Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013 abc SKÓLAVÖRUR Bækur • Ritföng • Tölvuvörur • Blekhylki Tónerar og margt fleira S ke ss u h o rn 2 01 3 Smáralind og Kringlunni Verið velkomin Við tökum vel á móti ykkur Sími 544-4220 - 568-4344 FULL BÚÐ AF FLOTTUM SKÓLAFÖTUM Á O K K A R F R Á B Æ R A V E R Ð I ! Grunnskólinn í Borgarnesi verð- ur settur mánudaginn 26. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá daginn eftir. Er þetta tveimur dög- um á eftir áætlun, að sögn Krist- jáns Gíslasonar skólastjóra. Farið var í miklar framkvæmdir innan- húss í kjölfar þess að myglusveppur greindist í nokkuð mörgum rým- um skólans. Verið er að skipta um gólfefni og glugga og hefur fram- kvæmdin verið umfangsmeiri en áætlað var í fyrstu. Þá hefur skól- inn að mestu verið málaður, eink- um eldri hlutinn. Þannig hef- ur skólabyggingin tekið miklum stakkaskiptum. Mun skólabyrjunin þó bera þess nokkur merki að ekki verður allt tilbúið, að sögn Krist- jáns. Í tengslum við framkvæmdir verður frístundaaðstaða eldri nem- enda bætt, sófum fjölgað og tveim- ur 50“ sjónvörpum bætt við. Nemendur skólans verða 285 á næsta skólaári sem er örlítil fjölg- un frá því í vor. Nokkrar manna- breytingar hafa orðið við skólann. Sex nýir kennarar koma til starfa og fimm stuðningsfulltrúar og skóla- liðar. Þessa dagana er verið að vinna að innleiðingu nýrrar skóla- námskrár og gengur sú vinna vel, að sögn Kristjáns. Margt er þar að baki og núna er verið að fara yfir námsgreinakaflana. Grunnskólinn í Borgarnesi kom illa út úr foreldra- og starfsmannakönnun Skólapúls- ins í vor í nokkrum þáttum. Segir Kristján skólastjóri að áhersla verði lögð á að bæta þá þætti sem foreldr- ar og starfsmenn voru óánægðastir með svo sem úrvinnslu eineltis- og agamála. Eineltisteymi verður starf- andi við skólann líkt og verið hef- ur en þó með breyttu sniði. Einn- ig verður lögð áhersla á uppbygg- ingu sjálfsmyndar og sjálftrausts nemenda. „Skólinn starfar eftir áherslum og hugmyndafræði upp- byggingarstefnunnar, er heilsuefl- andi grunnskóli og grænfánaskóli. Á þessa þætti verður lögð áhersla en skólinn sækir um grænfánann í sjötta sinn næsta vor. Hvað varð- ar viðburði á skólaárinu verður það nokkuð hefðbundið. Ungmenna- og tómstundabúðir á Laugum fyrir 9. bekk, skólabúðir á Reykjum fyr- ir 7. bekk og síðan ýmsar fræðslu- og skemmtiferðir. Jólaskemmtunin verður á sínum stað sem og árshá- tíðin. Vera kann að hún taki ein- hverjum breytingum,“ segir Krist- ján Gíslason skólastjóri. þá Laugargerðisskóli hefur verðið starf- andi síðan 1965. Eitt af einkennum skólans er að hann er skóli í strjálbýli, nemendur koma af þremur svæðum í jafn mörgum skólabílum. Fámenni og mikil breidd einkennir skólann en þar koma saman börn frá tveggja til sextán ára. Einnig eru í skólanum mörg tví- tyngd börn, það er af erlendu þjóð- erni, sem eykur fjölbreytileika mann- lífsins. Kristín Björk Guðmundsdóttir er skólastjóri Laugargerðisskóla. Skól- inn verður settur í dag miðvikudaginn 21. ágúst en starfsárinu lýkur í lok maí. Kristín Björk segir áætlað að 33 börn verði í skólanum í vetur, 21 á grunn- skólaaldri og 12 í leikskóladeild. Þrír nemendur útskrifuðust úr 10. bekk í fyrra, en tvö byrja nú í 1. bekk. Vegna fjölgunar í leikskóladeild var bætt við starfsmanni þar en kennaratímum í grunnskóladeild er fækkað á móti. Eru því ekki allir kennarar í fullri stöðu þetta árið. Kristín Björk skóla- stjóri segir að skólinn leggi áherslu á að vinna með heimabyggð nemenda; umhverfi og búskaparhætti. Göngu- ferðir eru að haustinu og vordagar haldnir í samráði við foreldra. Slátur- dagur var haldinn í fyrra þar sem allir bjuggu til slátur sem borðað var í skól- anum. Áætlað er að halda annan slík- an í haust. Berjatínsla er líka fastur lið- ur þar sem nemendur búa til eitthvað úr berjum í heimilisfræði. Allflestir grunnskólanemendur stunda tónlist- arnám sem er fléttað inn í stundatöflu tvo daga í viku. Traust, virðing, vinátta Laugargerðisskóli starfar í fjór- um deildum; leikskóladeild, yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Kennar- ar eru fjórir að meðtöldum íþrótta- kennara, allt réttindakennarar. Skóla- stj\óri er menntaður sérkennari og sér um sérkennslu og lestrargreining- ar. Tónlistarkennari og smíðakenn- ari koma einnig til viðbótar í stunda- kennslu. Tveir starfsmenn verða alltaf til staðar á leikskóla, en auk þess kenna kennarar á leikskólastigi. Fjórir skóla- liðar eru í hlutastörfum og matráð- ur í fullu starfi. Námskrá skólans hef- ur verið í endurskoðun síðasta skóla- ár og sú vinna heldur áfram í vetur. „Þetta skólaár verður miðstig og elsta stig mikið saman í hópi en kennar- ar skipta með sér verkum. Í vetur er líka áætlaður tími í áhugasviðsval fyrir nemendur. Ný námskrá og nýtt form að námsmati, þar sem hæfni einstak- linga verður meira metin, mun stuðla að fjölbreyttara námi. Þróunarstarf verður unnið í samstarfi við Árskóla í Skagafirði sem á að auka virkni nem- enda í frímínútum. Verkefnið heit- ir Vinaliðar og er það norskt að upp- runa. Þetta tengist einnig vinnu okk- ar með einkunnarorð skólans; traust, virðing, vinátta,“ segir Kristín Björk skólastjóri. þá Grunnskólinn í Borgarnesi Unnið að því að bæta einstaka þætti skólastarfsins Stúlkur úr 7. bekk á árshátíð. Frá vorhátíð 1.-3. bekkja í Skallagrímsgarði í maí síðastliðnum. Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi Fámenni og breidd í aldri og þjóðerni einkennir skólann Nemendur byggja turna úr dagblöðum. Úr leikskóladeild á síðasta skólaári.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.