Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
abc
FJARNÁM
Skráning á haustönn fer fram 26. ágúst til 4. september
á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Skólahald Landbúnaðarháskóla Ís-
lands er nú hafið. Að sögn Ágústar
Sigurðssonar rektors er fjöldi nem-
enda svipaður og síðustu ár en þó er
ekki verið að taka inn nýja nemend-
ur á allar námsbrautir þetta haust-
ið. „Alls bárust okkur um 270 um-
sóknir á þær námsbrautir sem við
bjóðum upp á. Við erum að taka
inn u.þ.b. helminginn af þeim en
nýnemar dreifast svipað og ver-
ið hefur á námslínur. Þó má segja
að náttúrufræðin hafi tekið nokk-
urn kipp auk þess sem búfræðin
er alltaf vinsæl. Alls verða því um
500 nemendur hjá okkur í vetur
og má reikna með að við fáum auk
þess um 2.000 manns inn í endur-
menntunina. Stærstur hlutinn er í
staðarnámi en síðan er hluti sem
nýtir sér fjarnámslausnir. Kennsla
fer fram á þremur stöðum, flestir
eru á Hvanneyri en kennsla í garð-
yrkju fer fram á Reykjum í Ölfusi
auk þess sem stærsti hluti meist-
aranáms í skipulagsfræði og Land-
græðsluskóla háskóla Sameinuðu
þjóðanna fer fram á Keldnaholti í
Reykjavík.“
Vaxtarkippurinn á
Hvanneyri skemmtilegur
Fyrstu nýnemar haustsins mættu
til náms á Hvanneyri á mánudag-
inn. Ágúst segir að aðrir hópar
nemenda tínist síðan inn fram til
mánaðamóta. „Sumir eru auðvi-
tað við nám yfir sumartímann líka,
t.d. nemendur í framhaldsnámi og
Landgræðsluskólanum, þannig að
það er ekki um að ræða eiginlega
skólasetningu – skólinn er í gangi
allt árið hjá okkur. Nemendagarð-
ar á Hvanneyri verða fullnýttir í ár
og er alltaf jafn skemmtilegt þegar
þorpið okkar hér á Hvanneyri tek-
ur hinn árlega vaxtarkipp í lok sum-
ars.“
Áherslur LbhÍ hvað kennslu
varðar eru í nokkuð föstum skorð-
um, námsbrautirnar eru þær sömu
og verið hafa um nokkurt skeið.
„Það er frekar að einhverjar breyt-
ingar séu á námsgreinum sem ávallt
eru í þróun auk þess sem valgreinar
taka breytingum. Sömuleiðis koma
nýir kennarar með sínar áherslur.
Við leggjum metnað í að nemend-
ur okkar hljóti vandaða og gagn-
lega menntun sem byggir á gagn-
rýnni hugsun, sjálfstæðum vinnu-
brögðum og færni. Sérstaða skól-
ans er auðvitað mjög mikil, við
erum einbeitt á afmörkuðu fræða-
sviði og finnum til ábyrgðar gang-
vart því.“
Leiðandi afl
í rannsóknum
Ágúst segir að sífellt séu að koma
upp ný verkefni og hugmyndir í
rannsóknarstarfi skólans sem fylgja
þarf eftir. „Okkar markmið er að
vera leiðandi afl í rannsóknum,
kennslu og nýsköpun á sviði nátt-
úruvísinda, auðlinda- og umhverf-
isfræða auk landnýtingar. Auðvi-
tað eru mest áberandi rannsókn-
ir tengdar ræktun hverskonar á
plöntum og búfé auk margvíslegra
umhverfisrannsókna. Þess má geta
að síðastliðið vor var undirritað-
ur sérstakur rannsóknarsamning-
ur til næstu fjögurra ára milli LbhÍ
og ráðuneytis atvinnuvega- og ný-
sköpunar. Þessi samningur er kjöl-
festan í okkar rannsóknarstarfi og
afar mikilvægur.“
Ágúst segir mannauð skól-
ans einn af hans helstu styrkleik-
um. „Skólinn nýtur þess að hafa á
traustu og góðu starfsfólki að skipa.
Í vetur verður sama fólk á vakt og
verið hefur en fastir starfsmenn eru
rétt um 100 talsins í dag.“
Aðstaðan bætt
„Við erum stöðugt að vinna í því að
bæta aðstöðu okkar og nú í haust er
m.a. verið að vinna við aðalbygg-
ingu skólans – Ásgarð,“ segir Ágúst
um helstu framkvæmdir á Hvann-
eyri að undanförnu. „Þar er verið
að halda áfram við klæðningu ut-
anhúss og eins er verið að undir-
búa lokaáfanga í endurbótum inn-
anhúss. Endurbætur fara fram m.a.
á kjallarahæð hússins þar sem verða
nokkrar kennslustofur, hluti bóka-
safns og langþráð bætt aðstaða til
líkamsræktar. Þá er einnig gam-
an að geta þess að nú í haust verð-
ur unnið að lagfæringum á okkar
sögufræga aldargamla íþróttahúsi
en nýlega fékkst svolítill styrkur úr
Húsafriðunarsjóði til að hefja þær
endurbætur.“
Skólanum gefin
góð einkunn
Ágúst segir starf skólans í góðum
farvegi og hafi nýleg úttekt erlendr-
ar sérfræðinganefndar á skólanum
sýnt það. „Úttekt nefndarinnar fór
fram í vor en um viðamikla gæðaút-
tekt á starfi LbhÍ var að ræða. Nið-
urstöður sérfræðinganefndarinnar
liggja nú fyrir og í stuttu máli sagt
getum við, starfsmenn og nem-
endur, verið ákaflega stolt af skól-
anum okkar. Úttektarnefndin gef-
ur skólanum góða einkunn og lýs-
ir yfir trausti á skólastarfinu. Í nið-
urstöðum nefndarinnar koma einn-
ig fram mjög gagnlegar ábendingar
um þætti til úrbóta sem ætti að vera
mögulegt að bregðast við þannig að
gæði skólastarfsins geti aukist enn
frekar.“ hlh
Landbúnaðarháskóli Íslands
Búfræðin er alltaf vinsæl en nám
í náttúrufræðum tekur kipp
Björn Þorsteinsson aðstoðarrektor kennslumála og prófessor leiðbeinir nemendum í vettvangsferð við Hvanneyri.
Ljósm. Áskell Þórisson.
Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ.
Nemendur í umhverfisskipulagi njóta hér leiðsagnar Ragnars Frank Kristjáns-
sonar kennara.