Fréttablaðið - 05.03.2015, Side 54
5. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42
MORGUNMATURINN
„Það er bara mikill heiður að við
vorum beðnar um þetta, einhverj-
ir vitleysingar úr Hafnarfirði og
Mosfellsdal,“ segir Valdís Þor-
kelsdóttir, trompet- og flygilhorn-
leikari, og hlær. Hún ásamt Sig-
rúnu Jónsdóttur, básúnuleikara
og Björk Níelsdóttur, trompet- og
flygilhornleikara, munu spila og
syngja bakraddir á tónleikaferða-
lagi bresku indie-hljómsveitar-
innar Florence and the Machine,
með söngkonuna Florence Welch
fremsta í flokki.
„Við fengum símtal frá tónlistar-
stjóranum hjá Florence, en hann
þekkir production manager hjá
Björk sem benti honum á okkur,“
segir hún um tilkomu verkefnisins.
Þær stöllur kynntust fyrst þegar
þær spiluðu saman á Volta-túr
Bjarkar Guðmundsdóttur. „Þetta
eru því eiginlega endurfund-
ir hjá okkur þremur, enda erum
við næstum eins og systur núna,“
segir Valdís hress.
Hún segist ekki hafa hald-
ið mikið upp á Florence, en eftir
að hafa hlustað á tónlistina fyrir
æfingar sé hún kolfallin fyrir
henni. „Það er rosalegur kraftur í
henni og hún er ótrúleg söngkona,
eiginlega bara legend,“ segir Val-
dís.
Á tónleikaferðalagi Bjarkar
voru þær aðallega að spila á málm-
blásturshljóðfæri, en nú bætist
meiri söngur við. „Við erum búnar
að vera að æfa í tíu daga, alveg upp
í tólf klukkutíma á dag. Þetta er
alveg svolítið heví stöff en jafn
skemmtilegt eins og þetta er erf-
itt. Okkur líður svolítið eins og við
séum í poppstjörnukarókíi,“ segir
Valdís og hlær.
Ný plata með sveitinni er
væntan leg í júní. „Þessi túr verð-
ur svolítið nýja stöffið í bland við
gamla, ég held að við séum að taka
fjögur ný lög núna til að byrja
með, svo bætist við með sumrinu.
Það er rosalega mikið brass á nýju
plötunni og þess vegna vorum við
fengnar inn í þetta verkefni,“ segir
hún. Fram undan eru stórar hátíð-
ir eins og Coachella í Los Angeles,
sem er ein sú allra vinsælasta hjá
stjörnunum. Einnig eru óstaðfest-
ar fréttir á sveimi um að hljóm-
sveitin muni koma fram á Glaston-
bury-hátíðinni. „Það er verið að
staðfesta fleiri hátíðir og áfanga-
staði núna, en ég má ekki segja
meira um það eins og er,“ segir
Valdís að lokum. adda@frettabladid.is
Spila með Florence
and the Machine
Þrjár íslenskar stelpur fengu einstakt tækifæri til að spila og syngja bakraddir
hjá bresku hljómsveitinni Florence and the Machine á tónleikaferðalagi hennar.
SPENNTAR
Þær Valdís
og Björk á
æfingu á
þriðjudag,
en Sigrún
var því
miður fjarri
góðu gamni.
„Stefnan er að breyta listasafninu
í einhvers konar abstrakt pop-up-
borg og halda þar gott götupartí,“
segir Ásgeir Guðmundsson, verk-
efnastjóri tónlistar hjá Kraumi og
einn skipuleggjenda.
Verkefnið er samstarf milli
Kraums tónlistarsjóðs, Auroru
hönnunarsjóðs og HönnunarMars.
„Götupartíið hefst klukkan níu
laugardaginn 14. mars og þar verða
kaffibarir og ísbarir og nokkrir
veitingastaðir ætla að bjóða upp á
street-food-útgáfu af matseðlinum
sínum. Og eins
og góðu götu-
partí i sæmir
verða að sjálf-
sögðu götulista-
menn á svæð-
i n u ,“ s e g i r
Ásgeir hress.
Meðal þeirra
sem koma fram
eru Snorri Helga-
son, Ylja og Retro Stefson.
Hópurinn 2,5x5 mun síðan
byggja hús yfir sviðið. „Þetta er
gert í samstarfi við nýtt verkefni
innan Auroru sem heitir Hæg
breytileg átt og snýr að byggða-
og íbúaþróun. Þessi skúlptúr á
sviðinu gefur þá þennan borgar-
fíling,“ segir hann. Allur ágóði af
veitingasölu kvöldsins rennur í
nýjan sjóð sem Kraum og Aurora
hafa stofnað. „Sá sjóður er ætl-
aður til þess að finna sameigin-
lega fleti á tónlist og hönnun, til
dæmis með hönnun á plötuum-
slögum og fleira,“ segir Ásgeir.
- asi
Breyta listasafninu í pop-up-borg
Í tilefni af HönnunarMars verður lögð gata í Hafnarhúsinu.
SKEMMTILEGT Stemn-
ingsmynd hönnuða pop-up-
borgarinnar.
➜ Fyrsta platan, Lungs, kom út árið 2009.
➜ Bandið var stofnað af Florence Welch og Isabellu Summers. Þær
kölluðu sig Florence Robot og Isabella Machine og þannig varð
nafnið Florence and the Machine til.
➜ Árið 2010 var platan Lungs valin besta plata ársins á Brit-
verðlaununum.
➜ Önnur plata þeirra, Ceremonials, kom út árið 2011.
➜ Hljómsveitin hefur átt lög í stórmyndum eins og The Great Gatsby, The
Twilight Saga: Eclipse og Snow White and The Huntsman.
➜ Söngkonan, Florence, hefur verið þekkt fyrir stórkostlega og töfrandi
sviðsframkomu og magnaðan fatastíl og hefur klæðst fatnaði frá
mörgum þekktum hönnuðum.
➜ Hljómsveitin spilaði á Iceland Airwaves í október árið 2008.
➜ Nýja platan, How Big, How Blue, How Beautiful, kemur út í sumar.
Um Florence and The Machine
TÖFFARAR Með söngvaranum Sam
Smith á Glastonbury 2014.
ÁSGEIR
GUÐMUNDSSON
„Ég fæ mér yfirleitt hafragraut með
rúsínum og möndlum en ef ég er að
drífa mig hendi ég Cheerios í skál
og helli fjörmjólk yfir.“
Rakel dögg Bragadóttir, fyrrverandi landsliðs-
kona í handbolta.
0
4
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
4
-5
B
B
C
1
4
0
4
-5
A
8
0
1
4
0
4
-5
9
4
4
1
4
0
4
-5
8
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K