Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 34

Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013 Starfs síns vegna þurfa bændur iðu- lega að aka dráttarvélum á þjóð- vegum. Í tilkynningu frá trygg- ingafélaginu VÍS segir að þar sem dráttarvélar komist ekki jafn hratt og önnur ökutæki þurfi stjórnend- ur þeirra að sýna sérstaka varkárni í umferðinni. „Moksturstæki skal ávallt hafa um 20-30 cm frá jörðu í akstri því ella getur það slasað fólk illa í árekstri við ökutæki sem kem- ur á móti, sérstaklega ef gafflar eru framan á ámoksturstækjum. Við flutning á heyi og öðrum þunga- vörum þarf að huga vel að hleðslu, bremsubúnaði og tryggja sýnileika tækjanna með ljósum og endur- skini. Ökumaður þarf jafnframt að sjá vel aftur fyrir sig og liðka fyr- ir framúrakstri eftir föngum með því að gefa öðrum vegfarendum merki þegar aðstæður leyfa. Vert er að minna alla á að gæta sín vel þegar beygt er til vinstri út af að- alvegi. Í slysum sem verða við þær aðstæður er hraðinn oft mikill og slysin alvarleg. Margir halda að öll sökin liggi hjá þeim sem ætlaði að taka fram úr, en oft liggur 2/3 sak- ar hjá þeim sem hugðist beygja en það getur m.a. oltið á vegmerking- um,“ segir Sigrún Þorsteinsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS í tilkynningu. mm Á Snæfellsnesi eru fjölbreyttar gönguleiðir um einstaka náttúru og mikið af göngugörpum sem nýta sér þær. Ferðafélag Snæfellsness fer með fólk í fjölda gönguferða á ári og sum- arið nú hefur ekki verið undantekn- ing. Að fara með fólk í slíkar ferðir er þó ekki eina verkefni ferðafélags- ins, heldur vinnur það að merking- um og stikun gönguleiða víða á Snæ- fellsnesi. Gunnar Njálsson er for- maður Ferðafélags Snæfellsness og einn af stofnendum þess. Félagið var stofnað 4. júní 2009 og er deild inn- an Ferðafélags Íslands. Starfssvæði þess er allt Snæfellsnes austur að Geirhnjúk í Hnappadal. Blaðamað- ur Skessuhorns ræddi við Gunnar um félagið og starfsemi þess. Tugir manna eru á póstlista ferða- félagsins og fá þar upplýsingar um gönguferðir sem í boði eru. „Það er alltaf ávinningur í að fá sem flesta í félagið og í vor hvöttum við yngra fólk til að ganga í félagið og feng- um við góð viðbrögð,“ segir Gunn- ar. Ferðafélagið heldur úti heima- síðunni www.ffsn.is þar sem hægt er að fylgjast með dagskrá gönguferða, sem og á Facebook síðu félagsins. „Veðrið á Snæfellsnesi er þannig að erfitt getur verið að skipuleggja göngur langt fram í tímann og því erum við oft með þriggja til fimm daga fyrirvara og fólk fylgist með á vefsíðunni okkar eða á Facebo- ok. Það hefur reynst mjög vel,“ seg- ir Gunnar. Kort með gönguleiðum „Ferðafélagið hefur hug á að vera í samstarfi við sveitarfélög á Snæfells- nesi um að merkja og stika göngu- leiðir og hefur þegar skrifað öllum um samstarf þar að lútandi. Við- brögð eru mismunandi, en þar sem er áhugi, þarf að fylgja honum eftir. Okkur finnst það vera hlutverk okk- ar að hvetja sveitarfélög og jafnvel landeigendur til að huga að göngu- leiðum og fleiru í þessum dúr og vonandi rætist það á næstu árum og fólk fær að sjá fleiri örnefnamerking- ar, gönguleiðamerkingar og yfirlits- skilti. Það hefur áhrif og auðveldar aðkomu og umferð um Snæfellsnes- ið,“ segir Gunnar. Meðlimir ferðafélagsins hafa um nokkurt skeið unnið að hönnun og merkingu nýrrar gönguleiðar eft- ir fjallagarðinum á Snæfellsnesi. „Vinnuheitið á gönguleiðinni er Miklabraut. Hún byrjar í Hnappadal og endar vestur við Snæfellsjökul. Hún er um 90 kílómetra löng og það tekur marga daga að fara hana. Þó er ekki nauðsynlegt að fara hana alla heldur ræður göngufólk hvar það byrjar og hvar það endar. Á heima- síðu okkar er stórt kort þar sem hægt er að skoða gönguleiðina eftir há- fjallagarðinum og einnig ljósmynd- ir,“ segir Gunnar. Gengur illa að fá fararstjóra Gunnar hefur starfað sem land- vörður fyrir Vatnajökulsþjóð- garð á hálendinu á milli Hofsjök- uls og Vatnajökuls í nokkur sumur. „Þar er ég að stika gönguleiðir um fjallaskörðin og ganga um svæðið þvert og endilangt og veita upplýs- ingar. Það er mikil æfing í að vera með ferðafólki og þá reynsla sem ég fæ, hlýt ég að geta notað hér á Nesinu.“ Erlendir ferðamenn hafa ekki farið í mikið af gönguferð- um á vegum félagsins. „Þeir eru þó duglegir að ganga sjálfir á fjöll eft- ir að hafa aflað sér upplýsinga um leiðir og slíkt, enda eru engir far- arstjórar til að fara með fólkið og það getur reynst dýrt. Við erum nokkur sem förum með fólk í ferð- ir um svæðið, en við erum fá sem gefum okkur tíma í þetta. Við höf- um auglýst eftir fararstjórum, en það hefur ekki gengið vel að fá þá. Þó væri hægt að hafa laun af þessu ef vel gengi. Kostnaði við göngu- ferðir er stillt í hóf en það kostar um 800-1000 krónur í nokkurra klukkutíma göngur,“ segir Gunnar og bætir við: „Göngurnar eru oft miðaðar við getu þeirra sem koma í þær.“ Verkefni næstu ára „Ferðafólk er að auka komur sín- ar á Snæfellsnes. Það er greinilegt og margir eru að byggja upp til að taka á móti þeirri aukningu. Ef við förum í útivistina, þá er eitthvað til af sjálfstæðum gönguhópum og hópar annarsstaðar frá koma hing- að. Það kemur líka mikið af nýju fólki í gönguferðirnar hjá okkur og svo eru alltaf einhverjir sem koma í næstum allar gönguferðir sem við bjóðum upp á,“ segir Gunnar. Gunnar vill að Ferðafélag Snæ- fellsness vinni meira í samvinnu við sveitarfélög á svæðinu. „Það sem stendur oft upp úr er hver stefna sveitarfélaga á Snæfells- nesi er gagnvart félögum sem eru að fara með ferðafólk. Við þurf- um oft að minna á að við séum til og tilbúin til að gera þetta í sam- starfi við sveitarstjórnir í sambandi við gönguleiðamerkingar og fá að vera með í þróun ferðamála. Það er gífurlegur fjöldi ferðamanna að koma á Snæfellsnes á hverju ári og við þurfum að bregðast við með því að finna leiðir til að taka á móti þessu fólki og bæta aðgengi. Það er verkefni næstu ára,“ segir Gunnar að endingu. sko Á heimili einu í Jörund- arholti á Akranesi er nýlega farið af stað lít- ið fyrirtæki sem fram- leiðir vöru sem vænt- anlega á eftir að nýtast mörgum vel, ekki síst foreldrum skólabarna núna þegar skólarn- ir eru að byrja. Fram- leiðsluvara fyrirtækis- ins merkimidar.is, eru einmitt merkimiðar til að merkja ýmislegt, til dæmis það sem fólk er gjarnt að týna, svo sem fatnað, skó, skólavör- ur og tómstundavörur. „Ég sjálf var gjörn á að týna ýmsu þegar ég var krakki. Það er mér enn í fersku minni þeg- ar ég týndi afskaplega fallegri og góðri úlpu sem ég var bara búinn að eiga í eina viku. Ég var mjög miður mín út af því og ég man hvað mamma mín var sár. Þegar svo barnið mitt hafði týnt hverjum hlutnum á fætur öðrum fór ég virkilega að leiða hugann að því hvort að væri hægt að bregðast við þessu,“ segir Elísabet Ingadóttir sem starfrækir merkimidar.is ásamt manni sínum Sigurði Dan Heimissyni. Elísabet segir að þau hafi verið búin að vinna mikið í því að merkja ýmsa nytjahluti og fatnað á heim- ilinu sem hætta var á að týndist, en það hefði reynst tímafrekt fyrir þau, enda bæði í fullri vinnu. „Mig langaði til að finna eitthvað einfalt út úr þessu, en gaf mér ekki tíma til þess fyrr en ég fór í fæðingarorlof í fyrra. Þá datt okkur í hug að leita að límmiðum sem hentuðu í þetta og þá merkimiðum sem þyldu þvott og ent- ust. Eftir talsverða leit fundum við miða með þessum eiginleikum, og arkir og búnað til að framleiða miðana. Fyrirtækið og fram- leiðslan fór svo af stað í byrjun júní síðastliðinn og við höfum þegar fengið mjög góðar við- tökur og viðbrögð við þessu framtaki,“ seg- ir Elísabet þegar hún sýnir blaðamanni lím- miðana sem láta ekki mikið yfir sér á örk- inni - eru úr pappír en þola samt þvott. Elísa- bet segir að miðarnir séu til dæmis límdir á miða sem eru gjarnan í hálsmáli á flíkum. Hún segir að áfram verði unnið að því að útvega til dæmis merkimiða til að setja á ullarflík- ur. „Við munum svo þróa þetta áfram. Við höfum til dæmis áhuga á að fram- leiða miða til að merkja fyrir börn með ofnæmi,“ segir Elísabet. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og segir að með merkimid- ar.is hafi henni tekist að samtvinna menntunina, áhugamálið og hús- móðurstarfið. þá Bændur hvattir til varúðar við akstur dráttarvéla á þjóðvegum Elísabet Ingadóttir með merkimiðana sem þola þvott og eru ótrúlega notadrjúgir. Merkimiðar á allt sem ekki á að týnast Gunnar Njálsson formaður Ferðafélags Snæfellsness. Margar gönguferðir farnar á hverju ári Rætt við Gunnar Njálsson formann Ferðafélags Snæfellsness

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.