Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013 Síldin skyggir á makrílinn LANDIÐ: Skipstjórar skip- anna sem eru á makrílmiðum á hafsvæðum í kringum landið, einkum fyrir austan og suðaust- an, segja allt upp í helming síld- ar í aflanum, en sjómenn ein- beita sér nú að makrílnum áður en síldarvertíðin hefst. ,,Það er alls staðar hægt að fá síld en markmiðið á makrílveiðunum er að fá sem minnst af síld sem aukaafla. Þar stendur hnífurinn í kúnni því síldin er alls stað- ar þar sem kastað er fyrir mak- ríl. Það kemur reyndar fyrir að menn fái svo til hrein makríl- höl en það er hefur verið fátítt á miðunum fyrir Austur- og Suð- austurlandi,“ segir Arnþór skip- stjóri á Lundey NS, í frétt á vef HB Granda. –þá Landsbyggðin lifi LANDIÐ: Aðalfundur félags- ins Landsbyggðin lifi verður haldin laugardaginn 31. ágúst nk. klukkan 14:30 á Brúarás- skóla í Jökulsárhlíð í Fljótsdals- héraði. Á undan er áhugavert málþing á vegum Framfarafélag staðarins og LBL og hefst kl 10. –fréttatilk. Beisla brenni- steinsvetnið OR: Nú er að hefjast bygging gasskiljustöðvar við Hellisheið- arvirkjun með það hlutverk að hreinsa brennisteinsvetni úr út- blæstri virkjunarinnar. Vegfar- endur um Hellisheiði hafa vafa- lítið fundið lykt af mengun frá borholum á svæðinu. Það er fyrirtækjahópur undir forystu Héðins hf. sem vinnur verkið og á smíðinni að ljúka í mars 2014. Verkið kostar rúmar 290 millj- ónir króna, að því er fram kem- ur í frétt frá OR. Bjarni Bjarna- son, forstjóri Orkuveitunnar, segir að brennisteinsvandinn sé mikilvægasta umhverfisvanda- mál Orkuveitunnar til að leysa nú um stundir. „Smíði þessar- ar stöðvar er mikilvægt skref til lausnar og það verður áhuga- vert að sjá árangur þessa áfanga í þróunarverkefninu. Spennandi viðskiptatækifæri tengd jarð- hitagasi eru líka að skjóta upp kollinum en ábyrgðin á lausn þess vanda sem fylgir starfsemi Hellisheiðarvirkjunar hvílir auðvitað á Orkuveitunni,“ seg- ir Bjarni. –mm Áfram feiknar- veiði í Þverá ,,Það eru komnir 2.550 laxar á land,“ sagði Ingólfur Ásgeirsson sem var að leiðsegja veiðimönn- um í Þverá í Borgarfirði er tíð- indamaður Skessuhorns heyrði í honum á bökkum árinnar í fyrradag. Þetta er þrisvar sinn- um betri veiði í Þverá og Kjarará en á sama tíma í fyrra og virð- ist greinilega vera mikið af fiski á svæðinu. Þá hefur Brennan gef- ið 400 laxa. Starir, félag leigutaka í Þverá og Brennu, hafa nú tryggt sér Straumana á leigu næsta sumar en Stangaveiði- félag Reykjavíkur var með svæðið á leigu áður. Starir hafa því náð markmiði sínu að ná allavega þremur veiði- svæðum í sjónlínu niður eft- ir Þverá. -gb Vill að ESB dragi hótanir til baka LANDIÐ: Ríkisstjórnin sendi sl. föstudag frá sér yfirlýsingu vegna hótana Evrópusambands- ins í garð Færeyinga og Íslend- inga vegna fiskveiða í Norðaust- ur Atlantshafi. Segir í yfirlýsing- unni að ESB hafi á undanförn- um mánuðum ítrekað hótað að beita viðskiptaþvingunum gegn Íslandi og Færeyjum í því skini að ná betri stöðu í viðræðun- um um stjórn veiða úr sameig- inlegum fiskistofnum. Í yfirlýs- ingunni segir ennfremur að það sé áhyggjuefni að ESB reyni að skerða rétt annarra strandríkja á svæðinu til frjálsra samnings- viðræðna og samninga til að ná fram hagsmunum tiltekinni að- ildarríkja. Ríkisstjórnin mót- mælir hótunum um beitingu þvingunaraðgerða sem leiðar til að leysa deilur um stjórnun veiða úr sameiginlegum fiski- stofnum. Krefst hún þess að ESB dragi hótanir sínar til baka og virði þannig skuldbinding- ar sínar samkvæmt þjóðarrétti. –sko Aflatölur fyrir Vesturland 10. - 16. ágúst. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 8 bátar. Heildarlöndun: 170.175 kg. Mestur afli: Ottó N Þorláks- son: 151.923 kg í tveimur lönd- unum. Strandveiði: Þerna AK: 105 kg í einni löndun. Arnarstapi 20 bátar. Heildarlöndun: 38.184 kg. Mestur afli: Bárður SH: 6.346 kg í tveimur löndunum. Strandveiði: Kló MB: 1.074 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður 36 bátar. Heildarlöndun: 712.636 kg. Mestur afli: Klakkur SK: 147.615 kg í þremur löndun- um. Strandveiði: Sif SH: 1.602 kg í tveimur löndunum. Ólafsvík 58 bátar. Heildarlöndun: 118.617 kg. Mestur afli: Kópanes RE: 10.038 kg í sex löndunum. Strandveiði: Ás SH: 1.484 kg í tveimur löndunum. Rif 44 bátar. Heildarlöndun: 189.929 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 36.303 kg í einni löndun. Strandveiði: Villi-Björn SH: 1.461 kg í tveimur löndunum. Stykkishólmur 25 bátar. Heildarlöndun: 13.413 kg. Mestur afli: Selfell SH: 1.094 kg í tveimur löndunum. Strandveiði: Fákur SH: 941 kg í tveimur löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Norma Mary H – GRU: 129.128 kg. 13. ágúst. 2. Ottó N Þorláksson RE – AKR: 108.428 kg. 13. ágúst. 3. Klakkur SK – GRU: 53.079 kg. 13. ágúst. 4. Klakkur SK – GRU: 52.731 kg. 15. ágúst. 5. Frosti ÞH – GRU: 48.783 kg. 13. ágúst. sko Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi skorar á nýja ríkis- stjórn og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra sérstaklega, að standa vörð um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, með sérstakri áherslu á heilsugæsluna. Þetta sam- þykkti stjórnin á fundi sínum sem fram fór á mánudaginn. Að auki gagnrýnir stjórnin viðvarandi nið- urskurð á fjárveitingum til Heil- brigðisstofnunar Vesturlands. Þá lýsir stjórnin yfir áhyggjum yfir ör- yggi íbúa og lögreglumanna á Vest- urlandi. „Stór svæði á Vesturlandi eru nú oft á tíðum án nærþjónustu lögreglunnar og hefur niðurskurð- ur í löggæslumálum lagt aukn- ar og allt að því óraunhæfar byrð- ar á starfsfólk sem sinnir löggæslu. Að mati stjórnarinnar er nauðsyn- legt að tekið sé tillit til landsstærðar og dulinnar búsetu á svæðum þeg- ar fjármagni til löggæslu er útdeilt,“ segir í bókun stjórnarinnar. Að sögn Gunnars Sigurðssonar, formanns stjórnar SSV og bæjar- fulltrúa á Akranesi, þá er ástandið í málaflokkunum skelfilegt. „Sveit- arfélögin í landshlutanum eru ugg- andi yfir þessu skelfilega ástandi, bæði hvað varðar þjónustuna og ekki síst aðstæður starfsfólks. Þetta ástand þurfa stjórnvöld að bæta.“ Hefur áhrif á búsetuval fólks Sigurborg Kr. Hannesdóttir, stjórn- armaður í stjórn SSV og forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæj- ar, segir marga íbúa landshlutans hafa verulegar áhyggjur af framtíð- inni þegar kemur að þessum mála- flokkum. „Það verður að passa upp á grunnþjónustuna. Hún er hluti af forsendum byggðarinnar í land- inu og þarna liggja sársaukamörk- in. Núna er til dæmis ekki lækn- ir á vakt allar helgar sem staðsettur er í Grundarfirði líkt og var áður, heldur er helgarvöktunum sinnt frá Ólafsvík. Það er kannski í sjálfu sér ekki verri staða en víða annars stað- ar á landinu, en þetta hefur vald- ið íbúum áhyggjum og sömuleiðis okkur sem sitjum í stjórn byggðar- lagsins,“ segir Sigurborg. Að henn- ar mati eru heilsugæsla og löggæsla stærstu öryggismál íbúa og ráði úr- slitum þegar kemur að vali á bú- setu. „Þetta á sérstaklega við í svona litlu byggðarlagi eins og okkar hér í Grundarfirði og getur hreinlega haft áhrif á hvort fólk kýs að búa á staðnum. Því verðum við öll að taka höndum saman um að standa vörð um grunnþjónustuna.“ hlh Útflutningsverðmæti saltaðra grá- sleppuhrogna og grásleppukavíars hefur lækkað gífurlega og á fyrri helmingi þessa árs er það einungis 44% af útflutningsverðmæti sama tímabils 2012. Frá þessu er sagt á vef Landssambands smábátaeig- enda. Kemur samdráttur þessi fram bæði í magni og lægra verði, en mesta verðlækkunin var í söltuð- um hrognum, eða 43%. Um 40% minna af kavíar var flutt út á fyrri hluta þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Heildarútflutnings- verðmæti saltaðra grásleppuhrogna og kavíars á síðasta ári voru 2,3 milljarðar króna. Á síðasta ári var algengt fob-verð fyrir tunnu af grásleppuhrognum 184 þúsund krónur og nú í ár var það 90 þúsund krónur. „Hér er um mikið áhyggjuefni að ræða, þar sem tekjur af grásleppuveiðum eru meg- inhluti innkomunnar hkjká mörg- um smábátaútgerðum.\ Ástæð- ur þessara miklu sveiflna í verði og magni má rekja til of mikils fram- boðs. Markaðurinn er viðkvæmur og hefur ekki vaxið í takt við aukna heildarveiði,“ segir á vefnum. Enn- fremur segir að ljós sé í myrkrinu fyrir grásleppukarla. Að markað- ur fyrir grásleppuna sjálfa sé góð- ur og að verð hafi hækkað milli ára á þeim markaði. sko Útibússtjóraskipti fóru fram í Landsbankanum á Snæfellsnesi, með aðset- ur í Ólafsvík, sl. mánudag. Fráfarandi útibússtjóri er Eysteinn Jónsson og setti hann nýjan útibússtjóra, Þórhöllu Baldursdóttur, í starfið. „Ég tek við í dag en Eysteinn verður hérna fram í vikuna að setja mig inn í málin,“ sagði Þór- halla í samtali við Skessu- horn. Þórhalla útskrifað- ist sem viðskiptafræðing- ur frá Háskólanum á Bif- röst 2004 og hóf fljótlega eftir það störf hjá Lands- bankanum þar sem hún starfaði lengst af sem fyrirtækjasér- fræðingur. Einnig var hún útibús- stjóri Landsbankans í Holtagörð- um í tvö ár. „Síðast var ég aðstoðar- útibússtjóri í fyrirtækjaviðskiptum í sameinuðum útibúum Landsbank- ans í Holtagörðum og Austurbæj- arútibúi,“ segir hún. Þórhalla hefur verið í fæðingarorlofi frá því í des- ember síðastliðnum, þar til hún tók við nýja starfinu. Eiginmaður Þórhöllu, Jóhann Hallgrímsson, er fæddur og upp- alin í Ólafsvík og sjálf fluttist hún þangað þegar hún var ell- efu ára gömul, svo segja má að Þórhalla sé að koma aft- ur heim eftir tíu ára búsetu í Reykjavík. Þau hjónin eiga þrjú börn saman og fjölskyld- an fluttist öll vestur í Ólafs- vík. „Ég hef heyrt á fólki að það sé ánægt með að heima- fólk sé að koma aftur, það gerist ekki svo oft,“ seg- ir Þórhalla. Aðspurð hvern- ig henni lítist á að vera kom- in aftur í Ólafsvík og að tak- ast á við þetta verkefni, svar- ar hún: „Mér líst vel á þessa breytingar. Ég er spennt að taka við nýju starfi og nýj- um verkefnum. Flutningarnir leggjast vel í fjölskylduna, við eig- um bæði fjölskyldu og vini hér og finnst gaman að geta gefið börnun- um okkar tækifæri til að kynnast líf- inu úti á landi og þeim aðstæðum sem við ólumst upp við.“ sko Þrátt fyrir mikla lækkun verðs á hrognum og kavíar hefur grásleppan hækkað í verði. Mikil lækkun á útflutnings- verðmæti grásleppuafurða Hér eru þau Eysteinn Jónsson fráfarandi útibússtjóri og Þórhalla Baldursdóttir sem nú tekur við starfinu. Nýr útibússtjóri Landsbankans á Snæfellsnesi Lögreglubíll lögreglunnar á Akranesi. Ljósm. þá. Gagnrýna niðurskurð til löggæslu- og heilbrigðismála á Vesturlandi Frá degi sjúkrabílsins í Dölum árið 2010. Ljósm. bae.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.