Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 13
Nú í ágúst setjast þúsundir nemenda leik,- grunn,- framhalds-
og háskóla á Vesturlandi á skólabekk. Leikskólar eru þegar
komnir úr fríi og grunnskólarnir hefja flestir formlega starf
sitt í dag eða á næstu dögum. Starf háskólanna er einnig að
hefjast. Þá hefur Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi brátt
sitt árlega hauststarf með fjölda námskeiða og lengra námi.
Skessuhorn er að þessu sinni að stórum hluta helgað skóla-
byrjun og rætt við stjórnendur á fyrrgreindum skólastigum
m.a. um helstu áherslur í skólastarfi, sérstöðu skólanna og for-
vitnast um fjölda nemenda og starfsfólks svo eitthvað sé nefnt.
Samkvæmt samantekt Skessuhorn verða nú 967 nemendur í
leikskólum á Vesturlandi, en það er fækkun um 20 frá síðasta
hausti. 2.381 er skráður í nám í grunnskólunum á Vesturlandi
og er það fækkun um 147 frá síðasta hausti. 990 nemendur eru
skráðir til náms í framhaldsskólunum þremur á Vesturlandi
og er það nákvæmlega sami fjöldi og innritaður var haustið
2012. Fækkun er um fjögur hundruð nemendur í háskólum á
Vesturlandi milli ára, en 1100 nemendur hefja nám á Bifröst
og Hvanneyri í haust á móti 1500 haustið 2012. Vera kann
að í tölum fyrir nemendafjölda í fyrrahaust hafi þá verið tald-
ir með nemendur sem stunduðu styttri námskeið og endur-
menntun, en bæði á Hvanneyri og Bifröst er stór hópur slíkra
nemenda. Af framansögðu setjast á skólabekk á Vesturlandi
í haust 5.291 nemandi í fullu námi, á skólastigum frá leik-
skóla til háskóla. Auk þess er fjöldi sem mun stunda nám við
endurmenntun hjá ýmsum menntastofnunum á Vesturlandi,
svo sem Símenntunarmiðstöðinni og endurmenntunardeild-
um háskólanna. Þess má geta að þessi fjöldi nemenda jafn-
gildir yfir þriðjungi af íbúafjölda á Vesturlandi þar sem íbú-
ar eru ríflega 15 þúsund. Skólafólki á öllum aldri; nemend-
um og starfsfólki er óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem
framundan eru.
mm
abc
Nemendur í Grunnskóla Stykkishólms fara yfir verkefni ásamt kennara sínum. Ljósm. Eyþór Ben.
Skólablað
Skessuh
orns
VARÚÐ: Vel á fimmta þúsund nýir vegfarendur í umferðinni
Skólar eru nú að hefja vetrar-
starf sitt hver af öðrum með til-
heyrandi umferð barna og for-
eldra, gangandi eða akandi. Gert
er ráð fyrir að um fjögur þús-
und og fimm hundruð börn séu
að fara í fyrsta skipti út í umferð-
ina á leið til skóla í haust og því
er brýn ástæða til að hvetja öku-
menn til að hafa gætni að leið-
arljósi í umferðinni framundan.
Fjöldi barna á grunnskólaaldri er
yfir 40 þúsund í landinu. Vegna
þeirrar hættu sem börnunum
getur stafað af umferðinni bið-
ur Samgöngustofa að vakin sé at-
hygli á eftirfarandi atriðum. Þetta
eru atriði sem brýnt er að foreldr-
ar og börnin sjálf hafi í huga. At-
riði sem geta skipt sköpum varð-
andi öryggi barnanna.
Út í umferðina
Barn sem er að byrja í skóla hefur
ekki þroska eða reynslu til að átta
sig á því sem skiptir máli að gefa
gaum í umferðinni. Brýnum fyr-
ir börnum að þó að þau sjái bíl þá
sé ekki öruggt að bílstjórinn sjái
þau. Höfum í huga að við erum
fyrirmyndir barnanna. Hvern-
ig hegðum við okkur í umferð-
inni? Börn læra meira af því sem
við gerum en því sem við segj-
um. Munum því að ganga aldrei
á móti rauðu ljósi, nota alltaf við-
eigandi öryggisbúnað, t.d. örygg-
isbelti, hjólreiðahjálma og endur-
skinsmerki.
Ekið í skólann
Víða eru aðstæður þannig að aka
verður börnum í skóla og skap-
ar það mikla umferð í kringum
grunnskólana. Nauðsynlegt er
að gæta vel að því hvar barnið fer
úr bílnum við skólana og stoppa
ekki þar sem hætta getur skapast
fyrir barnið og önnur börn. Því
skal alltaf hleypt út þeim megin
sem gangstéttin er, aldrei út á ak-
braut.
Tíu góð ráð
Stysta leiðin í skólann er ekki allt-
af sú öruggasta, miklu frekar leið-
in þar sem sjaldnast þarf að ganga
yfir götu. Þó aðstæður séu þann-
ig að barnið geti gengið eitt í skól-
ann er samt nauðsynlegt að fylgja
því fyrstu dagana og fara vel yfir
allar umferðarreglur. Kennið börn-
um einfaldar og fáar reglur til að
fara eftir. Sjálfir þurfa foreldrar að
fara eftir þessu reglum, ekki síst til
að sýna gott og skilmerkilegt for-
dæmi.
Hér eru tíu góð ráð sem mikil-
vægt er að foreldrar hafi í huga og
fræði börn sín um.
1. Æfum leiðina í og úr skóla með barninu.
2. Veljum öruggustu leiðina í skólann – ekki endi-
lega stystu.
3. Leggjum tímanlega af stað (flýtum okkur ekki).
4. Setjum einfaldar og fáar reglur sem barnið á að
fara eftir.
5. Kennum barninu að fara yfir götu, með og án ljósa-
stýringar.
6. Verum sýnileg, notum endurskinsmerki.
7. Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir.
8. Notum viðeigandi öryggisbúnað í bifreið, bæði
börn og fullorðnir.
9. Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í
nánd við skóla.
10. Förum eftir leiðbeiningum skólans um umferð á
skólasvæðinu.
mm