Skessuhorn - 21.08.2013, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
vægi, einfaldleiki og gagnsæi er ráð-
andi í dagskrá, umhverfi og búnaði.
Að bjóða upp á leikefnivið og ein-
föld námsgögn þar sem sköpun og
ímyndun er í fyrirrúmi í fjölbreyttri
reynslu hvers barns. Þá er börn-
um kennt að skynja og njóta nátt-
úrulegs umhverfis og virða náttúr-
una með nýtni, nægjusemi og hóf-
semi svo og með umhirðu og end-
urvinnslu. Að lokum er Hjallastefn-
unni ætlað að þjálfa aga og hegðun
á jákvæðan og hlýlegan, en um leið
ákveðinn og hreinskiptinn hátt.
Auk þess að vera Hjallastefnu-
skóli mun Hraunborg verða Græn-
fánaskóli. „Vinna stendur nú yfir
í Hraunborg að því að sækja um
Grænfánann og svo fengum við
fjórar hænur í vor. Það tengist verk-
efni í sjálfbærni og krakkarnir hafa
mjög gaman af því,“ segir Ásrún.
Klettaborg
Í vetur verða um 60 nemendur á
leikskólanum Klettaborg í Borg-
arnesi og þar eru 18 mánaða göm-
ul börn tekin inn líkt og á flest-
um öðrum leikskólum í sveitarfé-
laginu. Börnunum er skipt niður í
þrjár aldursskiptar deildir sem heita
Sjónarhóll, Kattholt og Ólátagarð-
ur. Leikskólinn opnaði 8. ágúst eft-
ir sumarfrí og starfsmenn eru 19
talsins. „Við erum með ellefu leik-
skólakennara og einn af styrkleik-
um skólans er stöðugleiki í starfs-
mannahaldi. Við erum með leið-
beinendur með mikla reynslu og
meðalstarfsaldur á Klettaborg er
16 ár. Þannig að við vinnum mjög
vel saman og það er mikill þroski í
starfsmannahópnum,“ segir Stein-
unn Baldursdóttir leikskólastjóri.
Á Klettaborg er starfað eftir hug-
myndafræði John Dewey. „Áherslu-
atriðin eru samskipti, skapandi starf
og nám án aðgreiningar. Það geng-
ur út að börnum með sérþarfir er
sérstaklega vel sinnt og við leggj-
um mikinn metnað í að þau hafi
sömu tækifæri og önnur börn. Við
erum einnig með ákveðið dags-
skipulag þar sem hver dagur geng-
ur í stórum dráttum fyrir sig eins
og aðrir dagar. Með því teljum við
að börn öðlist traust og grundvallar
öryggi,“ segir Steinunn. Einkunn-
arorð Klettaborgar eru; sjálfstæði,
virðing og gleði.
Ugluklettur
Leikskólinn Ugluklettur er í Borg-
arnesi og þar verða 60 nemend-
ur í vetur í þremur aldursskipt-
um deildum. Skólastarfið hófst 8.
ágúst og yngstu börnin sem tekin
eru inn á Ugluklett eru 18 mánaða
gömul. Starfsmenn leikskólans eru
18 talsins og þar af eru sex faglærð-
ir. „Einkunnarorð leikskólans eru
leikur, virðing og gleði. Í samræmi
við þau er markmiðið með opnu
dagsskipulagi að ná fram mikil-
vægi leiksins og að gefa börnunum
tíma til þess að þróa hann, styðja
við, og efla frjálsan leik barnanna,
bera virðingu fyrir fjölbreytileik-
anum innan hópsins og stuðla að
gleði og frjálsræði í starfinu öllu,“
segir Kristín Gísladóttir leikskóla-
stjóri.
„Á Uglukletti ríkir sú trú að leik-
urinn sé aðal námstæki barnanna
og að í gegnum hann aukist sjálf-
stæði þeirra og að þau fái tækifæri
til þess að koma sínum hugmynd-
um á framfæri í gegnum hann.
Opið dagsskipulag gefur börnun-
um tækifæri til þess að finna við-
fangsefni án utanaðkomandi stýr-
ingar og velja því eftir áhuga sín-
um hverju sinni. Virðing er borin
fyrir þeim fjölbreytileika sem ríkir
í barnahópnum og börnin læra að
stjórna eigin athöfnum og að bera
virðingu fyrir sjálfum sér og öðr-
um. Gleðin er mikilvægur þáttur
í námi barna og með opnu dags-
skipulagi næst fram jákvætt and-
rúmsloft þar sem hver og einn fær
tækifæri til þess að vinna að sínum
verkefnum. Með gleði og vellíðan
að leiðarljósi verður nám barnanna
jákvæð upplifun,“ segir Kristín.
Ugluklettur er flæðiskóli þar
sem mikil áhersla er lögð á að
börnin finni sér sjálf viðfangsefni.
„Við viljum að börnin séu sjálf-
stæð og sterk og viti hvað þau vilja
í lífinu,“ segir Kristín. Vinna við
flæðið hófst árið 2008, en það er
ástand þar sem einstaklingurinn er
svo niðursokkinn í athöfn að ekk-
ert annað kemst að. Starfsfólkið
spilar stórt hlutverk í að skapa þær
aðstæður svo barnið hafi mögu-
leika til að ná flæði. „Flæðið hefur
reynst mjög vel og allir hafa ver-
ið mjög ánægðir með þetta fyr-
irkomulag. Það krefst mikils af
starfsfólki en hefur reynst vel og
er mjög skemmtilegt,“ segir Krist-
ín að endingu.
Snæfellsbær
Í Snæfellsbæ eru tveir leikskól-
ar starfræktir. Krílakot í Ólafsvík
og Kríuból á Hellissandi. Í heild-
ina eru 103 börn í leikskólum Snæ-
fellsbæjar.
Krílakot
Á Krílakoti í Ólafsvík verða 67 börn
í vetur, 60 á leikskólanum sjálfum
og 7 á Bangsakoti sem er ný deild
sem opnuð var í mars á þessu ári í
fjölbýlishúsi hinum megin við göt-
una við Krílakot. Starfsmenn eru 20
talsins og þar af sjö faglærðir. Skól-
anum er skipt niður í þrjár deild-
ir; Rauðu deildina, Gulu deildina
og Stubbakot sem Bangsakot til-
heyrir. Yngstu börnin sem tekin
eru inn á Krílakot eru tveggja ára
gömul. Starfsemi leikskólans hófst
15. ágúst sl.
„Aðal hugtök okkar eru virð-
ing, vinátta og gleði og okkar meg-
in áhersla í starfinu í gegnum þessa
þætti er stærðfræði og málþroski,“
segir Hermína K. Lárusdóttir að-
stoðarleikskólastjóri Krílakots.
„Í málþroska leggjum við mikla
áherslu á málörvun og hljóðkerfis-
vitund barna. Við þróum læsi og í
vetur ætlum við að vera með aukinn
skiltalestur þar sem flest í skólanum
verður merkt. Við ætlum jafnvel að
senda bækur heim með börnunum
sem þau geta lesið. Í stærðfræði-
kennslunni notumst við mikið við
Numicon kubba. Nokkrir kennar-
ar frá Krílakoti fóru til Brighton í
Englandi í júní til að fræðast meira
um Numicon kennslu og verður
hún aukin í vetur,“ segir Hermína.
Í vetur verður nemendum Kríla-
kots boðið upp á aukið val. „Við
setjum upp leikstöðvar um leikskól-
ann sem börnin geta valið á milli.
Einu sinni til tvisvar í viku er valið
á milli deilda, en tvisvar í viku nær
valið á milli allra stöðva í skólanum.
Þá fara börn af yngstu deild kannski
inn á miðdeildina. Þetta hefur gef-
ið börnunum mikið og þeim finnst
þetta skemmtilegt,“ segir Hermína
að endingu.
Kríuból
Á leikskólanum Kríubóli á Hellis-
sandi verða 36 börn í vetur í tveim-
ur aldursskiptum deildum; Hóli þar
sem yngri nemendur eru og Garði
þar sem þau eldri eru. Á síðasta ári
voru deildirnar þrjár en nú hefur
börnum fækkað og tilfærsla ver-
ið á starfsfólki. Starfsmenn skól-
ans eru tíu og þar af fimm faglærð-
ir. Yngstu börnin sem tekin eru inn
eru tveggja ára og starfsemi skólans
hófst 15. ágúst síðastliðinn.
Frjáls tími á Kríubóli er frá
klukkan átta til tíu og eitt til þrjú
þar sem börnin hafa að segja um
hvað þau taka sér fyrir hend-
ur. „Leiknum er gefið mikið rými
í starfi okkar og börnin hafa þar
frjálst val til að velja sér leiksvæði,
efnivið og leikfélaga. Þá erum við
með fimm innileiksvæði og eitt úti-
leiksvæði og hefur hvert svæði sín
sérkenni. Á þessum tímum bland-
ast deildirnar og þannig geta systk-
ini á mismunandi aldri leikið sam-
an,“ segir Steinunn Dröfn Ingi-
björnsdóttir. „Við leggjum einnig
mikla áherslu á stærðfræðikennslu
og Numicon kubba. Það er líka
hluti af vali barnanna.“
Sólvellir í Grundarfirði
Á leikskólanum Sólvöllum í Grund-
arfirði verða 55 börn í vetur og þau
yngstu ársgömul. Nemendum er
skipt niður eftir aldri í þrjár deild-
ir. Alls starfa 19 manns á Sólvöllum
og þar af eru fjórir leikskólakenn-
arar. Eldhús leikskólans sér um
mat fyrir leikskólann en einnig mat
fyrir Grunnskóla Grundarfjarðar.
„Það eru mörg yngri börn núna í
skólanum,“ segir Matthildur Soffía
Guðmundsdóttir leikskólastjóri.
Mikill vinskapur virðist hér hafa myndast á Hraunborg.
Þessar stelpur hafa hér reist mikið mannvirki í úr kubbum.
Mikil áhersla er lögð á útivist barna á Uglukletti í Borgarnesi.
Börnin á Krílakoti læra stærðfræði með Numicon kubbum.
Hér eru tvær stelpur að bera á kofa á leiksvæði Kríubóls í Snæfellsbæ.
abc