal þingmanna fær málið framgang. Ef það er ekki meiri- hluti fyrir því stoppar það á næsta stigi. Eru þeir þingmenn sem bregðast svona harkalega við í þessu máli hugsanlega þeirrar skoðunar að eini mögu- leiki þeirra til að drepa þetta mál sé í nefnd en ekki í þingsal? 0 4 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 4 -5 6 C C 1 4 0 4 -5 5 9 0 1 4 0 4 -5 4 5 4 1 4 0 4 -5 3 1 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.